Fyrsta farþegaflug MAX-vélar í 20 mánuði lenti heilu og höldnu

Farþegar í stuttu inn­an­lands­flugi í Brasilíu í dag gerðu sér fæstir grein fyrir því að þeir væru að taka þátt í sögu­legri stund, þegar þeir hófust á loft í fyrsta far­þega­flug Boeing MAX-þotu síðan í mars 2019.

737-MAX vélarnar hafa verið kyrrsettar á heimsvísu
737-MAX vél­arnar hafa verið kyrr­settar á heims­vísu Mynd: EPA

Boeing 737 MAX-þota brasil­íska lággjalda­flug­fé­lags­ins Gol lenti heilu og höldnu í Porto Alegre, eftir 90 mín­útna flug­ferð frá Sao Paulo fyrr í dag. Um var að ræða fyrsta far­þega­flug þotu af gerð­inni Boeing 737 MAX síðan í mars árið 2019.


Þá voru vél­arnar kyrr­settar á heims­vísu í kjöl­far tveggja mann­skæðra flug­slysa sem rakin voru til gall­aðs hug­bún­aðs í vél­unum.

AFP-frétta­stofan segir frá þessu í dag, en blaða­menn þaðan var um borð í flug­inu í Brasilíu í morgun. Segir í frá­sögn þeirra að fæstir far­þeg­anna hafi gert sér ráð fyrir að þarna væri um að ræða sögu­legan við­burð.

„Ef hún er komin, þá hlýtur það að þýða að hún sé örugg, er það ekki?“ spurði einn maður eftir að blaða­maður tjáði honum að um væri að ræða fyrsta far­þega­flugið með þotu af þess­ari gerð í heila 20 mán­uði.

MAX-vél­arnar fengu flug­leyfi frá banda­rískum flug­mála­yf­ir­völdum í nóv­em­ber­mán­uði, en þar í landi hafa ein­ungis farið fram prufuflug án far­þega til þessa.

Brasil­ísk flug­mála­yf­ir­völd hafa einnig veitt þeim flug­leyfi að nýju. Vinna stendur yfir hjá evr­ópskum flug­mála­yf­ir­völdum við að meta vél­arnar.

Búnir að panta 95 þotur til viðbótar

Gol, sem er stærsta inn­an­lands­flug­fé­lag lands­ins, reið á vaðið og varð fyrsta flug­fé­lag heims til að taka vél­arnar aftur inn í flug­á­ætlun sína.

Brasil­íska félagið hefur sent 140 flug­menn sína á nám­skeið til Boeing til þess að fá þjálfun og kynn­ingu á þeim upp­færslum sem gerðar hafa verið á MAX-vél­unum af hálfu Boeing.

Gol ætlar að vera búið að taka allar sjö MAX-vélar fyr­ir­tæk­is­ins í notkun fyrir enda þessa árs, en til við­bótar hefur flug­fé­lagið lagt inn pöntun á 95 þotum af þess­ari gerð til við­bótar og bíður þess sömu­leiðis að fá 20 slíkar sem þegar hafa verið keyptar sendar frá Banda­ríkj­unum.

Icelanda­ir ger­ir ráð fyr­ir því að MAX-­vél­­arn­ar verði hluti af áætl­­un flug­­­fé­lags­ins næsta vor, sam­kvæmt fjár­festa­til­kynn­ingu þeirra við síð­asta hluta­fjár­út­boð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár