Könnun: Innan við fjórðungur hlynnt sölu Íslandsbanka

Ný könnun frá Gallup sýnir fram á að tæp 56 pró­sent lands­manna leggj­ast gegn sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka á næstu mán­uðum. Væntir kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru lang­lík­leg­astir til að vera fylgj­andi sölu­á­formunum.

Skoðanir kjósenda stjórnarflokkanna eru mjög mismunandi. Einungis á meðal kjósenda Sjálfstæðisflokks er meirihlutastuðningur við söluáformin.
Skoðanir kjós­enda stjórn­ar­flokk­anna eru mjög mis­mun­andi. Einungis á meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks er meiri­hluta­stuðn­ingur við sölu­á­formin. Mynd: Íslandsbanki

Tæp 56 pró­sent lands­manna leggj­ast gegn því að ríkið selji hlut sinn í Íslands­banka á næstu mán­uðum, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun Gallup sem unnin var fyrir Alþýðu­sam­band Íslands á síð­ustu dögum.

Samkvæmt nið­ur­stöðum þess­arar könn­unar segj­ast 23,5 pró­sent vera fylgj­andi sölu og 20,8 pró­sent segj­ast ekki hafa skoðun á mál­inu, hvorki með né á móti.

Stuðn­ingur við sölu er mestur meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en 56 pró­sent þeirra sem sögð­ust ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn voru jafn­framt hlynnt því að selja hlut rík­is­ins í bank­anum. Næst­mestur stuðn­ingur er á meðal kjós­enda Mið­flokks­ins, eða um 32 pró­sent.

Tekið skal fram að í spurn­ing­unni sem Gallup lagði fyrir svar­endur var ekki til­greint hversu stóran hluta ríkið ætl­aði sér að selja, en eins og fram kom í gær hefur verið lagt til af hálfu þing­nefnda að selja allt að 35 pró­sent af hlut rík­is­ins í bank­anum.

65 prósent kjósenda VG á móti sölu

Minnstur er stuðn­ingur meðal mögu­legra kjós­enda Sós­í­alista­flokks­ins og Flokks fólks­ins, en nær allir sem sögð­ust ætla að kjósa þessa flokka sögð­ust jafn­framt and­vígir sölu á hlut rík­is­ins í bank­anum.

[adspot]

Að öðru leyti er and­staðan mest í röðum kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar, 73 pró­sent, þar næst Pírata, 68 pró­sent og loks Vinstri grænna, 65 pró­sent. Um helm­ingur kjós­enda bæði Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks lýstu and­stöðu við sölu á hlut rík­is­ins í bank­anum.

13 pró­sent kjós­enda Við­reisnar segj­ast hlynntir sölu Íslands­banka, en 23 pró­sent kjós­enda VG eru hlynnt áformunum.

Samfélagsbanki virðist eiga upp á pallborðið

Í könn­un­inni sem ASÍ lét Gallup fram­kvæma var einnig spurt um afstöðu til þess að ríkið stofni sam­fé­lags­banka. Fleiri en sex af hverjum tíu voru hlynnt því en ein­ungis 15 pró­sent andsnúin.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru lík­leg­astir til að vera and­snúnir sam­fé­lags­banka. Kjós­endur Við­reisnar og Mið­flokks eru lík­legri en aðrir til að hafa efa­semdir um sam­fé­lags­banka en kjós­endur ann­arra flokka lík­legri til að styðja slík áform.

Í til­kynn­ingu er haft eftir Drífu Snædal for­seta ASÍ að könn­unin sýni að sú veg­ferð stjórn­valda að selja Íslands­banka njóti ekki stuðn­ings meðal almenn­ings.

„Salan er keyrð áfram með hraði vegna þess að fjár­magns­eig­endur með full­tingi full­trúa sinna á þingi vilja ljúka henni fyrir kosn­ingar en í þeim kosn­ingum gæti þau öfl misst umboðið til að ráð­stafa eignum almenn­ings. Könnunin sýnir einnig fram á skýran vilja almenn­ings um að ríkið stofni sam­fé­lags­banka. Stjórn­málin þurfa að hlusta á þetta ákall,“ er haft eftir Drífu.

Skoð­ana­könn­unin var net­könnun sem var fram­kvæmd dag­ana 14.-22. jan­úar 2021. Úrtakið var 1.588 manns af öllu land­inu, 18 ára og eldri. Svar­hlut­fallið var 52,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár