Delta-afbrigðið á fleygiferð á Bretlandseyjum

Til­fellum af COVID-19 fjölg­aði um 50 pró­sent í Bret­landi á einum mán­uði frá 5. maí til 7. júní. Smitum af völdum Delta-afbrigð­is­ins svo­kall­aða fjölg­aði um tæp 80 pró­sent milli vikna. Ný bylgja segja sumir en aðrir benda á að hún verði aldrei skæð.

Kona gengur fram hjá minningarvegg um fórnarlömb COVID-19 í London.
Kona gengur fram hjá minn­ing­ar­vegg um fórn­ar­lömb COVID-19 í London. Mynd: EPA

Smitum af Delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar fjölgar enn hratt í Bret­landi. Á einni viku greindust tæp­lega 34 þús­und til­felli og var aukn­ingin því um 78 pró­sent á milli vikna. Í heild hafa nú tæp­lega 76 þús­und manns þar í landi greinst með afbrigðið sem upp­götv­að­ist fyrst á Indlandi og er mun meira smit­andi en önnur og jafn­vel talið hættu­legra. Um miðjan júní höfðu rúm­lega 800 manns í Bret­landi þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús vegna sýk­ingar af völdum Delta-afbrigð­is­ins. Af þeim var mik­ill meiri­hluti, eða um 65 pró­sent, óbólu­settur. 84 voru full­bólu­settir en í fréttum bæði Guardian og BBC segir ekki ljóst hversu löngu eftir síð­ari sprautu þeir greindust.

[adspot]

Yfirvöld bjóða nú öllum, átján ára og eldri, að bóka tíma í bólu­setn­ingu. Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, segir þar með stórum áfanga náð, innan við 200 dögum eftir að bólu­setn­ing­ar­her­ferðin í land­inu hófst. Á sama tíma er talað um að enn ein bylgja COVID-19 sé í raun hafin – þó að hún verði ekki nándar nærri eins ban­væn og þær fyrri.

„Til­fellum er að fjölga hratt víða um landið og Delta-afbrigðið er ráð­andi,“ hefur Guardian eftir Jenny Harries, fram­kvæmda­stjóra bresku heilsu­stofn­un­ar­innar. Aukn­ingin er að hennar sögn að mestu bundin við yngri ald­urs­hópa. Hún segir góðu frétt­irnar þær að inn­lögnum á sjúkra­hús og dauðs­föllum sé ekki að fjölga í takti við smitin. Bólu­setn­ingar meðal yngra fólks í Bret­landi eru í fullum gangi. Tæplega helm­ingur Breta er nú full­bólu­settur og vel yfir 60 pró­sent hafa fengið að minnsta kosti fyrri skammt bólu­efnis. Staðan nú, líkt og víð­ast hvar í Evrópu, er því allt önnur en síð­asta sumar þegar veiran náði að skjóta sér niður víða yfir sum­ar­tím­ann sem end­aði í stórri bylgju far­ald­urs­ins um haustið.

Til stóð að aflétta sam­komu­tak­mörk­unum í Bret­landi í júní en því var frestað um fjórar vikur eða til 19. júlí. Þrátt fyrir útbreiddar bólu­setn­ingar vör­uðu sér­fræð­ingar, m.a. þeir sem starfa við Imperial College í London, við því að fara of hratt í aflétt­ingar. Ekki síst í ljósi þess að Delta-afbrigðið breidd­ist gríð­ar­lega hratt út og þurrk­aði nán­ast út smit af völdum fyrri afbrigða sem þó voru meira smit­andi en þau sem heims­byggðin glímdi við fyrir ári síðan.

Hvað gerist í haust?

Þýsk yfir­völd sjá fram á svip­aðan vanda og Bretar hafa glímt við vegna hins bráðsmit­andi Delta-afbrigðis. Smitum tók að fjölda á ný í land­inu um miðjan maí sem og inn­lögnum á sjúkra­hús. Sér­fræð­ingar þar í landi hafa minnt á að í Bret­landi hafi þriðj­ungur þeirra sem lagðir hafa verið inn á sjúkra­hús í Bret­landi með COVID af völdum afbrigð­is­ins höfðu fengið að minnsta kosti aðra sprautu bólu­efnis. Um 60 pró­sent íbúa Þýska­lands eru nú bólu­settir og far­alds­fræð­ing­ur­inn og þing­mað­ur­inn Karl Lauterbach segir enga ástæðu til að ótt­ast hið versta – að minnsta kosti ekki ennþá. Hann hefur þó áhyggjur af haustinu og óbólu­settum hópum, m.a. börnum.

Danir ákváðu í gær að hefja bólu­setn­ingar meðal barna á aldr­inum 12-15 ára síðar á þessu ári. Skiptar skoð­anir eru um þá ákvörðun meðal sér­fræð­inga sem sumir vilja bíða og sjá nið­ur­stöður frek­ari rann­sóknar áður en slík her­ferð hefst. Í flestum löndum er enn miðað við sextán eða átján ára aldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár