„Nauðgarinn ert þú“

Hópur kvenna flutti íslenska útgáfu af síleska gjörn­ingnum „Nauðgari á þinni leið“ við stjórn­ar­ráðið til að mót­mæla nauðg­un­ar­menn­ingu og með­virkni stjórn­valda með ger­endum.

Mótmælt við stjórnarráðið Hópur kvenna flutti síleskan mótmælasöng í íslenkum búningi við stjórnarráðið í gær.

Hópur kvenna mót­mælti aðgerða­leysi þegar kemur að ofbeldi gagn­vart konum með gjörn­ingi við stjórn­ar­ráðið síð­degis í gær. Gjörn­ing­ur­inn er íslensk útgáfa af síleska gjörn­ingnum „El viola­dor en tú camino“ eða „Nauðgari á þinni leið“, sem var frum­fluttur við þjóð­ar­leik­vang­inn í Santíagó í nóv­em­ber.

Síleskar konur vildu með gjörn­ingnum mót­mæla nauðg­un­ar­menn­ingu, en þar í landi enda aðeins 8 pró­sent nauðg­un­ar­mála með sak­fell­ingu. Myndband af flutn­ingi þeirra vakti mikla athygli á net­inu og voru í kjöl­farið haldnir við­burðir í Kólumbíu, Mexíkó, Frakk­landi, Spáni, Bret­landi og Tyrk­landi.

„Þær okkar sem höfum á ein­hverjum tíma­punkti upp­lifað hættu eða ofbeldi af þeirri ein­földu ástæðu að við verum konur, skiljum hvert ein­asta orð í lag­inu og við erum margar,“ segir Katrín Harð­ar­dóttir, einn skipu­leggj­enda gjörn­ings­ins.

Mótmælt við stjórn­ar­ráðiðGjörn­ing­ur­inn fór fram í kjöl­far þess að grun­uðum kyn­ferð­is­af­brota­manni var sleppt úr gæslu­varð­haldi.

Íslensku kon­urnar döns­uðu og fluttu íslenska útgáfu af text­anum þar sem beint er sjónum að feðra­veld­inu og rík­is­vald­inu. Í text­anum segir meðal ann­ars: „Og sökin var ekki mín, hvar sem ég var eða í hverju sem ég var: nauð­gar­inn ert þú“.

„Þessi full­yrð­ing sílesku kvenn­anna sem skrif­uðu femíníska „sálm­inn“ hefur vakið hrifn­ingu og lof margra, en einnig valdið gagn­rýni ann­arra,“ segir Katrín. „Þú-ið sem vísað er í er nauð­gar­inn, en það nær einnig yfir þann fjölda fólks sem þyk­ist ekki taka eftir kyn­ferð­is­áreitni eða lætur jafn­vel glæpa­menn ganga lausa, eins og nú um jólin hér í Reykja­vík­inni. Þess vegna er minnst á lög­reglu, dóm­ara, ríki og ráð­herra, þau sem gætu tekið til rót­tækra aðgerða til þess að koma í veg fyrir nauðg­anir, morð og kyn­ferð­is­áreitni, en gera það ekki. Og þess vegna bendum við beint á hér­aðs­dóm, enda gaf hann okkur ærna ástæðu til í hádeg­inu.“

Gjörn­ing­ur­inn fluttur í Mexík­ó­borgFram­ganga kvenn­anna í Síle hefur vakið athygli og gjörn­ing­ur­inn verið fluttur um allan heim.

Íslenskur texti lagsins „Nauðgari á þinni leið“

Feðra­veldið fellir dóm,

gegn konum fyrir fæð­ingu.

Refs­ingin er kúgun

sýni­leg og dulin,

í dóms­orði hulin.

Feðra­veldið fellir dóm,   

gegn konum fyrir fæð­ingu.

Refs­ingin er kúgun

sýni­leg og dulin,

í dóms­orði hulin.

Kvenna­morð og ofbeldi,

Nauðg­anir og man­sal 

og kyn­ferð­is­áreitni.

Málin niður falla 

Fyrir ofbeld­iskalla.

Sökin er ekki mín, hvar sem ég var eða í hverju sem ég var.

Sökin er ekki mín, hvar sem ég var eða í hverju sem ég var.

Því ger­and­inn ert þú,

já, nauð­gar­inn ert þú.

Það eru löggur,

dóm­arar

sýslu­menn

og ráð­herrar!

Það er kúg­andi ríki

í karl­rembu líki.

Það er kúg­andi ríki

Í karl­rembu líki.

Því ger­and­inn ert þú

já, nauð­gar­inn ert þú.

Sofðu unga ástin mín og örvæntu ekki

við mæður, systur og dætur.

Stöndum sterkar á fætur,

tökum sið­leysi gröf.

Nýtum okkar lög

og kærum rík­is­valdið,

því nauð­gar­inn ert þú

já ger­and­inn ert þú.

Ger­and­inn ert þú.

Ger­and­inn ert þú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár