Himinn og djúpt haf á milli landa í bólusetningum

Dökk mynd blasir við þegar heimskortið er skoðað með til­liti til bólu­setn­inga. 80 pró­sent bólu­efna hafa farið til rík­ari þjóða heims og aðeins um 1 pró­sent til þeirra fátæk­ustu. Ný bylgja far­ald­urs­ins er skollin á í nokkrum Afr­íku­ríkjum.

Móðir tekur við nauðsynjum frá starfsmanni UNICEF á Fílabeinsströndinni.
Móðir tekur við nauð­synjum frá starfs­manni UNICEF á Fíla­beins­strönd­inni. Mynd: UNICEF

Meiri­hluti íbúa fátæk­ustu ríkja heims þarf að bíða í tvö ár til við­bótar eftir að fá bólu­setn­ingu gegn COVID-19. Þannig er staðan jafn­vel þótt að átak hafi verið gert til að dreifa bólu­efnum um alla heims­byggð­ina.

Nokkur ríki skáru sig frá upp­hafi úr þegar kom að bólu­setn­ingum, m.a. Ísrael, vegna ein­staks samn­ings við lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer, og olíu­ríkin á Arab­íu­skaga; Barein og Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin. Í þessu kapp­hlaupi skipti ekki aðeins máli að ná góðum samn­ingum, með pen­inga að vopni fljótt og vel, heldur einnig hvaða bólu­efni samið var um. Þannig hafa bólu­efni frá Kína m.a. verið notuð í bólu­setn­ingu í Mið-Aust­ur­löndum, efni sem ekki hafa hlotið náð fyrir lyfja­stofn­unum alls staðar í heim­inum. Lyfja­stofnun Bret­lands gaf t.d. út mark­aðs­leyfi fyrir bólu­efni Pfizer-BioNTech þremur vikum áður en lyfja­stofnun Evrópu gerði slíkt hið sama.

[adspot]

Í sumum til­vikum var veðjað á rangt bólu­efni ef svo má segja. Samn­ing­arnir voru flestir gerðir áður en fram­leiðsla efn­anna hófst og hjá sumum fram­leið­endum hefur hún taf­ist, jafn­vel veru­lega, sem sett hefur strik í áætl­anir.

En í grunn­inn er ljóst að pen­ingar og völd eru stærsta ástæða þess að sum ríki hafa náð hjarð­ó­næmi á meðan önnur hafa setið eftir. Það verður aug­ljóst þegar heimskortið er skoðað með til­liti til stöðu bólu­setn­inga.

Til að bólu­setja um 70 pró­sent jarð­ar­búa þarf í kringum 11 millj­arða skammta af bólu­efni. Um helg­ina hafði ein­ungis 3,2 millj­örðum verið dreift og með sama áfram­haldi verða um sex millj­arðar skammta komnir í dreif­ingu í lok árs­ins.

Yfir 80 pró­sent af þeim skömmtum sem hefur verið dreift hafa farið til ríkja þar sem með­al­tekjur íbú­anna eru háar. Í heild hefur tæp­lega fjórð­ungur mann­kyns fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni. Enn hefur aðeins um 1 pró­sent íbúa fátæk­ari ríkja verið bólu­sett með einum skammti eða tveimur. Sem dæmi eru yfir 75 pró­sent full­orð­inna á Íslandi full­bólu­sett á meðan um tvö pró­sent íbúa Úganda hafa fengið annan skammt­inn eða báða. Á Íslandi hafa yfir 435 þús­und skammtar verið gefnir en í Úganda, þar sem um 45 millj­ónir manna búa, um 990 þús­und skammtar.

Full­trúar sjö fremstu iðn­ríkja heims (G7-ríkj­anna) hétu því nýverið að gefa fleiri skammta til fátæk­ari ríkja en þeir höfðu áður skuld­bundið sig til. Það mun þó ekki breyta því að meiri­hluti heims­byggð­ar­innar verður ekki bólu­settur gegn COVID-19 fyrr en árið 2023.

Ljón í vegi bóluefna á leið til Afríku

Hið alþjóð­lega COVAX-sam­starf, sem Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin kom á, hefur orðið fyrir ýmsum skakka­föllum frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Önnur bylgja far­ald­urs­ins á Indlandi varð m.a. til þess að Ind­verjar hættu öllum útflutn­ingi bólu­efna tíma­bundið en þar í landi eru um sex af hverjum tíu skömmtum bólu­efna heims­ins fram­leiddir. Ind­verjar sömdu við AstraZeneca um fram­leiðslu á bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins og til stóð að um 400 millj­ónir skammta færu inn í COVAX-sam­starfið. Þær áætl­anir hafa engan veg­inn stað­ist og aðeins um 28 millj­ónir skammta af AstraZeneca hafa endað í fátæk­ari ríkjum sam­kvæmt þessu sam­komu­lagi.

Fleira hefur sett strik í reikn­ing COVAX, m.a. útflutn­ings­hömlur í bæði Banda­ríkj­unum og innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Ekki aðeins hafa ríkin sett fram­leiðslu á bólu­efnum fyrir íbúa innan sinna landa í algjöran for­gang heldur hafa einnig verið settar á tak­mark­anir á útflutn­ing ýmissa nauð­syn­legra hrá­efna til bólu­efna­fram­leiðslu.

Samkvæmt COVAX-sam­komu­lag­inu var stefnt að því að dreifa um tveimur millj­örðum bólu­efna­skammta til fátæk­ari ríkja fyrir árs­lok. Í mars var samið um kaup á 1,1 millj­arði skammta og nú hljóða samn­ingar upp á 2,4 millj­arða. Í byrjun júlí var þó aðeins búið að dreifa 95 millj­ónum skammta í gegnum COVAX.

Óttast er að bylgja far­ald­urs­ins sé nú í upp­sigl­ingu í Afríku en þar eru mörg af fátæk­ustu ríkjum heims. Í flestum þeirra er ekki hægt að slá nokkru föstu um útbreiðsl­una út frá opin­berum tölum um t.d. sýna­tökur eða dán­ar­tíðni líkt og á Vest­ur­löndum. Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin segir að mörg Afr­íku­lönd glími nú við þriðju bylgju far­ald­urs­ins og segir að í Austur-Kongó hafi smitum lík­lega fjölgað um 40 pró­sent á einni viku í júní. Sam­ein­uðu þjóð­irnar segja að á þremur vikum hafi smit­fjöld­inn tvö­fald­ast í álf­unni.

[adspot]

Ein vís­bend­ing sem stuðst er við í þess­ari grein­ingu er sú að sjúkra­hús og heilsu­gæslu­stöðvar eru víða skyndi­lega orðnar yfir­fullar af sjúk­lingum. Í upp­hafi far­ald­urs­ins voru ýmsar vanga­veltur um af hverju svo fáir virt­ust smit­ast af veirunni – og deyja – í mörgum Afr­íku­ríkjum. Burt séð frá veik­byggðum heil­brigð­is­kerfum voru kenn­ingar á lofti um að flestar þjóð­anna væru hlut­falls­lega ungar. Önnur kenn­ing var sú að Afr­íku­búar væru margir hverjir mikið undir berum himni lung­ann úr deg­inum. Sú þriðja var sú að mögu­lega hefðu aðrar pestir, sem aðal­lega eru bundnar við hita­beltið, skapað ónæmi.

Skiptir alla jarðarbúa máli

Aðrir voru á því að veiran myndi stinga sér þar niður og það af krafti síðar. Nú, þegar hið nýja og bráðsmit­andi Delta-afbrigði er að verða ofan á, er það einmitt að verða raunin. Afbrigðið hefur nú greinst í að minnsta kosti sextán Afr­íku­ríkjum. Það er talið um 60 pró­sent meira smit­andi en fyrri afbrigði og leggj­ast á unga jafnt sem aldna. Þótt ungir veik­ist síður alvar­lega er alltaf hætta á slíku þegar hlut­falls­lega margir hafa smit­ast.

Sér­fræð­ingar, bæði íslenskir og erlendir, hafa marg­sinnis bent á að nauð­syn­legt sé að ná hjarð­ó­næmi um allan heim til að kveða far­ald­ur­inn í kút­inn. Á meðan mik­ill meiri­hluti mann­kyns er enn útsettur fyrir veirunni er mikil – og raun­veru­leg – hætta á því að hættu­legri ný afbrigði komi fram á sjón­ar­sviðið. Það gæti valdið skæðum far­aldri í við­kom­andi löndum með alvar­legum veik­indum margra og dauða. Slík afbrigði geta svo einnig ógnað heilsu bólu­settra þar sem vörn bólu­efna kann að verða minni gegn nýjum veiru­af­brigðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár