Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno, segir að allir skattar sem greiddir verði vegna sölu fyrirtækisins til Twitter verði greiddir á Íslandi.
Í stöðuuppfærslu á Twitter, sem er á ensku, segir Haraldur að hann hafi fæðst á Íslandi og að foreldrar hans hafi verið lágtekjufólk. Auk þess glími hann við alvarlega fötlun. „En þar sem þetta land býður upp á fría skóla og fría heilbrigðisþjónustu þá gat ég ég dafnað.“
Þess vegna sé hann stoltur að greina frá því að allir skattar sem verða greiddir vegna sölunnar á Ueno, sem er tækni- og hönnunarfyrirtæki sem Haraldur stofnaði utan um verkefnavinnu árið 2014, verði greiddir á Íslandi til að styðja við það kerfi sem studdi við hann á sínum tíma.
[adspot]Greint var frá því í byrjun árs að samfélagsmiðlinn Twitter hefði fest kaup á Ueno. Það gerði Dantley Davis, hönnunarstjóri Twitter, í stöðuuppfærslu á miðlinum sjálfum.
Ueno hefur verið með starfsemi í San Francisco, New York og Los Angeles, auk skrifstofu í Reykjavík, og hefur stækkað hratt á síðustu árum.
Fyrirtækið hefur sinnt verkefnum fyrir fjölmörg stórfyrirtæki, til dæmis Google, Apple og Facebook, auk AirBnB, Slack, Uber og fjölda annarra.
[links]Samkvæmt tilkynningu Davis munu Haraldur og aðrir starfsmenn Ueno ganga til liðs við hönnunar- og rannsóknadeild Twitter, eftir að hafa áður sinnt verkefnum fyrir samskiptamiðilinn sem verktakar.
Kaupverðið í þessum viðskiptum hefur ekki verið gefið upp, en Ueno velti yfir tveimur milljörðum króna árið 2019.
Í frétt tæknimiðilsins TechCrunch var haft eftir talsmanni Twitter, þegar greint var frá kaupunum, að Ueno muni ljúka verkefnum sínum fyrir aðra viðskiptavini á næstu vikum.
Síðan muni Twitter hitta alla núverandi starfsmenn Ueno til þess að kynnast þeim og sjá hvar og hvort þeir muni passa inn í starfsemi Twitter.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir