Fleiri en einn af hverjum tíu sem fara í skimun í Hollandi greinast með COVID-19

Hlutfall jákvæðra COVID-prófa í Hollandi var yfir 12 pró­sent í síð­ustu viku. Það bendir til þess að veiran sé á meira flugi í hol­lensku sam­fé­lagi en fjöldi smita segir til um. Í Eurovision-búbblunni í Rott­er­dam er hlut­fallið þó innan við 0,1 pró­sent.

Daði og Gagnamagnið stíga ekki á svið í kvöld og fylgjast með söngvakeppninni frá hóteli sínu í Rotterdam. Þrátt fyrir það er þeim spáð góðu gengi.
Daði og Gagna­magnið stíga ekki á svið í kvöld og fylgj­ast með söngvakeppn­inni frá hót­eli sínu í Rott­er­dam. Þrátt fyrir það er þeim spáð góðu gengi. Mynd: EBU

Daði Freyr Pét­urs­son og Gagna­magnið eru fjarri góðu gamni í kvöld, eins og alþjóð veit, vegna kór­ónu­veirusmita sem komu upp í íslenska Eurovision-hópnum í vik­unni. Veiran náði alla leið inn í þann hóp sem hefði undir eðli­legum kring­um­stæðum átt að stíga á sviðið í Rott­er­dam í Hollandi og flytja lagið 10 Years, sem er fram­lag Íslands í ár.

Sem betur fer er upp­takan frá æfingu hóps­ins á dög­unum vel heppnuð og sam­kvæmt veð­bönkum lík­leg til þess að skila lag­inu ofar­lega á lista í kvöld, þó reyndar séu sumir búnir að afskrifa með öllu að Daði og Gagna­magnið standi uppi sem sig­ur­veg­arar í kvöld, eins og sagt var frá á Kjarn­anum fyrr í dag.[links]

Veiran sennilega á töluverðu flugi í Hollandi

Hins vegar þarf ef til vill þarf ekki að koma á óvart að smit láku inn í íslenska teymið, þrátt fyrir að það hafi reyndar verið bólu­sett áður en haldið var af stað.

Miðað við opin­bera töl­fræði frá Hollandi má ætla að veiran leiki nokkuð lausum hala í hol­lensku sam­fé­lagi, en þar í landi eru um þessar mundir um og yfir 12 pró­sent COVID-19 sýna að reyn­ast jákvæð, sem er eitt hæsta hlut­fallið í Evrópu.

[adspot]

Hol­lend­ingar virð­ast nefni­lega ekki verið að taka mikið af COVID-prófum til þess að hafa hemil á veirunni. Þrátt fyrir að hlut­fall jákvæðra sýna sé hátt í evr­ópskum sam­an­burði þessa dag­ana hefur það verið enn hærra, fyrr í far­aldr­inum.

Til sam­an­burðar hefur hlut­fall jákvæðra sýna úr ein­kenna­sýna­tökum hér á landi ekki farið yfir nema einu sinni yfir 3 pró­sent það sem af er þessu ári. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) gaf í maí í fyrra út kríteríu, þar sem sagði að hlut­fall jákvæðra sýna undir 5 pró­sent væri eitt merkja um að far­ald­ur­inn væri undir stjórn.

Þegar lítið er ski­mað fyrir COVID-19 er lík­legt að mörg til­felli upp­götv­ist alls ekki – og þegar hlut­fallið er jafn hátt og það er í Hollandi í dag er senni­lega ein­ungis verið að greina lít­inn hluta þeirra til­fella sem sann­ar­lega eru út í sam­fé­lag­inu. En þar, rétt eins og hér á landi, gengur ágæt­lega að bólu­setja almenn­ing og verið er að aflétta sótt­varna­ráð­stöf­unum í áföngum. Það að veiran sé á flugi er því ekki jafn mikið áhyggju­efni og áður.

Alls lögð­ust þó 239 manns inn á gjör­gæslu í Hollandi í síð­ustu viku vegna veirunnar og 90 manns lét­ust.

Stíft skimað í kringum keppnina

Það breyti því þó ekki að Eurovision­farar og aðrir sem eru á vett­vangi keppn­innar í Rott­er­dam þurfa að und­ir­gang­ast skimun á tveggja daga fresti. Samkvæmt því sem sagði í til­kynn­ingu á vef Eurovision-keppn­innar í fyrra­dag var alls búið að taka fleiri en 24.400 COVID-próf hjá starfs­fólki, sjálf­boða­liðum, Eurovision-förum og fjöl­miðla­fólki á rúmum mán­uði, eða allt frá því að und­ir­bún­ingur í Ahoy-höll­inni hófst 6. apríl.

Einungis 16 manns höfðu þá greinst með veiruna – eða 0,06 pró­sent af þeim sem höfðu verið skimuð. Þar af eru tveir úr íslenska teym­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár