Áhuginn á að festa vexti íbúðalána eykst

Seðla­banka­stjóri mælti nýlega með því að fólk myndi festa vexti á óverð­tryggðum hús­næð­is­lánum. Bank­arnir hafa und­an­farið orðið varir við auk­inn áhuga almenn­ings á því að festa vext­ina.

Almenn­ingur sýnir því auk­inn áhuga að festa vexti óverð­tryggðra hús­næð­is­lána eftir að vextir Seðla­bank­ans juk­ust í vor og umræðu þar sem seðla­banka­stjóri mælti með því að festa vexti. Þetta kemur fram í svörum þriggja stærstu bank­anna, Arion banka, Lands­bank­ans og Íslands­banka.

Engar reglur eru hjá Seðla­bank­anum varð­andi form­legar ráð­legg­ingar til almenn­ings.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á bank­ana þrjá og spurði hvort starfs­fólk þeirra hefði orðið vart við aukn­ingu á umsóknum um að festa vexti í fram­haldi af ráð­legg­ingum seðla­banka­stjóra.

Í svari Arion banka kemur fram að í hvert sinn sem umræðan um fasta vexti fer á flug verði þau vör við slíka aukn­ingu og sé það engin und­an­tekn­ing í þetta sinn. „Við gefum ekki upp nákvæm­lega hversu mikil sú aukn­ing hefur verið,“ segir í svar­inu.

Samkvæmt Lands­bank­anum hefur orðið aukn­ing á beiðnum um að festa vexti íbúða­lána. „En áhug­inn jókst þegar Seðla­bank­inn til­kynnti um stýri­vaxta­hækkun þann 19. maí.“

Íslands­banki hefur ekki upp­lýs­ingar á reiðum höndum um nákvæma töl­fræði en segir að nokkur aukn­ing hafi orðið á fyr­ir­spurnum um fasta vexti almennt að und­an­förnu. Tölur um umsóknir um að festa vexti fást ekki fyrr en við birt­ingu upp­gjörs ann­ars árs­fjórð­ungs þann 28. júlí næst­kom­andi.

Verðbólgan reyndist meiri og þrálátari en áður var spáð

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands hækk­uðu um 0,25 pró­sentu­stig í maí síð­ast­liðnum og urðu 1 pró­sent. Þetta var í fyrsta skipti frá árinu 2018 sem pen­inga­stefnu­nefnd ákvað að hækka vexti. Síðan þá hafa þeir ýmist lækkað eða staðið í stað, úr 4,5 pró­sentum niður í 0,75 pró­sent.

Í til­kynn­ingu bank­ans frá 19. maí kom fram að efna­hags­horfur hefðu batnað frá fyrri spám og vægi þar þyngst vís­bend­ingar um meiri bata inn­lendrar eft­ir­spurnar. „Atvinnu­leysi hefur hjaðnað þótt það sé enn mikið. Slakinn í þjóð­ar­bú­skapnum virð­ist því vera minni og útlit er fyrir að hann hverfi fyrr en áður var talið.“

Hins vegar hefði verð­bólga reynst meiri og þrá­lát­ari en áður var spáð, meðal ann­ars vegna fram­boðs­trufl­ana í heims­hag­kerf­inu í kjö­far far­sótt­ar­innar, en alþjóð­legt olíu- og hrá­vöru­verð hefði einnig hækkað mikið und­an­farið.

Nefndin nefndi einnig áhrif geng­is­lækk­unar krón­unnar í fyrra á verð­vísi­töl­una, sem og miklar hækk­anir launa og hús­næð­is­verðs. Því væri nauð­syn­legt að hækka vexti bank­ans til þess að tryggja kjöl­festu verð­bólgu­vænt­inga í verð­bólgu­mark­mið­inu.

„Ef ég ætti að gefa fólki ráð þá væri það að festa vexti“

Athygli vakti í byrjun júlí þegar Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri mælti með því í hlað­varps­þætti Snorra Björns­sonar að fólk festi vexti á hús­næð­is­lánum sínum.

Hann sagði í við­tal­inu að það hefði komið honum á óvart að ekki fleiri væru að festa vexti. „Mögulega ætti ég að vera skýr­ari um það að ég mæli með að fólk festi,“ sagði hann. „Ef ég ætti að gefa fólki ráð þá væri það að festa vexti. Ég sjálfur geri mér ekki nákvæm­lega grein fyrir hvað er að fara að ger­ast í kerf­inu. Það er svo margt sem getur gerst. Ég bara veit það að við nátt­úr­lega hljótum að þurfa að hækka vext­ina. Vext­irnir voru óvenju­lega lágir út af þessum far­aldri.“

Ásgeir benti á að ákveðið öryggi feng­ist með bind­ingu vaxta. „Þá veistu hvað þú þarft að borga nokkurn veg­inn í þrjú eða fimm ár, eftir því hvernig það er. Ef fólk vill fá öryggi þá er betra að festa vexti, en svo hefur fólk líka val um breyti­lega vexti en þeir munu að ein­hverju leyti elta vexti Seðla­bank­ans.“

Kjarninn sendi jafn­framt fyr­ir­spurn á Seðla­bank­ann og spurði hvort ein­hverjar reglur væru hjá bank­anum varð­andi form­legar ráð­legg­ingar frá honum eða seðla­banka­stjóra til fólks um hvernig hús­næð­is­lán sé best að taka. Svarið við spurn­ing­unni var ein­falt: „Nei.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

peningamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár