Segir skýrasta dæmið um gagnleysi krónunnar að ekki sé hægt að prenta peninga í neyð

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir segir að „öll við­vör­un­ar­ljós“ eigi að vera kveikt vegna kúvend­ingar rík­is­stjórnar við fjár­mögnun skulda rík­is­sjóðs. Enn og aftur vilji íhalds­flokk­arnir „taka séns­inn á krón­unni og áhætt­unni sem henni fylgir“.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Öll við­vör­un­ar­ljós eiga að vera kveikt á hinu póli­tíska sviði vegna þess­arar þró­unar og kúvend­ingar rík­is­stjórn­ar­innar við fjár­mögnun skulda rík­is­sjóðs. Gríð­ar­leg geng­is­á­hætta fylgir erlendum lán­tökum sem getur haft áhrif á mögu­leika okkar til að verja vel­ferð­ar­kerfið.“

Þetta skrifar Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, í stöðu­upp­færslu á Facebook sem hún birti í gær­kvöldi. Hún segir þar að skýrasta dæmið um gagn­leysi sjálf­stæðrar myntar eins og íslensku krón­unnar komi fram þegar „ekki er unnt að nota hana til að prenta pen­inga við neyð­ar­að­stæður.“

Í stöðu­upp­færsl­unni fjallar Þor­gerður Katrín um fyr­ir­spurn sína til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um erlendar lán­tökur rík­is­sjóðs síð­degis í gær en rík­is­sjóður Íslands gaf út vaxta­laus skulda­bréf í evrum að virði 117 millj­arða króna, sem jafn­gildir um fjórum pró­sentum af lands­fram­leiðslu, í lok jan­úar.

[adspot]Þor­gerður Katrín benti á í fyr­ir­spurn sinni að bæði Seðla­banki Íslands og rík­is­stjórnin hefði framan af yfir­stand­andi heims­far­aldri lýst því yfir að halli rík­is­sjóðs yrði fjár­magn­aður með inn­lendum lánum á lægstu vöxtum og án geng­is­á­hættu. Þor­gerður Katrín spurði Katrínu hvort hún væri með­vituð um þá áhættu sem fylgdi erlendum lán­töku og hvaða for­sendur væru til staðar fyrir því að kúvenda afstöðu rík­is­stjórn­ar­innar í lán­töku­málum. Katrín neit­aði því að um kúvend­ingu væri að ræða og sagði þá leið sem verið væri að feta þá skyn­sam­leg­ustu. Hún væri ekki hissa á því að Þor­gerður tali niður krón­una því það væri hluti af stefnu stjórn­mála­flokks hennar. „Mér fannst þessi mál­flutn­ingur fyrst og fremst bera vitni um mál­flutn­ing í stjórn­málum fremur en raun­veru­legt mat á áhættu.“

Segir gjaldmiðlamál „harðkjarna pólitík“

Þor­gerður Katrín segir í stöðu­upp­færsl­unni í gær­kvöldi að hún hafi haft gaman af því að for­sæt­is­ráð­herra hafi sagt sig, í hneyksl­un­ar­tón, vera í stjórn­málum. „Reyndar útskýrir þetta við­horf vissu­lega grunn­inn fyrir þeirri kyrr­stöðu­stjórn sem for­maður VG veitir for­stöðu. Í raun er ég henni þó þakk­lát fyrir þessa full­yrð­ingu því það er hár­rétt; ég er í póli­tík. Ekki síst þegar kemur að krón­unni og þeirri áhættu sem henni fylgir fyrir heim­ilin, fyr­ir­tækin og vel­ferð­ina. Því það er harð­kjarna póli­tík. Það er stefna Við­reisnar að lífs­kjör verði hér sam­keppn­is­hæf og meiri stöð­ug­leiki verði fyrir bæði heim­ili og atvinnu­líf. Að við byggjum upp fleiri og fjöl­breytt­ari störf til lengri tíma. Að við förum úr sveiflu­kenndu hag­kerfi í stöðugt. En það ger­ist ekki nema við tengj­umst eða tökum upp Evru.“

Viðreisn hafi getað stutt þá stefnu rík­is­stjórnar og Seðla­banka Íslands að hafa ætlað að fjár­magna halla rík­is­sjóðs með inn­lendum lánum á lægstu vöxtum og án geng­is­á­hættu. „Stjórn­völd hafa hins vegar kúvent og ætla að fjár­magna hall­ann með erlendum lánum upp á mörg hund­ruð millj­arða. Skýrasta dæmið um gagn­leysi sjálf­stæðrar myntar kemur hér fram þegar ekki er unnt að nota hana til að prenta pen­inga við neyð­ar­að­stæður eins og þær sem við búum núna við. Engin önnur Evr­ópu­þjóð þarf heldur að sætta sig við verð­bólgu í miðri kreppu.“

Íhaldsflokkarnir vilji „taka sénsinn á krónunni“

Formaður Við­reisnar telur að for­sæt­is­ráð­herra hafi átt erfitt með að við­ur­kenna þá „ævin­týra­legu geng­is­á­hættu“ sem fylgi mörg hund­ruð millj­arða króna erlendu láni sem stjórn­völd hafi ákveðið að taka til að vinna á fjár­laga­hall­anum. „Enn og aftur vilja íhalds­flokk­arnir taka séns­inn á krón­unni og áhætt­unni sem henni fylgir. Eða er það til­viljun að stóru fyr­ir­tækin í sjáv­ar­út­vegi og iðn­aði gera upp í erlendri mynt. Meðan að almenn­ingur, heim­ilin og litlu fyr­ir­tækin sitja uppi með krón­una.

[links]Þessi stefnu­breyt­ing eykur einnig áhætt­una á því að stjórn­völd freisti þess að halda upp gengi krón­unnar eins lengi og verða má, án til­lits til fram­leiðni ferða­þjón­ust­unnar og ann­arra útflutn­ings­greina. Við sjáum þetta ekki fyrir enn sem komið er en þetta gæti jafn­gilt veru­legum skatta­hækk­unum.

Þessu til við­bótar hefur grein­ing­ar­deild Lands­bank­ans varað við að þær opin­beru inn­viða­fjár­fest­ingar sem rík­is­stjórnin hefur ítrekað boðað (ein­hverjir voru jú blaða­manna­fund­irnir) hafi alls ekki stað­ist og kunni að koma sam­tímis því þegar atvinnu­vega­fjár­fest­ing tekur við sér. Það er gam­al­kunn­ugur og spennu­þrung­inn kok­teill sem getur valdið þenslu í hag­kerf­inu með til­heyr­andi afleið­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár