Vinnumálastofnun hættir að segja frá hópuppsögnum fyrir mánaðamót

Í lok nóv­em­ber sagði Vinnu­mála­stofnun frá hóp­upp­sögn hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki, þremur dögum áður en starfs­fólki var sagt upp. Verklagi verður breytt. For­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar segir rétt að við­kvæmar upp­lýs­ingar ber­ist fólki á réttan hátt.

Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar segir að viðkvæmar upplýsingar sem þessar þurfi að berast á réttan hátt, frá réttum aðilum.
Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar segir að við­kvæmar upp­lýs­ingar sem þessar þurfi að ber­ast á réttan hátt, frá réttum aðilum. Mynd: Almannavarnir

Vinnu­mála­stofnun hefur tekið ákvörðun um að upp­lýs­ingar um fjölda til­kynntra hóp­upp­sagna verði fram­vegis birtar á heima­síðu stofn­un­ar­innar á öðrum degi hvers mán­aðar. Í lok nóv­em­ber greindi stofn­unin frá hóp­upp­sögn hjá fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Borgun þremur dögum áður en fyr­ir­tækið sjálft var búið að segja upp starfs­mönnum sínum.

Í sam­tali við Vísi föstu­dag­inn 27. nóv­em­ber sagði Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar frá því að 35 manns hefði verið sagt upp í hóp­upp­sögn hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki, en til þessa hefur Vinnu­mála­stofnun veitt upp­lýs­ingar um hóp­upp­sagnir þegar slíkar til­kynn­ingar ber­ast til stofn­un­ar­innar.

Það er oft­ast á allra síð­ustu dögum mán­að­ar­ins. En í þessu til­viki var síð­asti dagur mán­að­ar­ins mánu­dag­ur­inn 30. nóv­em­ber.

Fjölmiðlar og stéttarfélag og starfsmenn fjármálafyrirtækja engu nær

Fjöl­miðlar, meðal ann­arra Kjarninn, reyndu að kom­ast að því hvaða fyr­ir­tæki í fjár­mála­geir­anum hefði verið að segja upp starfs­fólki, án árang­urs.[links]

Í frétt Við­skipta­blaðs­ins, sem skildi eftir fleiri spurn­ingar en svör, var haft eftir Frið­berti Trausta­syni fram­kvæmda­stjóri Samtaka starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja að engin til­kynn­ing um hóp­upp­sögn hefði borist stétt­ar­fé­lag­inu.

Spurning væri hins vegar hvort umrætt fyr­ir­tæki hefði sent Vinnu­mála­stofnun skeyti um upp­sagn­irnar en hygð­ist til­kynna þær starfs­fólki eftir helgi. Það reynd­ist raunin. Á mánu­deg­inum, 30. nóv­em­ber, til­kynnti Borgun að tæp­lega þrjá­tíu starfs­mönnum hefði verið sagt upp.

Viðkvæmar upplýsingar þurfi að berast með réttum hætti

Starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja voru því margir með þessar óljósu fréttir af hóp­upp­sögn í hug­anum síð­ustu helgi mán­að­ar­ins. Áður­nefndur Friðbert segir við Kjarnann að það sé gott að Vinnu­mála­stofnun hafi ákveðið að breyta verk­lagi sínu.

„Það var ekki búið að segja starfs­mönnum Borgunar upp þennan föstu­dag þegar for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar fór með frétt­ina í fjöl­miðla,“ segir Friðbert og bætir við að þetta hafi skapað „mikla óvissu“ hjá öllum starfs­mönnum fjár­mála­fyr­ir­tækja þessa helgi.

Í til­kynn­ingu sem barst fjöl­miðlum í dag segir Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri stofn­un­ar­innar að um sé að ræða erf­iðar og sárs­auka­fullar ákvarð­anir af hálfu fyr­ir­tækja og við­kvæmar upp­lýs­ingar sem snerta hagi fjölda fólks.

„Það er mik­il­vægt að þessar upp­lýs­ingar séu áreið­an­legar og réttar og hafi borist fólki, sem þær kunna að snerta, með réttum hætti og frá réttum aðilum og því er þessi ákvörðun tekin,“ segir Unnur, í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár