Enn mikil hætta á stórum bylgjum

Á Íslandi er rúmur helm­ingur allra full­orð­inna orð­inn full­bólu­settur. Á Indlandi eru innan við 5 pró­sent íbú­anna í sömu stöðu. Enn er því hætta á stórum bylgjum far­ald­urs­ins á Indlandi og víðar og þar með frek­ari þróun nýrra afbrigða.

Reynt hefur verið að hraða bólusetningum á Indlandi en þar býr um milljarður manna.
Reynt hefur verið að hraða bólu­setn­ingum á Indlandi en þar býr um millj­arður manna. Mynd: EPA

Hópur um fjöru­tíu sér­fræð­inga telja lík­legt að þriðja bylgja COVID-19 muni skella á Indlandi í októ­ber. Þó að hún verði ekki jafn skæð og sú sem nú er að ganga niður þar sem bólu­setn­ingar eru hafnar af meiri þunga, segja þeir líkur á að sjúk­dóm­ur­inn muni ógna lýð­heilsu Indverja í að minnsta kosti ár í við­bót.

[links]Þetta er nið­ur­staða sam­an­tektar frétta­stof­unnar Reuters á svörum um fjöru­tíu sér­fræð­inga úr ýmsum geirum, svo sem lækna, vís­inda­manna, veiru­fræð­inga og far­alds­fræð­inga um hvað koma skuli á næstu mán­uðum hvað varðar heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar. Sér­fræð­ing­arnir eru flestir sam­mála um að bólu­setn­ingar eigi eftir að veita skjól fyrir meiri­háttar hóp­sýk­ingum. Þeir sem á annað borð vildu spá í fram­tíð­ina töldu flestir að næsta bylgja far­ald­urs­ins myndi skella á Indlandi í októ­ber. Landið hefur orðið sér­lega illa úti í far­aldr­inum sem rekja má m.a. til óvar­legra orða og aðgerða stjórn­mála­manna sem urðu til þess að skapa falskt öryggi meðal almenn­ings. Hins vegar verður næsta bylgja þar í landi ekki jafn skæð og þær fyrri vegna bólu­setn­ing­anna.

[adspot]

Á Indlandi hefur í nýj­ustu bylgj­unni krist­all­ast þær brotala­mir sem eru í heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerfi Indlands, öðru fjöl­menn­asta ríki heims. Líkt og fleiri lönd þar sem fátækt er útbreidd og mis­skipt­ing gríð­ar­leg fóru bólu­setn­ingar hægt af stað og þegar gríð­ar­legur fjöldi smita, aðal­lega af bráðsmit­andi afbrigði veirunnar sem nú er kallað Delta, bók­staf­lega hrundi heil­brigð­is­kerfið. Fólk kafn­aði á heim­ilum sínum, á götum úti eða á bið­stofum sjúkra­húsa þar sem súr­efni var uppurið. Fleira kom til, m.a. við­var­andi lyfja­skortur af ýmsu tagi.

Þó að bólu­setn­ing­ar­á­tak sé nú hafið er aðeins talið að búið sé að bólu­setja innan við 5 pró­sent íbú­anna sem eru um 950 millj­ónir. Til sam­an­burðar er rúm­lega helm­ingur full­orð­inna á Íslandi nú full­bólu­settur. Það eru því millj­ónir á millj­ónir ofan sem enn hafa enga vörn gegn veirunni á Indlandi.

Sér­fræð­ing­arnir sem Reuters ræddi við telja af þessum sökum nauð­syn­legt að fara mjög var­lega í allar aflétt­ingar á sam­komu­tak­mörk­unum í land­inu.

Alþjóða heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) greindi frá því í gær að Delta-afbrigðið, sem fyrst upp­götv­að­ist á Indlandi, sé að verða útbreiddasta afbrigði kór­ónu­veirunnar í heim­inum. Fjöldi smit­aðra af völdum þess hefur tvö­fald­ast í Bret­landi milli vikna og þýsk yfir­völd lýsa áhyggjum af þró­un­inni þar í landi. Rússar eru í sömu sporum og auk­inn smit­fjöldi í Moskvu síð­ustu daga er af völdum þessa sama afbrigðis. Stjórn­völd á Indlandi og víðar hafa lýst yfir gríð­ar­legum von­brigðum með að nýtt bólu­efni gegn COVID-19, sem fram­leitt er af þýska lyfja­fyr­ir­tæk­inu CureVac, hafi komið illa út úr nýj­ustu rann­sóknum og veiti aðeins tæp­lega 50 pró­sent vörn gegn sýk­ingu af völdum veirunnar. Þetta gæti haft slæmar afleið­ingar fyrir ríki þar sem bólu­setn­ingar eru mjög stutt á veg komnar, m.a. á Indlandi.

Horft hafði verið til þess að bólu­efnið gæti fyllt það skarð sem mynd­að­ist þegar ald­urs­mörk voru sett á notkun bólu­efna Johnson&Johnson og AstraZeneca. Evr­ópu­sam­bandið hafði tryggt sér með samn­ingum um 405 millj­ónir skammta af bólu­efni CureVac. Eins og við var að búast hrundi mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins eftir að hinar dap­ur­legu nið­ur­stöður klínísku rann­sókn­anna lágu fyrir. Flest smitin sem greindust í hópi þátt­tak­enda í rann­sókn­inni voru af hinum nýrri og meira smit­andi afbrigðum veirunnar. Það virð­ist virka betur á yngri ald­urs­hópa en þá eldri. Hvort að skýr­ingin á van­virkn­inni felist í hinum nýju afbrigðum, sem voru ekki komin fram á sjón­ar­sviðið þegar önnur bólu­efni voru á til­rauna­stigi, á enn eftir að koma í ljós.

Bólu­efnið er af svip­uðum toga og bólu­efni Pfizer og Moderna og byggir á hinni lítt reyndu MRNA-tækni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár