Efling fer ekki lengra með málið gegn Eldum rétt og Mönnum í vinnu

Stétt­ar­fé­lagið Efling hyggst ekki styðja fram­hald dóms­mála á hendur Eldum rétt og starfs­manna­leig­unni Mönnum í vinnu. Ábyrgð­ar­sjóður launa hefur fall­ist á að greiða van­greidd laun fjög­urra rúm­enskra félags­manna Eflingar.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar telur þetta óvænta vendingu.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar telur þetta óvænta vend­ingu. Mynd: Bára Huld Beck

Stétt­ar­fé­lagið Efling hyggst ekki styðja fram­hald dóms­mála á hendur Eldum rétt og starfs­manna­leig­unni Mönnum í vinnu, en sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Eflingu féllst Ábyrgð­ar­sjóður launa á það í upp­hafi mán­aðar að gang­ast í ábyrgð fyrir van­greiddar launa­greiðslur til fjög­urra rúm­enskra fyrr­ver­andi starfs­manna starfs­manna­leig­unnar.

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar telur að þetta sé óvænt vend­ing í mál­inu. „Það er sann­ar­lega ánægju­legt að Ábyrð­ar­sjóður launa hafi á síð­ustu stundu stigið inn og við­ur­kennt rétt­mæti þeirra krafna sem launa­greið­endur kusu að slást um við lág­launa­fólk fyrir dómi. Þannig er félags­mönnum okkar bættur skaði og því eru að okkar mati ekki sömu for­sendur fyrir dóms­máli,“ er haft eftir Sólveigu Önnu.

Um er að ræða upp­hæðir á bil­inu 120-195 þús­und í til­felli hvers þeirra fjög­urra félags­manna Eflingar sem í hlut áttu. Hafa greiðsl­urnar verið lagðar inn á reikn­inga þeirra.

„Ágrein­ingur dóms­máls­ins laut einkum að því hvort Mönnum í vinnu hefði verið heim­ilt að draga að eigin ákvörðun ýmsa kostn­að­ar­liði frá launum starfs­mann­anna og lýsa því þannig yfir að launin væru greidd með skulda­jöfnun,“ er haft eftir Ragnari Aðal­steins­syni lög­manni Rúm­en­anna fjög­urra í til­kynn­ingu Eflingar.

„Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur lengi barist gegn ein­hliða frá­drætti af verka­launum og voru um það sett lög í byrjun síð­ustu aldar. Með þeirri ákvörðun Ábyrgða­sjóðs launa að fall­ast á að greiða laun starfs­mann­anna án frá­dráttar stígur sjóð­ur­inn mik­il­vægt skref í þá átt að vernda verka­laun starfs­manna gegn ein­hliða skulda­jöfn­uði atvinnu­rek­and­ans,“ er enn fremur haft eftir Ragnari.[links]

Eins og Kjarninn sagði frá í síð­asta mán­uði var kröfum rúm­ensku starfs­mann­anna á hendur starfs­manna­leig­unni vísað frá Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Nið­ur­staða dóms­ins var á þá leið að þar sem gjald­þrota­skiptum á búi starfs­manna­leig­unnar hafi lokið 11. sept­em­ber 2020 yrði engum frek­ari kröfum komið fram gagn­vart félag­inu eftir það tíma­mark, að minnsta kosti ekki á meðan þess sé ekki kraf­ist að skiptin yrðu end­ur­upp­tek­in.

Fram kom í dómnum að stefn­end­urnir hefðu ekki upp­lýst um afstöðu skipta­stjóra til krafna þeirra í bú starfs­manna­leig­unnar, þrátt fyrir að skorað hafi verið á þá um að gera það. Einnig kom fram í nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms að fram­burður starfs­mann­anna varð­andi greiðslur til þeirra hefði verið ótrú­verð­ugur og í and­stöðu við gögn sem þeir hefðu sjálfir lagt fram í mál­inu. Þá hafi frá­dráttur af launum starfs­mann­anna verið í sam­ræmi við ráðn­ing­ar­samn­inga þeirra.

[adspot]

Eldum rétt var stefnt í mál­inu sem not­enda­fyr­ir­tæki starfs­manna­leig­unn­ar, en þetta var í fyrsta sinn sem látið hefur verið reyna á nýlegt ákvæði um keðju­á­byrgð í lögum um starfs­manna­leigur fyrir dómi. Þar sem kröfum starfs­mann­anna fjög­urra á hendur starfs­manna­leig­unni var vísað frá dómi var mál­inu einnig vísað frá gagn­vart Eldum rétt.

Sólveig Anna skorar á Eldum rétt

Eldum rétt, sem selur til­búna mat­ar­skammta sem fólk getur eldað heima hjá sér, hefur lengi sagt að fyr­ir­tækið hafi verið dregið inn í þetta dóms­mál að ósekju. Fram kom eftir að dómur hér­aðs­dóms féll að fyr­ir­tækið skoð­aði að leita réttar síns gagn­vart stétt­ar­fé­lag­inu Eflingu vegna ummæla sem for­svars­menn þess hafa látið falla á opin­berum vett­vangi.

Formaður Eflingar hefur hins talið að Eldum rétt eigi að taka ábyrgð á mál­inu. Í til­kynn­ingu Eflingar er haft eftir henni að hún telji það miður „að þessi kostn­aður lendi á skatt­greið­endum“ og skorar hún á Eldum rétt um að „axla ábyrgð og end­ur­greiða Ábyrgð­ar­sjóði þessar fjár­hæðir.“

Fram kemur í til­kynn­ingu Eflingar að stétt­ar­fé­lagið og lög­manns­stofan Réttur hafi stutt 20 félags­menn Eflingar til að leggja fram kærur til Hér­aðs­sak­sókn­ara í ágúst 2019 og apríl 2020 vegna grun­aðra brota af hálfu Manna í vinnu. Rannsókn þess­ara mála er sam­kvæmt til­kynn­ingu Eflingar enn yfir­stand­andi hjá Hér­aðs­sak­sókn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár