Ríkissjóður tekur erlent lán að jafnvirði 117 milljarða króna

Íslenska ríkið hefur gefið út vaxta­laust skulda­bréf í evrum fyrir 750 millj­ónir evra, eða um 117 millj­arða króna. Sú fjár­hæð er um fjögur pró­sent af lands­fram­leiðslu.

Rík­is­sjóður Íslands gaf út vaxta­laus skulda­bréf í evrum að virði 117 millj­arða króna, sem jafn­gildir um fjórum pró­sentum af lands­fram­leiðslu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá rík­is­sjóði sem birt­ist á vef Kaup­hall­ar­innar fyrr í dag.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni eru skulda­bréfin að fjár­hæð 750 millj­ónir evra, bera 0 pró­sent fasta vexti og voru gefin út til sjö ára á ávöxt­un­ar­kröf­unni 0,117%.Umsjón útgáf­unnar var í höndum Citibank, Barclays og Deutsche Bank.

Þar er einnig haft eftir Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra að útgáfan sé í sam­ræmi við stefnu í lána­málum, þar sem auk­inni fjár­þörf rík­is­sjóð verði að hluta til mætt með erlendri lán­töku. „Mark­aðs­að­stæður eru sér­lega hag­stæðar um þessar mundir eins og kjör rík­is­sjóðs nú bera með sér," segir Bjarni.

Fjár­festar sýndu útgáf­unni mik­inn áhuga og nam eft­ir­spurn tæp­lega 3,5 millj­örðum evra eða rúm­lega fjór­faldri fjár­hæð útgáf­unnar. Fjár­festa­hóp­ur­inn sam­anstendur af bönkum, trygg­inga­fé­lögum og öðrum fag­fjár­festum, aðal­lega frá Norður-Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár