Sérstakir styrkir fyrir mæður sem þurfa að dvelja fjarri heimili fyrir fæðingu

Rík­is­stjórnin sam­þykkti í dag nýtt frum­varp um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof. Áfram er lagt til að hvort for­eldri fái sjálf­stæðan sex mán­aða rétt til orlofs. For­eldrum fjærst fæð­ing­ar­þjón­ustu verður bætt upp að þurfa að dvelja utan heim­ilis fyrir fæð­ingu.

Í nýrri útgáfu af frum­varpi Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og barna­mála­ráð­herra til laga um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof er lagt til að barns­haf­andi for­eldri verði veittur sér­stakur styrkur vegna skerts aðgengis að fæð­ing­ar­þjón­ustu, í þeim til­vikum þar sem for­eldrið þarf að mati sér­fræði­læknis að dvelja fjarri heim­ili sínu fyrir áætl­aðan fæð­ing­ar­dag.

Þetta eru nýmæli í frum­varp­inu, sem var sam­þykkt í rík­is­stjórn í dag og verður lagt fram á Alþingi í fram­hald­inu. Mikil umræða var um frum­varpið í haust og bár­ust alls á þriðja hund­rað umsagnir við frum­varpið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, þar sem það var sett fram til kynn­ingar.[links]

Ein þeirra var frá Byggða­stofnun, sem lagði til að for­eldrum sem búa í þeim lands­byggðum sem eru fjærst fæð­ing­ar­þjón­ustu yrði bætt upp að þurfa að dvelja um lengri tíma utan heim­ilis með við­bót­ar­fæð­ing­ar­or­lofi. Þetta virð­ist að ein­hverju leyti hafa verið tekið til greina, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá félags­mála­ráðu­neyt­inu, en frum­varpið sjálft hefur ekki verið birt.

Jöfn skipting 12 mánaða orlofsins áfram meginreglan

For­eldrar hafa áfram heim­ild til þess að fram­selja einn mánuð af sínum sjálf­stæða rétti til orlofstöku til hins for­eldr­is­ins, þannig að mögu­legt er að annað for­eldrið taki sjö mán­aða orlof en hitt fimm.

Ef aðstæður eru hins vegar með þeim hætti við fæð­ingu barns að annað for­eldrið er ekki til staðar eða getur ekki nýtt rétt sinn til fæð­ing­ar­or­lofs af nokkrum til­greindum ástæðum, getur hitt for­eldrið tekið allt að 12 mán­uði í fæð­ing­ar­or­lof. Þetta á við í eft­ir­töldum til­fellum:

  • Þegar ekki hefur reynst mögu­legt að feðra barn sam­kvæmt barna­lögum.
  • Þegar for­eldri er gert að sæta nálg­un­ar­banni og/eða brott­vísun af heim­ili sam­kvæmt lögum um nálg­un­ar­bann og/eða brott­vísun.
  • Þegar annað for­eldrið hefur ekki rétt til töku fæð­ing­ar­or­lofs/fæð­ing­ar­styrks hér­lendis né heldur sjálf­stæðan rétt til töku orlofs í sínu heima­ríki.
  • Þegar umgengni ann­ars for­eldris við barnið er engin eða hún veru­lega tak­mörkuð, svo sem undir eft­ir­liti ein­vörð­ungu, á grund­velli nið­ur­stöðu lög­mælts stjórn­valds eða dóm­stóla. For­sjár­for­eldri þarf að sækja um þessa til­færslu rétt­inda til Vinnu­mála­stofn­unar sem tekur ákvörðun í mál­inu.

Stærsta breyt­ingin í frum­varp­inu er sú að for­eldrar hafa nú alla jafna jafn langan sjálf­stæðan rétt til töku fæð­ing­ar­or­lofs og stendur sú breyt­ing óhögguð.

Fæð­ing­ar­or­lofið verður líka lengt upp í 12 mán­uði og tekur sú breyt­ing gildi um ára­mót, þegar að búið verður að sam­þykkja frum­varpið á þingi.

Í frétta­til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að gert sé ráð fyrir að 19,1 millj­arði króna verði varið í fæð­ing­ar­or­lof á næsta ári, sem er tæp­lega tvö­földun á þeim fjár­munum sem fóru til mála­flokks­ins árið 2017, á verð­lagi hvors árs.

„Í ár eru tutt­ugu ár liðin frá gild­is­töku laga um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof, sem voru gríð­ar­lega fram­sækin á þeim tíma en það var kom­inn tími til að end­ur­skoða þau og færa til nútím­ans. Þetta frum­varp er stórt skref í þá átt og við viljum að Ísland sé góður staður til þess að eign­ast og ala upp börn, og með þessu frum­varpi erum við að auka enn á rétt­indi for­eldra til sam­vista með börn­unum sínum á fyrstu mán­uð­unum ævi þeirra,“ er haft eftir Ásmundi Einari Daðasyni ráð­herra í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár