Hafa áhyggjur af Delta-afbrigðinu og fresta afléttingu vegna aukins smits

Fyr­ir­hug­aðri aflétt­ingu á sam­komu­tak­mörk­unum á Englandi hefur verið frestað um fjórar vikur. For­sæt­is­ráð­herra Breta segir að tveir þriðju full­orð­inna í land­inu og allir yfir fimm­tugu verði full­bólu­settir þann 19. júlí.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir að komast megi hjá þúsundum dauðsfalla með því að fresta afléttingu samkomutakmarkana á Englandi.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, segir að kom­ast megi hjá þús­undum dauðs­falla með því að fresta aflétt­ingu sam­komu­tak­mark­ana á Englandi. Mynd: EPA

Aflétt­ing á sam­komu­tak­mörk­unum á Englandi, sem fyr­ir­hugað var að tæki gildi á mánu­dag eftir viku, verður frestað um fjórar vikur hið minnsta vegna auk­ins fjölda greindra smita. Samkvæmt tölum frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum hafði fjöldi nýgreindra smita lækkað jafnt og þétt það sem af er ári og var 7 daga hlaup­andi með­al­tal fyrir fjölda dag­legra smita komið niður í um tvö þús­und í byrjun maí. Síðan þá hefur fjöld­inn leitað upp á við og á síð­ustu dögum hafa á bil­inu sjö til átta þús­und ein­stak­lingar greinst smit­aðir af COVID-19 á degi hverjum.

For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Boris Johnson, sagði á blaða­manna­fundi sem hald­inn var síð­degis í dag að Bretar væru betur varðir gegn veirunni með hverjum deg­inum sem líður þökk sé bólu­setn­ingum. Enn væru þó stórir hópar óbólu­settir. Hann sagði að stefnan væri sett á að þann 19. júlí næst­kom­andi yrðu allir Bretar yfir fimm­tugu komnir með báða skammta bólu­efnis sem og allir sem telj­ast til við­kvæmra hópa. Enn fremur sagði hann að allir full­orðnir yrðu búnir að fá fyrri skammt bólu­efnis 19. júlí og að tveir þriðju full­orð­inna yrðu búnir að fá báða skammta ef fram fer sem horfir.

Fram kom í máli for­sæt­is­ráð­herr­ans að vegna fyrri aflétt­ingar hefði verið fyr­ir­séð að smitum myndi fjölga á vor­mán­uðum. Fjöldi smita hefði hins vegar verið meiri að und­an­förnu heldur en spár höfðu gert ráð fyrir og að hið svo­kall­aða Delta afbrigði ylli áhyggjum. Því þyrfti að fresta boð­aðri aflétt­ingu. Betra væri að halda áfram af var­kárni og fresta aflétt­ingu sam­komu­tak­mark­ana heldur en að þurfa að grípa til harð­ari aðgerða síðar meir, sagði Boris. Komast mætti hjá þús­undum dauðs­falla með því að halda í núgild­andi tak­mark­anir sam­hliða frek­ari bólu­setn­ingum.

Verðandi brúðhjón geta vel við unað...

Boris tók sér­stak­lega fram að fleiri en 30 gestir mættu koma saman í brúð­kaups­veislum en veislu­gestir þyrftu eftir sem áður að halda fjar­lægð hver frá öðrum. Í umfjöllun BBC um sam­komu­tak­mark­anir er sagt frá því að fjöldi brúð­hjóna hafi þurft að slá brúð­kaupum og -veislum á frest vegna far­ald­urs­ins og í sumum til­fellum oft.

Sérstök hags­muna­sam­tök sem starfa í þágu brúð­kaups­geirans, the UK Weddings Taskforce, metur það sem svo að um 50 þús­und brúð­kaup hafi verið skipu­lögð á tíma­bil­inu sem fram­leng­ing sam­komu­tak­mark­ana nær til. Verðandi brúð­hjón, sem og fólk í fag­inu, getur því tekið gleði sína á ný vegna nýj­ustu vend­inga.

...en næturklúbbaeigendur ekki

Samkvæmt hags­muna­sam­tökum sem starfa í þágu næt­ur­lífs­ins, the Night Time Industries Association, hafa næt­ur­klúbba­eig­endur varið millj­ónum punda í að búa sig undir fyr­ir­hug­aða opnun sem nú hefur verið slegin af borð­inu. Samtökin hyggj­ast hefja mála­rekstur vegna þess að stað­irnir geta ekki opnað að nýju eins og stefnt hafði verið að.

Þá eru krár, barir og veit­inga­staðir taldir fara á mis við um þrjá millj­arða punda, rúm­lega 500 millj­arða króna, vegna fram­leng­ingar á núgild­andi sam­komu­tak­mörk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár