Nýútskrifaðir sjúkraþjálfarar byrja að veita þjónustu án greiðsluþátttöku ríkisins

Á nokkrum sjúkra­þjálf­ara­stofum er nú hægt að bóka þjón­ustu nýút­skrif­aðra sjúkra­þjálf­ara, en þá þarf að greiða fullt verð fyrir tím­ann, vegna ákvæðis í reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra. Tveir eig­endur stofa segja þetta ekki gott fyrir skjól­stæð­inga.

Nýútskrifaðir sjúkraþjálfarar hafa sem sakir standa ekki kost á því að starfa á einkareknum stofum innan greiðsluþátttökukerfis hins opinbera fyrr en eftir tveggja ára starf í greininni.
Nýút­skrif­aðir sjúkra­þjálf­arar hafa sem sakir standa ekki kost á því að starfa á einka­reknum stofum innan greiðslu­þátt­töku­kerfis hins opin­bera fyrr en eftir tveggja ára starf í grein­inni. Mynd: Pexels

Nokkrar sjúkra­þjálf­ara­stofur hér­lendis eru byrj­aðar að bjóða skjól­stæð­ingum sem til þeirra leita upp á að bóka tíma hjá nýút­skrif­uðum sjúkra­þjálf­urum, en greiða fullt gjald fyrir þjón­ust­una, án greiðslu­þátt­töku hins opin­bera. Tveir stofu­eig­endur sem Kjarninn ræðir við segja að tvö­falt kerfi í sjúkra­þjálfun sé með þessu að verða til á Íslandi, á meðan ekk­ert breyt­ist.

Þau segja að þetta sé að ger­ast vegna ákvæðis í reglu­gerð Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, sem gerir sjúkra­þjálf­urum ókleift að starfa sjálf­stætt sam­kvæmt samn­ingi við Sjúkra­trygg­ingar Íslands (SÍ) fyrr en þeir hafa unnið sem sjúkra­þjálf­arar í tvö ár í að minnsta kosti 80 pró­sent starfs­hlut­falli.

Sjálf­stætt starf­andi sjúkra­þjálf­arar sögðu sig af samn­ingi við SÍ í febr­úar í fyrra og samn­inga­við­ræður hafa ekki enn borið árangur. Greiðslu­þátt­taka SÍ vegna þjón­ustu þeirra er því ákvörðuð með reglu­gerð þessa dag­ana. Hún hefur verið fram­lengd nokkrum sinnum og er nýjasta útgáfa hennar í gildi út ágúst­mánuð.

Tak­mark­an­irnar á starfs­mögu­leikum nýút­skrif­aðra bætt­ust inn í reglu­gerð ráð­herra í des­em­ber í fyrra og var harð­lega mót­mælt í vetur, en ráðu­neytið hefur hvergi hvikað frá stefnu sinni.

Gauti Grét­ars­son einn eig­enda Sjúkra­þjálf­unar Reykja­víkur og Garða­bæjar segir þá stöðu sem upp sé komin ekki slæma fyrir hann eða aðra eig­endur stof­unnar, heldur fyrst og fremst fyrir þá sem þurfi á þjón­ustu sjúkra­þjálf­ara að halda. „Fólkið þarf að borga sjálft,“ segir hann ein­fald­lega og telur skjóta skökku við að þetta sé að ger­ast á meðan „við þykj­umst vera sam­fé­lag sem er að nið­ur­greiða heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Bíða eða borga?

„Við erum með tvo sjúkra­þjálf­ara sem voru að útskrif­ast núna og þeir koma inn núna og byrja að vinna utan samn­ings. Þá rukkum við fullt fyrir þá og skjól­stæð­ing­ur­inn borgar meira. Það eru fleiri stofur sem eru að fara í þetta sama, því kúnn­inn þarf þjón­ustu. Ef þú ert að drep­ast, þá hefur þú ekk­ert val. Þú verður bara að borga það sem beðið er um,“ segir Gauti, en einn tími í sjúkra­þjálfun án greiðslu­þátt­töku hins opin­bera kostar um 8 þús­und krónur.

Auður Ólafs­dóttir einn eig­enda sjúkra­þjálf­un­ar­innar Styrks í Reykja­vík hefur svip­aða sögu að segja. Hún segir vanta fleiri sjúkra­þjálf­ara í stétt­ina, biðlistar séu víða langir á einka­reknum stofum og hennar stofa hafi aug­lýst eftir sjúkra­þjálf­ara sem gæti starfað innan opin­bera kerf­is­ins á vor­mán­uðum, án árang­urs.

Einn nýút­skrif­aður sjúkra­þjálf­ari byrjar að veita þjón­ustu sína hjá Styrk á næstu dögum, en þeir sem til hennar koma munu ekki njóta greiðslu­þátt­töku hins opin­bera, heldur bera kostn­að­inn alfarið sjálfir.

Spurð hvernig skjól­stæð­ingar taki því, er þeim sé sagt að þeir muni þurfa að bera fullan kostnað af þjón­ust­unni, segir hún að það sé æði mis­jafnt. „Það eru ein­hverjir sem eru til­búnir, segj­ast verða að kom­ast að og taka því að borga fullt gjald, en sumir segja nei og segj­ast ætla að reyna á öðrum stofum. En við vitum alveg hvernig ástandið er, það er biðlisti all­staðar,“ segir Auður, sem telur að þeir sem hafi minna á milli hand­anna þurfi að sætta sig við bið­ina fremur en þeir sem fjáð­ari eru.

Hún segir fólk ekk­ert geta fengið nið­ur­greitt, nema mögu­lega ef það fari í stétt­ar­fé­lagið sitt. „Við bendum fólki á það,“ segir Auður, en bætir reyndar við að eftir að greiðslu­þátt­taka hins opin­bera var aukin árið 2017 hafi mörg stétt­ar­fé­lög að sama skapi dregið úr nið­ur­greiðslu sjúkra­þjálf­unar félags­manna sinna. Sumir komi því að tómum kof­anum þar.

Yfirvöld viðurkenni ekki að þörfin sé að aukast

Gauti var staddur í Noregi er Kjarninn náði af honum tali í vik­unni. Hann segir kerfið þar í landi þegar orðið eins og hann telur að stefni í á Íslandi, ef fram haldi sem horfi. Þar sé þriggja mán­aða bið eftir því að kom­ast inn í opin­bera kerfið en engin bið utan þess. „Þannig mun staðan verða heima ef þessu verður ekki breyst á næst­unni,“ segir Gauti.

Hann segir að í samn­inga­við­ræðum við sjálf­stætt starf­andi sjúkra­þjálf­ara hafi Sjúkra­trygg­ingar Íslands og heil­brigð­is­ráðu­neytið horft í það að kostn­aður við sjúkra­þjálfun í bók­haldi rík­is­ins hafi farið hækk­andi á und­an­förnum árum.

Í samn­ingum um sjúkra­þjálfun utan sjúkra­húsa hefur verið greitt fyrir hvert unnið verk og var það gagn­rýnt í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um SÍ sem kaup­anda heil­brigð­is­þjón­ustu, sem kom út árið 2018. Þetta fyr­ir­komu­lag var sagt leiða til þess að hvati mynd­að­ist fyrir sjúkra­þjálf­ara til þess að veita meiri þjón­ustu. Yfirvöld eru að reyna að vinda ofan af þessu í nýjum samn­ingum við sjúkra­þjálf­ara.

[adspot]

Gauti segir þó að yfir­völd horfi skakkt á hlut­ina. Aukna ásókn í sjúkra­þjálfun (og þar með kostnað sam­fé­lags­ins af því að taka þátt í að veita fólki hana) megi rekja til versn­andi lífs­stíls þjóð­ar­innar með auk­inni setu við tölvu­skjái og sömu­leiðis þess að ríkið byrj­aði fyrir nokkrum árum að taka meiri þátt í kostn­að­inum við sjúkra­þjálfun.

Hann segir heims­far­ald­ur­inn með til­heyr­andi heima­vinnu skrif­stofu­fólks ekki hafa bætt úr skák og margir séu illa á sig komnir vegna slæmrar vinnu­að­stöðu. „Fólk situr alveg við svaka­legar vinnu­að­stæður, í klessu í ein­hverju her­bergi,“ segir Gauti.

„Þegar þjón­ustan verður ódýr­ari, þá aukast líkur á að fleiri sæki í úrræðin. Nú kostar ekk­ert fyrir börn og ung­linga í sjúkra­þjálfun og þá hafa for­eldrar kannski frekar efni á að senda börnin sín í sjúkra­þjálfun, ef eitt­hvað er að. Einnig ungt fólk, í mennta­skóla og háskóla, sem ekki hafði efni á sjúkra­þjálfun, það hefur núna efni á að sækja sér sjúkra­þjálfun því nú er það ódýr­ara. En það er þá auð­vitað dýr­ara fyrir sam­fé­lagið,“ segir Gauti.

Hann seg­ist hafa varað við auk­inni greiðslu­þátt­töku rík­is­ins í sjúkra­þjálfun er verið var að gera breyt­ingar á henni árið 2017. „Ég man að ég spurði á sínum tíma, á ein­hverjum kynn­ing­ar­fundi, hvort búið væri að tryggja fjár­veit­ingar fyrir þessum breyt­ingum. Sjúkra­trygg­ingar sögðu bara: „Hafðu ekki áhyggjur af því Gauti minn,“ en svo fylgja ekki fjár­munir í þennan mála­flokk.“

Ríkið ekki tilbúið að borga einingaverð sem sjúkraþjálfarar sætta sig við

Auður, sem sinnir trún­að­ar­störfum fyrir Félag íslenskra sjúkra­þjálf­ara og var for­maður félags­ins á öld­inni önd­verðri, segir að reglu­gerð­ar­breyt­ingin sem gerir nýút­skrif­uðum ókleift að starfa sjálf­stætt innan kerfis hafi verið hálf­gerð þving­un­ar­að­gerð af hálfu SÍ og heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, til þess að fá sjúkra­þjálf­ara til þess að semja.

Raunar segir Auður að sjúkra­þjálf­arar séu til­búnir að semja „en það hafa ekki verið samn­inga­við­ræður í gangi nema núna aðeins í mars, apríl og maí og það hefur bara strandað á umboði SÍ til að semja við okkur um það ein­inga­verð sem við sættum okkur við.“

Hún segir að með vænt­an­legum samn­ingi sé verið að setja ramma utan um það fjár­magn sem yfir­völd vilja setja í sjúkra­þjálfun. „Þá er verið að semja við stof­urnar um ákveðið ein­inga­verð og ákveðið margar ein­ingar á ári og ramma þannig inn útgjöldin. Áður fyrr var samn­ing­ur­inn þannig að það útskrif­að­ist bara heill árgangur og þau fóru bara öll að vinna sjálf­stætt starf­andi á samn­ingi og það var bara eins og opinn tékki, það var eng­inn rammi utan um útgjöld í sjúkra­þjálfun,“ segir Auður.

Auður segir að í maí, þegar síð­ast voru samn­inga­fundir í deil­unni, hafi sjúkra­þjálf­arar kom­ist að því fjár­magnið sem til stóð að setja inn í samn­ing­inn við sjúkra­þjálf­ara hefði verið lægra en útgjöld rík­is­ins vegna sjúkra­þjálf­unar árið 2019, þegar síð­asti samn­ing­ur­inn rann út. Því sé ríkið í raun að bjóða skerð­ingu á fé inn í geir­ann og á henni er að heyra að sjúkra­þjálf­arar séu ekki fúsir til þess að semja um að lækka launin sín.

Hún segir þörf­ina fyrir sjúkra­þjálfun mikla og vax­andi og telur að ráð­herra gæti brugð­ist við með tvennum hætti, til þess að höggva á hnút­inn í samn­ingum við sjúkra­þjálf­ara.

[adspot]

Annars vegar væri hægt að finna aukið fjár­magn til þess að fá sjúkra­þjálf­ara til að semja. Ef það fjár­magn finnst ekki væri hægt að fara í „heilsupóli­tík“ og und­an­skilja ein­hverja skil­greinda sjúk­linga­hópa frá greiðslu­þátt­töku rík­is­ins er kemur að sjúkra­þjálfun eða sækja fjár­muni jafnt í vasa allra sjúk­linga, með minni greiðslu­þátt­töku hins opin­bera.

Forvarnahlutverk sjúkraþjálfara gleymist

Gauti segir að það gleym­ist stundum að sjúkra­þjálfun sé mik­il­vægur þáttur for­varna í heil­brigð­is­þjón­ust­unni hér á landi og komi í veg fyrir að ríkið neyð­ist til að verja pen­ingum í aðra hluti í kerf­inu, eins og til dæmis nið­ur­greiðslu sterkra verkja­lyfja sem kvalið fólk þarf á að halda til þess að halda haus frá degi til dags.

Hann bendir á að í fyrra hafi kostn­aður hins opin­bera við sjúkra­þjálfun, iðju­þjálfun og fleira numið rúmum 4,9 millj­örðum króna, eða 0,17 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu, sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni. Það segir Gauti smá­aura í stóra sam­heng­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjúkraþjálfun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár