Meirihluti vill tillögur Stjórnlagaráðs til grundvallar nýrri stjórnarskrá

Meiri­hluti er hlynntur því að til­lögur Stjórn­laga­ráðs verði lagðar til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun frá Maskínu. Um það bil 2/3 kjós­enda VG segj­ast hlynnt því, en minni­hluti kjós­enda hinna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

Frá mótmælum á Austurvelli í fyrra.
Frá mót­mælum á Aust­ur­velli í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Rúmlega helm­ingur lands­manna, eða 53,5 pró­sent, er hlynntur því að „nýja stjórn­ar­skráin“ sem Stjórn­laga­ráð lagði fram verði lögð til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá Íslands, en 21,3 pró­sent eru því and­víg, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun frá Maskínu sem birt var í dag.

Rúmur fjórð­ungur aðspurðra, eða 25,2 pró­sent, tók ekki afstöðu í aðra hvora átt­ina. Fram kemur í umfjöllun á vef Maskínu að mark­tækt hærra hlut­fall kvenna en karla hafi verið hlynnt, en þó meiri­hluti beggja kynja.

Andstaða við að til­lögur Stjórn­laga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins óx með eftir því sem heim­il­is­tekjur svar­enda hækk­uðu. Um 65 pró­sent þeirra sem hafa lægstar tekjur sögð­ust hlynnt, en ein­ungis 43-44 pró­sent þeirra sem hafa milljón eða meira í heim­il­is­tekjur. Það var eini tekju­hóp­ur­inn þar sem ekki var meiri­hluti hlynntur.

Einungis tæp 16 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokks hlynnt

Mjög mik­ill munur er á afstöðu fólks eftir stjórn­mála­skoð­unum, sam­kvæmt könn­un­inni. Þannig eru um 85-88 pró­sent kjós­enda Pírata og Sam­fylk­ingar hlynnt, næstum 73 pró­sent kjós­enda Flokks fólks­ins, um 64 til 66 pró­sent kjós­enda Við­reisnar og Vinstri grænna og um þriðj­ungur kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins og Mið­flokks­ins, en ein­ungis tæp­lega 16 pró­senta kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

[adspot]

Af þeim sem styðja rík­is­stjórn­ina vilja 38-39 pró­sent leggja til­lögur Stjórn­laga­ráðs til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá en næstum 74 pró­sent þeirra sem ekki styðja rík­is­stjórn­ina.

Mikilvægt?

Tæplega 63 pró­sent svar­enda í könnun Maskínu segja mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá en tæp­lega 20 pró­sent segja það ekki mik­il­vægt. Það er mjög svipað hlut­fall og í nýlegri könnun MMR þar sem fólk var spurt út í það hversu mik­il­vægt því þætti að fá nýja stjórn­ar­skrá.[links]

Konum finnst mik­il­væg­ara en körlum að fá nýja stjórn­ar­skrá, þótt meiri­hluta beggja kynja þyki það mik­il­vægt, sam­kvæmt könn­un­inni. Eftir því sem tekjur hækka finnst svar­endum lít­il­væg­ara að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá.

Maskína segir að „nákvæm­lega sama mynstur“ hafi verið í við­horfi til mik­il­vægis nýrrar stjórn­ar­skrár og spurn­ing­ar­innar um „nýju stjórn­ar­skrá“ Stjórn­laga­ráðs þegar nið­ur­stöður voru skoð­aðar eftir stjórn­mála­skoðun svar­enda.

Einungis fimmt­ungi kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins finnst mik­il­vægt að fá nýja stjórn­ar­skrá en 82-97 pró­sent kjós­enda Flokks fólks­ins, Sam­fylk­ingar og Pírata. Einnig er mik­ill munur eftir því hvort svar­endur styðja rík­is­stjórn­ina, þannig finnst tæp­lega helm­ingi þeirra sem styðja rík­is­stjórn­ina mik­il­vægt að fá nýja stjórn­ar­skrá en slétt 81% þeirra sem styðja hana ekki.

Á bil­inu 81-82 pró­sent þeirra sem finnst mik­il­vægt að fá nýja stjórn­ar­skrá fyrir Ísland eru hlynnt því að leggja til­lögur Stjórn­laga­ráðs til grund­vallar. Að sama skapi eru um 82 pró­sent þeirra sem telja það lít­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá and­vígir því að til­lögur Stjórn­laga­ráðs verði lagðar til grund­vallar.

Um könnunina

Svar­endur í könn­un­inni voru 838 tals­ins og koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) sem er dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur voru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá og end­ur­spegla því þjóð­ina prýði­lega. Könnunin fór fram dag­ana 19.-27. októ­ber 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnlagaráð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár