Síbreytilegur frumskógur ferðatakmarkana

Hert og slakað. Opnað og lokað. Þótt ferða­tak­mark­anir séu almennt að verða minni, fyrst og fremst hvað snertir bólu­setta, er ákveðin óvissu­ferð fyrir höndum þar sem ný veiru­af­brigði og seina­gangur í bólu­setn­ingum spila stóran þátt.

Á ferð og flugi. Nauðsynlegt er að skoða vel ferðatakmarkanir á áfangastað áður en lagt er af stað í ferðalag.
Á ferð og flugi. Nauð­syn­legt er að skoða vel ferða­tak­mark­anir á áfanga­stað áður en lagt er af stað í ferða­lag. Mynd: EPA

Delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar, sem áður var kennt við Indland, hefur orðið til þess að halda yfir­völdum landa heims­ins á tánum. Sum hafa frestað aflétt­ingu aðgerða vegna afbrigð­is­ins og önnur hert tak­mark­anir á landa­mærum sínum á ný. Full­bólu­settir eru almennt í mun betri stöðu en aðrir ferða­langar en bólu­setn­inga­vott­orð, jafn­vel þótt þau séu sam­evr­ópsk, eru enn ekki ávísun á fullt ferða­frelsi. Þess skal getið að sótt­varna­læknir ráð­leggur íbúum Íslands sem ekki eru full bólu­settir eða með stað­festa fyrri sýk­ingu frá ferða­lögum á áhættu­svæði. Það á einnig við um börn. Öll lönd og svæði heims nema Grænland eru skil­greind sem áhættu­svæði.

[adspot]

Það er allt annað en ein­falt að fylgj­ast með stöðu þess­ara mála í heim­inum enda oft gripið til aðgerða á landa­mærum með skömmum fyr­ir­vara. Delta-afbrigðið hefur sýnt – og sannað – að það er meira smit­andi en fyrri afbrigði og við því eru stjórn­völd víða um ver­öld nú að bregð­ast.

Þótt bólu­setn­ingar séu vel á veg komnar í flestum ríkjum Evrópu, svo dæmi sé tekið, er enn stór hluti fólks, aðal­lega ungs fólks, óbólu­settur. Enn er því hætta á far­aldri meðal þeirra. Þá hefur enn ekki tek­ist að úti­loka að bólu­settir geti smit­ast af veirunni og borið hana í aðra þótt allt virð­ist benda til þess að á því séu litlar líkur. Annað sem taka verður með í reikn­ing­inn er að bólu­efni veita ekki alltaf full­komna vörn. Og ekki er víst, eins og það er orðað á heima­síðu land­læknis, að bólu­efnin veiti vörn hjá öllum sem fá bólu­setn­ingu.

[links]Um 400 millj­ónum skammta af bólu­efnum hefur þegar verið dreift innan Evr­ópu­sam­bands­ins og EES. Rúmlega 60 pró­sent full­orð­inna íbúa hafa fengið að minnsta kosti fyrri skammt­inn og um 40 pró­sent eru full­bólu­sett.

Staðan er allt önnur og verri víð­ast hvar í heim­inum. Í Afríku nær hlut­fall þeirra sem fengið hafa að minnsta kosti annan skammt bólu­efna ekki 3 pró­sentum. Í nokkrum löndum álf­unnar er talið að ný bylgja far­ald­urs­ins sé við það að skella á.

Vegna alls þessa, Delta-afbrigð­is­ins og mis­skipt­ingar í bólu­setn­ingum, má segja að nokkur ringul­reið ein­kenni ferða­tak­mark­anir milli landa í augna­blik­inu. Sum ríki eru að herða aðgerðir á landa­mærum. Önnur að slaka á. Upp­lýs­ing­arnar flæða um fjöl­miðla og erfitt að henda nákvæm­lega reiður á stöð­unni á hverjum tíma. Því er mjög mik­il­vægt að fólk sem hyggur á ferða­lög afli sér allra nýj­ustu upp­lýs­inga áður en ferðir eru bók­aðar og svo aftur áður en lagt er af stað.

60 prósent meira smitandi

Hið umtal­aða Delta-afbrigði hefur herjað á Indland, Nepal, Indónesíu og fleiri lönd með alvar­legum afleið­ingum. Bretland hefur einnig orðið illa úti og hefur af þeim sökum, þrátt fyrir víð­tækar bólu­setn­ingar, lent á rauða list­anum hjá mörgum öðrum ríkjum hvað ferða­lög borg­ar­anna varðar.

Sótt­varna­stofnun Evrópu telur að Delta-afbrigðið sé allt að 60 pró­sent meira smit­andi en önnur afbrigði sem greinst hafa til þessa. Meðal ann­ars í þessu ljósi, og því að enn er víða langt í land að bólu­setn­inga­hlut­fall verði það hátt að hægt sé að tala um hjarð­ó­næmi, er ótt­ast að önnur bylgja far­ald­urs­ins skelli á í Evrópu í haust. Andrea Ammon, fram­kvæmda­stjóri stofn­un­ar­innar, segir að í lok ágúst megi gera ráð fyrir því að yfir 90 pró­sent smita sem grein­ist í álf­unni verði af völdum Delta-afbrigð­is­ins.

Til að bregð­ast við þessu hafa mörg Evr­ópu­lönd hert nú aðgerðir á sínum landa­mærum, sér í lagi gagn­vart ferða­mönnum frá þeim ríkjum þar sem afbrigðið er þegar útbreitt. Og list­inn yfir þau lönd er síbreyti­legur.

Þýska­land er gott dæmi þar um. Þar ákváðu stjórn­völd að grípa til þeirra ráð­staf­ana að setja auknar tak­mark­anir á ferða­lög fólks frá Portúgal og Rúss­landi vegna útbreiðslu Delta-afbrigð­is­ins. Lengri sótt­kví við kom­una var ein aðgerðin. Fyrir höfðu sam­bæri­legar tak­mark­anir verið settar á ferða­lög frá nokkrum öðrum löndum, s.s. Indlandi og Bret­landi. Hins vegar var horfið að hluta frá þessum aðgerðum að hluta fljót­lega vegna þrýst­ings, m.a. frá Evr­ópu­sam­band­inu.

Almennt þurfa þeir sem eru óbólu­settir og eru koma frá hættu­svæðum að fara í sótt­kví við kom­una til Þýska­lands, en flestir aðeins í fimm daga ef nei­kvæð nið­ur­staða fæst á COVID-prófi að þeim tíma liðnum.

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, segir að ríki Evr­ópu­sam­bands­ins ættu að sam­ein­ast um aðgerðir til að sporna gegn útbreiðslu afbrigð­is­ins skæða.

Gulur, rauður, grænn …

Enda var það hug­myndin. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur mælst til þess að bólu­settum (frá ákveðnum löndum) sé leyft að ferð­ast að mestu hömlu­laust til ríkja sam­bands­ins. Þessi til­mæli hafa þó enn ekki raun­gerst almennt enda fylgdi þeim á sínum tíma sá var­nagli að ef ný afbrigði kæmu fram þyrfti að vera hægt að bregð­ast hratt við og setja í bremsu á ný.

Enn geta bólu­settir því átt von á að sæta ákveðnum tak­mörk­unum – sér í lagi ef þeir eru að koma frá svæðum sem ekki eru skil­greind sem „græn“. Staða far­ald­urs í heima­landi er því enn lyk­il­at­riði þegar kemur að ferða­frelsi bólu­settra.

Annað atriði sem skiptir máli þegar kemur að ferða­lögum er hvaða bólu­efni fólk hefur fengið. Flest miða ESB-ríki við lista yfir bólu­efni sem Lyfja­stofnun Evrópu hefur sam­þykkt. Ákvörð­un­ar­vald hvað þessi mál varðar liggur hjá hverju aðild­ar­ríki ESB fyrir sig og ljóst að sam­flotið í fram­kvæmd­inni, sem Merkel hefur mælst til að verði tekið upp, er að minnsta kosti ekki enn að fullu í höfn.

Hert og slakað

Stjórn­völd í Noregi hafa til að mynda ákveðið að fresta að mestu frek­ari aflétt­ingum á landa­mær­unum til að freista þess að koma í veg fyrir útbreiðslu Delta-afbrigð­is­ins. Þeirra er nú ekki að vænta fyrr en í lok júlí eða byrjun ágúst.

Finnsk stjórn­völd hertu aðgerðir á landa­mærum sínum í vik­unni. Skilyrði fyrir því að lönd geti talist „græn“, og minni hömlur þar með á ferða­lögum þaðan, voru hert. Miðað við hinar nýju reglur telj­ast aðeins ell­efu Evr­ópu­ríki „græn“.

Belgar eru að íhuga að herða reglur, m.a. fyrir ferða­menn frá Portúgal, þar sem sýk­ingum af völdum Delta-afbrigð­is­ins hefur fjölgað ört síð­ustu daga.

Í Grikk­landi er hins vegar önnur stefna uppi á ten­ingnum. For­sæt­is­ráð­herr­ann segir ekki þörf á hertum aðgerðum, jafn­vel ekki frá svæðum þar sem Delta-afbrigðið er útbreitt. Hann segir að eina lausnin í bar­átt­unni við hið nýja afbrigði sé að hraða bólu­setn­ingum.

Ferðalög til ann­arra heims­álfa en Evrópu gætu líka verið ákveðnum vand­kvæðum bundin. Ástralía var fljót að skella í lás þegar Delta-afbrigðið hóf að dúkka upp. Þar hafa frá upp­hafi far­ald­urs­ins strangar tak­mark­anir verið á landa­mær­unum. Útgöngu­bann var sett á nýverið, m.a. í Sydney, vegna hóp­sýk­inga.

[adspot]

Ísraelar sem tóku for­ystu í bólu­setn­ingum í byrjun árs en hefur átt í erf­ið­leikum með að sann­færa ungt fólk um kosti þess að fara í sprautu. Nú er Delta-afbrigðið mætt og farið að grein­ast í auknum mæli og því hefur aftur verið tekin upp grímu­skylda inn­an­dyra auk ann­arra gam­al­kunn­ugra sótt­varna­að­gerða. Þetta var gert eftir að yfir 100 ný smit höfðu greinst dag­lega í fjóra daga sam­fleytt.

Í augna­blik­inu er staðan einna verst í Indónesíu þar sem útbreiðsla veirunnar hefur auk­ist skyndi­lega. Ferða­mönnum hefur fjölgað veru­lega í rík­inu og með þeim hefur Delta-afbrigðið náð að stinga sér niður. Útgöngu­bann er á tveimur eyjum: Balí og Jövu.

Greiðari leið með þeim græna

Græni pass­inn svo­kall­aði, staf­rænt vott­orð sem auð­velda á íbúum ESB og EFTA-ríkja að ferð­ast, var tek­inn í notkun um mán­aða­mótin. Í hinum raf­ræna passa eru vistaðar upp­lýs­ingar um bólu­setn­ingar, vott­orð um COVID-sýk­ingu og/eða nið­ur­stöðu úr PCR-prófi. Ísland er eitt fjórtán landa sem taka þátt í sér­stöku til­rauna­verk­efni með þessa sam­ræmdu leið. Passinn er QR-kóði sem við­kom­andi ferða­maður sýnir á landa­mærum. Hins vegar veitir hann ekki algjört ferða­frelsi og gæta þarf að því, áður en lagt er af stað í ferða­lög, hvaða reglur gilda á áfanga­stað.

Ertu að íhuga ferða­lag? Hér er upp­lýs­inga­síða Embættis land­læknis, hér er svo hægt að nálg­ast kort sem sýnir gild­andi ferða­tak­mark­anir hvers lands fyrir sig. Hér er að finna kort ESB af lita­kóða hvers lands Evrópu fyrir sig. Hér er hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um Græna pass­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár