Tap Bláa lónsins í fyrra var tæpur helmingur af arðgreiðslum áranna 2018 og 2019

Tekjur Bláa lóns­ins dróg­ust veru­lega saman í fyrra vegna COVID-19 og það skil­aði tapi í fyrsta sinn í ára­tug. Félagið fékk 591 milljón króna í upp­sagn­ar­styrki úr rík­is­sjóði og setti 454 manns á hluta­bóta­leið­ina.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, og stjórn félagsins.
Grímur Sæmund­sen, for­stjóri Bláa lóns­ins, og stjórn félags­ins. Mynd: Ársskýrsla Bláa lónsins.

Bláa lónið tap­aði 20,7 millj­ónum evra, 3,2 millj­örðum króna, á síð­asta ári og tekjur þess dróg­ust saman um 74 pró­sent frá árinu 2019. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins sem birtur var í vik­unni.

Þar kemur fram að heildar eigið fé Bláa lóns­ins hafi verið 57,2 millj­ónir evra, 8,9 millj­arðar króna, í lok síð­asta árs og að óráð­stafað eigið fé félags­ins hafi verið 35,3 millj­ónir evra, um 5,5 millj­arðar króna. Eigið féð lækk­aði um 28 pró­sent í fyrra.

Tap Bláa lóns­ins á árinu 2020 er í heild lægra en síð­asta arð­greiðsla sem greidd var út úr félag­inu. Á árinu 2019 fengu hlut­hafar alls 30 millj­ónir evra, þá um 4,3 millj­arða króna, í arð­greiðslu vegna frammi­stöðu árs­ins á undan. Árið áður, 2018, nam arð­greiðslan til hlut­hafa 16 millj­ónum evra, eða um 2,3 millj­örðum króna. Því var tap félags­ins í fyrra um 45 pró­sent af arð­greiðslum áranna 2018 og 2019.

Stærsti eig­andi félags­ins er Hvatn­ing slhf. með eign­ar­hlut upp á 39,6 pró­sent. Eigandi þess er Kólfur ehf., eign­ar­halds­fé­lag að stærstu leyti í eigu Gríms Sæmund­sen, for­stjóra Bláa lóns­ins, og Eðvard Júl­í­us­son­ar. Kólfur keypti tæp­lega helm­ing í Hvatn­ingu af Horni II, fram­taks­sjóði í stýr­ingu Lands­bréfa, árið 2018.

[adspot]Næst stærsti eig­and­inn er Blá­varmi slhf., félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­­sjóða, sem keypti 30 pró­­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á tæp­­lega fimm­­földu þáver­andi bók­­færðu virði hlut­­ar­ins í maí 2019, eða á 15 millj­arða króna.

Í árs­skýrslum líf­eyr­is­sjóða sem eru á meðal hlut­hafa í bæði Hvatn­ingu og Blávarma er hægt að sjá að þeir hafa lækkað verð­mat sitt á félag­inu á síð­asta ári og meta það nú á bil­inu 39-41 millj­arð króna.

591 milljón í uppsagnarstyrki

COVID-19 hafði gríð­ar­leg áhrif á rekstur Bláa Lónsins á árinu 2020. Í árs­reikn­ingi segir m.a. að gestum hafi fækkað um 76 pró­sent milli áranna 2019 og 2020 og að tekjur félags­ins hafi dreg­ist saman um 87 pró­sent milli ára á tíma­bil­inu mars-des­em­ber.

Bláa Lóninu var gert að loka starfs­stöðvum sínum í Svarts­engi þann 23. mars 2020 í kjöl­far reglna um ferða­tak­mark­anir milli landa og sam­komu­banns sem sett var á. Starfs­stöðv­arnar voru opn­aðar aftur í fyrra­sumar en svo lokað aftur þegar kór­ónu­veiran fór aftur á kreik. Alls voru starf­stöðvar Bláa lóns­ins lok­aðar í sex mán­uði á árinu 2020.

Vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sagði Bláa lónið upp 164 starfs­mönnum í lok mars og í lok maí var 402 starfs­mönnum til við­bótar sagt upp. Í lok ágúst voru 237 starfs­menn end­ur­ráðnir tíma­bundið en stærstur hluti þess hóps fékk ekki end­ur­ráðn­ingu í lok októ­ber. Alls fækk­aði með­al­fjölda starfs­manna á árinu 2020 miðað við heils­árs­störf úr 726 í 431.

Bláa lónið fékk alls 591,2 millj­ónir króna í stuðn­ings­greiðslur úr rík­is­sjóði til að standa straum af kostn­aði vegna upp­sagna á starfs­fólki í fyrra. það úrræði stjórn­valda heim­ilaði fyr­ir­tækjum sem orðið höfðu fyrir miklu tekju­falli að sækja styrk fyrir allt að 85 pró­sent af launa­kostn­aði á upp­sagn­ar­fresti í rík­is­sjóð.

Auk þess fengu 454 starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins laun í gegnum hluta­bóta­leið­ina í þrjá mán­uði á síð­asta ári. Eina fyr­ir­tækja­sam­steypan sem setti fleiri starfs­menn á leið­ina var Icelandair Group.

Laun stjórnar og for­stjóra Bláa lóns­ins á síð­asta ári voru 811 þús­und evrur, um 126 millj­ónir króna. Launa­kostn­aður þeirra í evrum dróst saman um 28 pró­sent milli áranna 2019 og 2020. Stjórn­ar­for­maður félags­ins er Helgi Magn­ús­son, aðal­eig­andi fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Torgs.

Auk Helga sitja þau Ágústa Johnson, Ragnar Guð­munds­son, Sig­ríður Mar­grét Odds­dóttir og Steinar Helga­son í stjórn Bláa Lóns­ins. Vara­menn í stjórn eru þau Anna G. Sverr­is­dóttir og Úlfar Stein­dórs­son, sem er einnig stjórn­ar­for­maður Icelandair Group.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár