Tæp 60 prósent landsmanna telja mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá á kjörtímabilinu

Hlutfall þeirra sem telja mjög mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá á kjör­tíma­bil­inu er nú 40 pró­sent, eykst um 8 pró­sentu­stig á milli kann­ana MMR og hefur aldrei áður mælst jafn hátt. Ungu fólki finnst málið mun mik­il­væg­ara en í síð­ustu könnun.

Ungt fólk, á aldrinum 18-29 ára, er líklegast til þess að telja mikilvægt að Íslendingar fái nýja stjórnarskrá, samkvæmt nýrri könnun MMR.
Ungt fólk, á aldr­inum 18-29 ára, er lík­leg­ast til þess að telja mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá, sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Mynd: Úr safni.

Tæplega 60 pró­sent lands­manna telja mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun frá MMR sem fram­kvæmd var dag­ana 10.-23. sept­em­ber, en 25 pró­sent lands­manna telja það lít­il­vægt.

Hlutfall þeirra sem telja mjög mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá er nú 40 pró­sent, eykst um 8 pró­sentu­stig á milli kann­ana MMR og hefur aldrei áður mælst jafn hátt, en rann­sókna­fyr­ir­tækið hefur spurt almenn­ing þess­arar sömu spurn­ingar reglu­lega frá því í sept­em­ber árið 2017.

Tekið skal fram hér að spurn­ingin sem lögð er fyrir í könnun MMR hljóðar svona: „Hversu mik­il­vægt eða lít­il­vægt þykir þér að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili?“.

Fólk er þannig ekki spurt beint um afstöðu til þess með hvaða hætti end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar ætti að fara fram, en það er umdeilt mál á stjórn­mála­svið­inu, eins og síð­ustu ár.

Frumvörp til end­ur­skoð­unar stjórn­ar­skrár í áföngum eru nú til með­ferðar á Alþingi, en yfir 30 þús­und und­ir­skriftum almenn­ings hefur verið safnað til stuðn­ings því að sú stjórn­ar­skrá sem Íslend­ingar kusu um í ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og sam­þykktu með 2/3 hlutum greiddra atkvæða árið 2012 verði lög­fest.

Stuðningur ungs fólks við nýja stjórnarskrá vex mikið

Samkvæmt könn­un­inni er konum meira í mun um það en körlum að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá á kjör­tíma­bil­inu, en 67 pró­sent kvenna sögð­ust telja það mik­il­vægt og 51 pró­sent karla.

Í fyrri könn­unum MMR um mik­il­vægi þess að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá hafa elstu ald­urs­hóp­arnir lagt mesta áherslu á mál­efnið. Svo er einnig nú, en 50 pró­sent þeirra sem eru yfir 68 ára aldri telja það mjög mik­il­vægt.

Mikil breyt­ing verður hins vegar á yngsta ald­urs­hópnum, en hlut­fall þeirra sem eru á aldr­inum 18-29 ára og telja mjög mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá fór úr 24 pró­sentum og upp í 46 pró­sent í þess­ari nýj­ustu könnun.

23 pró­sent á aldr­inum 18-29 ára til við­bótar sögðu málið frekar mik­il­vægt og því er hlut­fall þeirra sem telja end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár mik­il­vægt mál 69 pró­sent í yngsta ald­urs­hópnum.

Fjöldi þeirra sem töldu end­ur­nýjun stjórn­ar­skrár mjög mik­il­væga jókst bæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og utan þess. Sam­an­lagður fjöldi þeirra sem töldu frekar eða mjög mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili mæld­ist nú 62 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 52 pró­sent utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Alls svör­uðu 2.043 ein­stak­lingar 18 ára og eldri könnun MMR og voru þeir valdir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR. Um net­könnun var að ræða, sem fram­kvæmd var dag­ana 10.-23. sept­em­ber, eins og áður sagði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár