Kvartar vegna þess að fjölmiðlanefnd hefur ekki skráð hlaðvarp sitt sem fjölmiðil

Fram­kvæmda­stjóri vefs­ins fot­bolti.net hefur sent kvörtun til umboðs­manns Alþingis vegna hlað­varps fjöl­miðla­nefndar. Hann segir nefnd­ina vera komna í sam­keppni um efni við fjöl­miðla sem hún veitir eft­ir­lit og þar með komna langt út fyrir sitt hlut­verk.

Samkvæmt leiðbeiningum fjölmiðlanefndar um skráningu hlaðvarpa til nefndarinnar eru hlaðvörp ríkisstofnanna ekki fjölmiðlar.
Samkvæmt leið­bein­ingum fjöl­miðla­nefndar um skrán­ingu hlað­varpa til nefnd­ar­innar eru hlað­vörp rík­is­stofn­anna ekki fjöl­miðlar. Mynd: Pexels

Hafliði Breið­fjörð, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri vefs­ins fot­bolti.net, hefur sent kvörtun til umboðs­manns Alþingis vegna þess að fjöl­miðla­nefnd hefur ekki skráð hlað­varp sitt sem fjöl­miðil til fjöl­miðla­nefndar. Efni kvört­un­ar­innar er eft­ir­far­andi: „Fjöl­miðla­nefnd sem hefur það hlut­verk að hafa eft­ir­lit með fjöl­miðlum hefur stofnað sinn eigin fjöl­miðil í hlað­varpi sem er út fyrir hennar hlut­verk. Nefndin hefur ekki sinnt skyldum sínum að skrá þann fjöl­miðil hjá Fjöl­miðla­nefnd.“

Í rök­stuðn­ingi sem fylgir kvörtun Hafliða segir að fjöl­miðla­nefnd hafi í maí ráðið til starfa starfs­mann sem komi úr fjöl­miðla­geir­anum, starfs­mann sem haldi úti hlað­varpi í nafni nefnd­ar­innar. „Með þessu er nefndin komin í sam­keppni um efni við fjöl­miðla sem hún á að veita eft­ir­lit og þar með komin langt út fyrir sitt hlut­verk,“ segir í kvörtun Hafliða sem Kjarninn hefur fengið afrit af.

Hafliði segir í kvörtun sinni að fjöl­miðla­nefnd hafi ekki fylgt sínum eigin skila­boðum um að slík hlað­vörp skuli vera skráð hjá nefnd­inni. „Ljóst er að starfs­maður sá er heldur úti hlað­varp­inu fyrir hönd Fjöl­miðla­nefndar hefur atvinnu hjá nefnd­inni og þar með er skýrt í reglum nefnd­ar­innar að skrá skuli hlað­varpið sem fjöl­miðil á vef hennar. Ef nefndin hefði farið eftir eigin skila­boðum hvað þetta varðar þá hefði hún sett for­dæmi og verið fyrsta hlað­varpið á skrá hjá Fjöl­miðla­nefnd.“

Nýtt hlaðvarp fjölmiðlanefndar í loftið í gær

Fjöl­miðla­nefnd til­kynnti á vef sínum í síð­ari hluta maí að Skúli Bragi Geirdal hefði verið ráð­inn sem verk­efna­stjóri hjá fjöl­miðla­nefnd. Skúli er fjöl­miðla­fræð­ingur að mennt en hann vann áður við dag­skrár­gerð hjá N4 á Akureyri. Í til­kynn­ing­unni sagði að Skúli myndi ann­ast verk­efni sem tengj­ast miðla­læsi og gerð nýrrar miðla- og upp­lýs­inga­læs­is­stefnu, ásamt fram­kvæmda­á­ætlun.

Í gær birt­ist svo frétt á vef fjöl­miðla­nefndar þar sem nýtt hlað­varp nefnd­ar­innar, Fjórða valdið, var kynnt til leiks. Í fyrsta þætti ræðir Skúli við Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor í stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, en hann hefur rann­sakað fals­fréttir og upp­lýs­inga­óreiðu.

Nýja hlaðvarpið verður ekki skráð

Í sam­tali við Kjarnann segir Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar, að ekki standi til að skrá hlað­varpið sem fjöl­miðil, enda sé hlað­varpið ekki fjöl­mið­ill. Hún vísar í þessu sam­bandi á leið­bein­ingar um skrán­ingu hlað­varpa hjá fjöl­miðla­nefnd sem finna má á vef nefnd­ar­innar. Þar kemur fram til hvaða þátta er horft þegar meta á hvort hlað­varp skuli skráð sem fjöl­mið­ill. Meðal þess sem horft er til er hvort að fjár­hags­legur ávinn­ingur sé af rekstri hlað­varps og hvort hlað­varpi sé miðlað í atvinnu­skyni. Það sé ekki til­gangur hlað­varps fjöl­miðla­nefndar, líkt og Elfa bendir á. [links]

Þá skiptir máli hver miðli efni hlað­varps en í leið­bein­ingum segir að hlað­vörp rík­is­stofn­ana og stétt­ar­fé­laga myndu til dæmis ekki telj­ast skrán­ing­ar­skyld en fjöl­miðla­nefnd er sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd sem heyrir undir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Elfa segir það sama gilda um hlað­vörp stofn­ana og vefi þeirra, þó svo að stofn­anir og stétt­ar­fé­lög haldi úti vef­síðum þar sem fréttum af starfi þeirra sé miðlað, þá séu vef­irnir ekki skil­greindir sem fjöl­miðlar.

Fjöl­miðla­nefnd hefur óskað eftir því að nokkur hlað­vörp skrái sig sem fjöl­miðil hjá nefnd­inni, líkt og Kjarninn fjall­aði um í nóv­em­ber í fyrra. Þá höfðu í það minnsta þrír stjórn­endur íslenskra hlað­varps­þátta fengið bréf frá nefnd­inni þar sem þess var óskað að hlað­vörpin skráðu sig form­lega sem fjöl­miðla. Þá, líkt og nú, var ekk­ert hlað­varp á lista yfir fjöl­miðla sem fjöl­miðla­nefnd heldur utan um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár