Twitter búið að opna útibú í Reykjavík

Í lok síð­asta mán­aðar var útibú fyrir Twitter skráð í fyr­ir­tækja­skrá. Stofn­andi Ueno, sem seldi fyr­ir­tækið nýverið til sam­fé­lags­miðl­aris­ans, vann fyrsta dag­inn sinn fyrir Twitter hér­lendis í dag.

Har­aldur Þor­leifs­son, stofn­andi Ueno, vann fyrsta dag­inn sinn sem Twitter starfs­maður í dag, en hann seldi fyr­ir­tækið til sam­fé­lags­miðl­aris­ans í byrjun árs.

Í stöðu­upp­færslu á Twitter segir Haraldur frá því að það hafi tekið aðeins lengri tíma en til stóð að hann myndi hefja störf þar sem fyr­ir­tækið bauðst til að setja upp fyr­ir­tæki á Íslandi í kringum starf­semi svo Haraldur gæti áfram búið hér­lendis. „Þannig að, Twitter Reykja­vík er nú raun­veru­leiki!“ skrifar Haraldur í færsl­unni.

Í fyr­ir­tækja­skrá er hægt að sjá að „Twitter Nether­lands B.V. útibú“ var skráð hér­lendis 25. jan­úar síð­ast­lið­inn. Rekstr­ar­form þess er „útibú erlends félags“ og atvinnu­greina­flokk­unin „önnur ótalin sér­fræði­leg, vís­inda­leg og tækni­leg starf­semi“.

Seldi Ueno til Twitter

Greint var frá því í byrjun árs að sam­fé­lags­miðlinn Twitter hefði fest kaup á Ueno. Það gerði Dantley Davis, hönn­un­­ar­­stjóri Twitter, í stöðu­upp­færslu á miðl­inum sjálf­um. Ueno var tækni- og hönn­un­ar­fyr­ir­tæki sem Har­aldur stofn­aði utan um verk­efna­vinnu árið 2014,

Ueno hefur verið með starf­­semi í San Francisco, New York og Los Angeles, auk skrif­­stofu í Reykja­vík, og hefur stækkað hratt á síð­­­ustu árum.

[adspot]Fyr­ir­tækið hefur sinnt verk­efnum fyrir fjöl­­mörg stór­­fyr­ir­tæki, til dæmis Google, Apple og Facebook, auk AirBnB, Slack, Uber og fjölda ann­­arra.

Sam­­kvæmt til­­kynn­ingu Davis áttu Har­aldur og aðrir starfs­­menn Ueno ganga til liðs við hönn­un­­ar- og rann­­sókna­­deild Twitter, eftir að hafa áður sinnt verk­efnum fyrir sam­­skipta­mið­il­inn sem verk­tak­­ar.

Kaup­verðið í þessum við­­skiptum hefur ekki verið gefið upp, en Ueno velti yfir tveimur millj­­örðum króna árið 2019.

Í frétt tækn­i­mið­ils­ins TechCrunch var haft eftir tals­­manni Twitter, þegar greint var frá kaup­un­um, að Ueno muni ljúka verk­efnum sínum fyrir aðra við­­skipta­vini á næstu vik­­um.

Síðan muni Twitter hitta alla núver­andi starfs­­menn Ueno til þess að kynn­­ast þeim og sjá hvar og hvort þeir muni passa inn í starf­­semi Twitter.

Ætlar að greiða alla skatta hérlendis

Har­aldur vakti mikla athygli í lok síð­asta mán­aðar þegar hann greindi frá því að allir skattar sem greiddir verði vegna sölu fyr­ir­tæk­is­ins til Twitter verði greiddir á Ísland­i.

Í stöðu­upp­færslu á Twitter, sem var á ensku, sagði Har­aldur að hann hafi fæðst á Íslandi og að for­eldrar hans hafi verið lág­tekju­fólk. Auk þess glími hann við alvar­lega fötl­un. „En þar sem þetta land býður upp á fría skóla og fría heil­brigð­is­þjón­ustu þá gat ég ég dafn­að.“

Þess vegna sé hann stoltur að greina frá því að allir skattar sem verða greiddir vegna söl­unnar á Ueno verði greiddir á Íslandi til að styðja við það kerfi sem studdi við hann á sínum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár