Tuttugu og níu sagt upp hjá Borgun

Borgun hefur sagt upp 29 starfs­mönnum, en til­kynnt var um upp­sagn­irnar hjá fyr­ir­tæk­inu í dag.

Borgun greinir frá því í dag að fyr­ir­tækið hafi sagt upp 29 manns í hóp­upp­sögn, sem til­kynnt var um hjá fyr­ir­tæk­inu í dag.

Í frétta­til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins segir að alls hafi verið ráðnir nærri sex­tíu nýir starfs­menn til Borgunar á síð­ustu mán­uðum „í tengslum við yfir­stand­andi umbreyt­ingu Borgunar yfir í þjón­ustu­miðað tækni­fyr­ir­tæki.“

„Á sama tíma hefur verið dregið úr umsvifum á öðrum sviðum fyr­ir­tæk­is­ins til að snúa við rekstr­ar­tapi. Það hefur því miður kallað á fækkun starfs­fólks á þeim sviðum,“ segir í til­kynn­ingu Borgunar.

[adspot]

Borgun var selt til nýrra eig­enda fyrr á þessu ári og í júlí komst fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd Seðla­banka Íslands að þeirri nið­ur­stöðu að alþjóð­lega greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Salt Pay Co Ltd., sem er með skráð aðsetur á Caymaneyjum, væri hæft til þess að fara með ráð­andi eign­ar­hlut í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu.

Greint var frá því í mars að Salt Pay hefði keypt sam­tals tæp­lega 96 pró­senta hlut í félag­inu, 63,5 pró­sent hlut Íslands­banka og rúm­lega 33 pró­senta hlut Borgunar slf. Kaup­verðið nam um 4,3 millj­örðum króna.

Þegar kaupin áttu sér stað var fjöldi starfs­manna Borgunar, sem hefur sér­hæft stig í raf­rænni greiðslu­miðlun, um 130.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár