Smitin meðal umsækjenda um alþjóðlega vernd sem dvelja í Hafnarfjarðarbæ

Sjö manns greindust með kór­ónu­veirusmit í gær utan sótt­kvíar. Þeir sem hafa greinst smit­aðir dvelja í hús­næði á vegum Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar og þiggja þjón­ustu frá sveit­ar­fé­lag­inu á grund­velli samn­ings við Útlend­inga­stofnun.

Sjö smit greindust í gær og voru þau öll inn­an sama afmark­aða hóps. Allir voru utan sótt­kvíar. Útlend­inga­stofnun stað­festir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að smitin hafi komið upp meðal umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.

„Þeir sem hafa greinst smit­aðir dvelja í hús­næði á vegum Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar og þiggja þjón­ustu frá sveit­ar­fé­lag­inu á grund­velli samn­ings við Útlend­inga­stofnun,“ segir í svar­inu.

Enn fremur kemur fram hjá stofn­un­inni að smitrakn­ingateymi almanna­varna og Hafn­ar­fjarð­ar­bær grípi til allra nauð­syn­legra ráð­staf­ana til að hefta útbreiðslu smit­anna.

Hópurinn viðkvæmur

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir bindur vonir við að smitið sé afmarkað hjá þessum hópi og að vel gangi að kom­ast fyrir það, að því er fram kemur í frétt RÚV um málið. Ekki er ljóst hvernig fólkið smit­að­ist en hægt er að rekja smitin til smits sem kom upp í Hval­eyr­ar­skóla í Hafn­ar­firði fyrir nokkru, sam­kvæmt RÚV. Ekki sé ljóst hvernig sú veiru­teg­und komst inn í landið, hún hafi ekki greinst á landa­mær­unum.

Hann segir í sam­tali við Frétta­blaðið að honum hafi verið tjáð að stór hluti af þessum hópi vildi ekki bólu­setn­ingu. Um sé að ræða fólk með mis­mun­andi bak­grunn og úr mis­mun­andi menn­ingar­heimum.

„Svo kann að vera að fólk líti svo á að bólu­setn­ing muni breyta þeirri stöðu sem hælis­leit­andi og þannig margt sem spilar þarna inn í. Ég hef svo sem ekk­ert fyrir mér í því en er sagt þetta af þeim sem þekkja til,“ segir Þór­ólfur við Frétta­blaðið.

Þegar hann er spurður hvers vegna hóp­ur­inn sé í for­gangi hvað varðar bólu­setn­ingu þá segir hann að það sé meðal ann­ars vegna þess að upp hefði komið hóp­sýk­ing meðal hælis­leit­enda á síð­asta ári og þar sem hóp­ur­inn sé við­kvæmur og þurfi á fé­lags­þjón­ustu að halda.

Boðaðir í bólusetningu í dag og eftir helgi

Kjarninn greindi frá því í des­em­ber í fyrra að COVID-19 smit hefðu komið upp meðal umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í des­em­ber á síð­asta ári. Um var að ræða ein­stak­linga sem dvöldu í þjón­ustu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar í hús­næði með íbúðum fyrir fjöl­skyldur. Þá var aðstaða Útlend­inga­stofn­unar á Grens­ás­vegi gagn­rýnd en þá töldu þeir sem þar dvöldu að stofn­unin bryti

Samkvæmt svörum frá Útlend­inga­stofnun voru umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sem dvelja í Reykja­nesbæ boð­aðir í bólu­setn­ingu í dag en þeir sem dvelja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa verið boð­aðir í bólu­setn­ingu eftir helgi. Tekið er fram í svar­inu að bólu­setn­ingar séu á for­ræði heil­brigð­is­yf­ir­valda og hafi Útlend­inga­stofnun engar upp­lýs­ingar um hvernig þær hafa gengið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár