Smit meðal umsækjenda um alþjóðlega vernd

Kór­ónu­veirusmit hafa greinst meðal umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem dvelja í þjón­ustu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar í hús­næði með íbúðum fyrir fjöl­skyldur. Hæl­is­leit­endur gagn­rýndu Útlend­inga­stofnun í vik­unni fyrir aðstöðu á Grens­ás­vegi.

Upp hafa komið COVID-19 smit meðal umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. Um er að ræða ein­stak­linga sem dvelja í þjón­ustu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar í hús­næði með íbúðum fyrir fjöl­skyldur. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Útlend­inga­stofnun.

Í henni segir að fyrsta smitið hafi greinst fyrr í vik­unni og hafi aðrir íbúar þá þegar farið í sótt­kví en nokkrir þeirra greindust smit­aðir í gær.

„Gripið hefur verið til allra við­eig­andi ráð­staf­ana til að ná tökum á útbreiðsl­unni. Hinir smit­uðu hafa verið fluttir í far­sótt­ar­hús í Reykja­vík í sam­vinnu við almanna­varnir en Hafn­ar­fjarð­ar­bær þjón­ustar þá sem dvelja í sótt­kví,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn stað­festi í sam­tali við frétta­stofu RÚV í morgun að um átt smit væri að ræða. Hann sagði að nokkur fjöldi fólks væri í sótt­kví vegna smit­anna en gat ekki stað­fest hversu margir. Smitrakn­ing væri enn í gangi.

Gagnrýna Útlendingastofnun harðlega

Hæl­is­leit­endur gagn­rýndu aðstöðu Útlend­inga­stofn­unar á Grens­ás­vegi í vik­unni en í færslu hóps­ins Refugees in Iceland á Facebook var birt mynd­skeið af aðstöð­unni þar.

„Enn einu sinni brýtur Útlend­inga­stofnun á mann­rétt­indum og setur heilsu okkar og öryggi í hættu. Fjöldi fólks hefur verið flutt frá Ásbrú í búðir í Reykja­vík (Grensás). Við vitum ekki af hverju en við höldum að það sé vegna þess að það sé of kostn­að­ar­samt að reka búð­irnar á Ásbrú.

Undir venju­legum kring­um­stæðum myndum við fagna því að búa á stað sem er fjöl­farn­ari, eins og við höfum óskað eftir í tvö ár núna. En að gera það í miðjum COVID-far­aldri, þegar fólk á meira og minna að vera í ein­angrun, þýðir að það þarf að gera það vel og var­lega. Það var ekki gert af hendi Útlend­inga­stofn­unar.“

Lýsa aðstæðum á Grensás sem hræðilegum

Þá kemur fram í færsl­unni að aðstæður á Grensás séu hræði­legar. Að minnsta kosti tvær mann­eskjur séu í hverju her­bergi og í sumum her­bergjum séu jafn­vel fjórar til fimm. Hæl­is­leit­end­urnir segja að Útlend­inga­stofnun neiti að taka til­lit til þess að sumir þeirra séu í áhættu­hópi þegar kemur að COVID-19.

Þá er bent á að ekki megi fleiri en 10 deila bað­her­bergi en á Grensás séu 32 með tvær hrein­læt­is­að­stöður.

„Allir vita að sótt­varna­ráð­staf­anir eru öfl­ug­asta vopnið gegn frek­ari útbreiðslu COVID-far­ald­urs. Jafnvel þótt Útlend­inga­stofnun fari eftir 10 manna tak­mörk­unum, sem hún gerir ekki, þá hlýtur maður að velta því fyrir sér hvort þetta ætti ekki vera enn strang­ara í far­aldri.“

Segir að aldrei búi fleiri en tveir saman í herbergi á Grensásvegi

Í til­kynn­ingu Útlend­inga­stofn­unar vegna búsetu­úr­ræðis fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd á Grens­ás­vegi segir að 28 her­bergi séu með eld­un­ar­að­stöðu. „42 umsækj­endur um vernd dvelja í hús­næð­inu um þessar mundir. Tveir ein­stak­lingar deila her­bergi í flestum til­vikum en þegar um er að ræða ein­stak­linga sem glíma við alvar­leg veik­indi dvelja þeir einir í her­bergi. Aldrei búa fleiri en tveir saman í her­bergi á Grens­ás­vegi.“

Þá kemur fram að í hús­næð­inu séu átta bað­her­bergi og að verið sé að end­ur­nýja þau, tvö og tvö í einu. Meðan á end­ur­bót­unum stendur séu því sex bað­her­bergi í notkun hverju sinni. Sápa og hand­spritt sé til staðar á bað­her­bergjum og geti íbúar fengið grímur eftir þörfum hjá örygg­is­verði.

„Her­bergið sem sést á myndum í fjöl­miðlum og í mynd­bandi á sam­fé­lags­miðlum var tekið úr notkun og íbúum þess fengið annað her­bergi þegar þeir létu vita af því að vatns­kran­inn væri bil­aður. Þess má geta að her­bergið á mynd­unum er minnsta her­bergið í hús­inu,“ segir á vef Útlend­inga­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár