Borgaryfirvöld vilja meiri borg og færri bíla

Borg­ar­yf­ir­völd hafa kynnt breyt­ingar á aðal­skipu­lagi Reykja­víkur, sem fram­lengja núgild­andi skipu­lag til árs­ins 2040. Háleit mark­mið eru sett um bygg­ingu 1.000 íbúða á ári að með­al­tali, alls rúm­lega 24 þús­und tals­ins til 2040 ef vöxtur verður kröft­ugur.

Meirihluti borgarstjórnar stendur á bak við þá sýn sem birtist í tillögunum að breyttu aðalskipulagi fram til ársins 2040.
Meiri­hluti borg­ar­stjórnar stendur á bak við þá sýn sem birt­ist í til­lög­unum að breyttu aðal­skipu­lagi fram til árs­ins 2040. Mynd: Bára Huld Beck

Breyt­ingar á aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar voru form­lega kynntar af hálfu borg­ar­innar í gær. Með þeim breyt­ingum sem sam­þykktar hafa verið í borg­ar­ráði er meg­in­stefna núver­andi aðal­skipu­lags sem stað­fest var árið 2014 fest í sessi, en umfangs­miklar breyt­ingar gerðar, sér­stak­lega hvað varðar stefnu borg­ar­innar um íbúð­ar­byggð.

Gild­is­tími aðal­skipu­lags­ins er líka lengdur – og nú mun það verða leið­ar­ljós við þróun borg­ar­innar fram til árs­ins 2040. Kjarninn tók saman nokkra áhuga­verða mola um breyt­ing­arnar sem verið er að gera og hvernig borg­ar­yf­ir­völd sjá fyrir sér að höf­uð­borgin þró­ist næstu næstu 20 árin.

Allt að 24 þúsund íbúðir til 2040 en ekki þörf á að stækka borgina

Reykja­vík­ur­borg ætlar sér að byggja upp af krafti næstu tvo ára­tug­ina og hefur sett sér mark­mið um að skapa skil­yrði til þess að byggðar verði minnst 1.000 nýjar íbúðir á hverju ári fram til 2040 og að 250 þeirra verði byggðar á vegum hús­næð­is­fé­laga sem eru ekki rekin í hagn­að­ar­skyni.

Þetta eru stór­huga áform, miðað við þróun und­an­far­inna tveggja ára­tuga, en sam­kvæmt tölum frá borg­inni mun fjöldi byggðra íbúða á árunum 2011 til 2020 rétt svo skríða yfir 5 þús­und íbúðir, sem eru ögn færri en ára­tug­ina tvo þar á undan.

Í til­lögum borg­ar­yf­ir­valda segir að það ráð­ist „vit­an­lega af stöðu á hús­næð­is­mark­aði, atvinnustigi, efna­hags­horfum hverju sinni hvort ofan­greind mark­mið gangi eftir á ein­stökum árum eða ára­bilum.“ Eðlilegt sé þó að setja háleit mark­mið, þar sem stór­aukið fram­boð íbúða sé trygg­asta leiðin til að skapa ásætt­an­legra hús­næð­is­verð á almennum mark­aði.

Það sem er hins vegar ljóst er að stefnan er að öll þessi upp­bygg­ing íbúð­ar­hús­næðis á að eiga sér stað innan núver­andi vaxt­ar­marka borg­ar­innar fram til árs­ins 2040 og borg­ar­yf­ir­völd telja sig geta byggt mun meira, án þess að borgin belgist út.

[box]

Samkvæmt áætl­unum borg­ar­innar eru sagðir mögu­leikar á 16 þús­und íbúðum vestan Kringlu­mýr­ar­brautar (að Vatns­mýr­ar­svæð­inu með­töldu) og um 7 þús­und íbúðum austan Kringlu­mýr­ar­brautar. Alls eru þetta 23 þús­und íbúðir — bara vestan Elliða­ár­ósa.

Austan Elliða­ár­ósa er mögu­leg fjölgun íbúða svo áætluð um 13-14 þús­und íbúðir á svæðum sem þegar eru skil­greind í aðal­skipu­lag­inu. Alls gætu því rúm­ast allt að 37 þús­und íbúðir á þegar skil­greindum svæðum innan vaxt­ar­marka, eða mun fleiri en þær 24 þús­und íbúðir sem settar eru fram í háleit­ustu mark­miðum borg­ar­yf­ir­valda fram til árs­ins 2040.

Uppbygging til að þjóna Borgarlínu

Ein af lyk­ilá­stæð­unum fyrir því að borg­ar­yf­ir­völd eru að end­ur­skoða aðal­skipu­lagið og þá sér­stak­lega íbúð­ar­byggð­ar­stefn­una núna er sögð vænt­an­leg upp­bygg­ing Borg­ar­línu. Um 90 pró­sent nýrra upp­bygg­ing­ar­svæða í borg­inni sam­kvæmt skipu­lag­inu verða í göngu­fjar­lægð frá Borg­ar­línu eða öðrum góðum almenn­ings­sam­göngum.

„Vegna skipu­lags Borg­ar­línu er mik­il­vægt að þétta byggð­ina enn­frekar í þágu hennar, almennt við bið­stöðvar og sér­stak­lega við skil­greindar kjarna­stöðvar. Á næstu árum þarf einkum að for­gangs­raða upp­bygg­ingu á svæði sem liggja að fyrsta áfanga lín­unnar. Það er sér­lega brýnt að far­þega­grunnur þessa fyrsta áfanga verði styrktur með sem skjótustum hætti,“ segir um breyt­ing­arnar í til­lögum borg­ar­yf­ir­valda, sem hafa það að mark­miði að hlut­deild einka­bíls­ins í öllum ferðum í borg­inni verði komin undir 50 pró­sent árið 2040.

Stokkar

Tveir stokkar, grunn jarð­göng undir bíla­um­ferð, eru á döf­inni í Reykja­vík. Sæbraut­ar­stokkur er kynntur til leiks með breyt­ing­unum á skipu­lag­inu, en ráð­gert er að hann verði tæpur kíló­meter að lengd. Miklu­braut­ar­stokkur á síðan að verða um það bil 1,7 kíló­metrar að lengd, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­lög­unum.

Með því að setja þessar stofn­brautir ofan í jörð­ina er dregið úr umhverf­is­á­hrifum umferðar og borg­ar­bragur bættur í aðliggj­andi hverfum, auk þess sem land­rými losnar undir upp­bygg­ingu.

Við Mikla­braut­ar­stokk­inn gæti mögu­legt nýtt bygg­ing­ar­land orðið heilir 11 hekt­arar og þar er skipu­lagður nýr reitur þar sem í dag eru mis­læg gatna­mót Snorra­brautar og Hring­brautar. Gert er ráð fyrir verslun og þjón­ustu, íbúðum og skipti­stöð almenn­ings­sam­gangna á reitnum.

Land­rýmið sem losnar við Sæbraut­ar­stokk­inn yrði 4 hekt­arar, í miðju nýja hluta Voga­hverf­is­ins þar sem ein af helstu stoppi­stöðvum Borg­ar­línu verður.

Endanleg útfærsla stokka­lausna er þó háð nið­ur­stöðum hug­mynda­leitar sem er í gangi á báðum stöðum og frum­hönnun gatna­mann­virkja og verða nánar útfærðar síðar.

Allavega fimm nýir grunnskólar til 2040

Samkvæmt áætl­unum borg­ar­yf­ir­valda um fjölgun íbúða miðað við kröft­ugan vöxt fólks­fjölda í borg­inni er gert ráð fyrir því að nem­endum í grunn­skólum borg­ar­innar gæti fjölgað um hátt í 4 þús­und fram til árs­ins 2040, en gert er ráð fyrir því að ögn færri nem­endur búi í hverri íbúð árið 2040 en í dag.

Gert er ráð fyrir að það þurfi að byggja að minnsta kosti 5 nýja grunn­skóla í borg­inni til að þjóna nýjum hverfum og sömu­leiðis má gera ráð fyrir því að álag auk­ist á núver­andi skóla vegna þétt­ingu byggðar.[links]

Eins og Kjarninn sagði frá í gær er gert ráð fyrir að nýtt hverfi á Ártúns­höfð­anum, sem gætu orðið allt að 6 þús­und íbúðir, skipt­ist í þrjú skóla­hverfi. Einn skóli til við­bótar verður byggður í nýju Voga­byggð­inni handan við Elliðaár. Þá er gert ráð fyrir nýjum grunn­skóla í Skerja­firði, sem verður fyrsti grunn­skól­inn í vænt­an­legum borg­ar­hluta í Vatns­mýri.

Í til­lögum borg­ar­yf­ir­valda segir að mik­il­vægt sé að hvert upp­bygg­ing­ar­verk­efni verði ávallt metið með til­liti til áhrifa á grunn- og leik­skóla til bæði skemmri og lengri tíma. Slíkt mat geti bæði haft áhrif á tíma­setn­ingar upp­bygg­ingar og gerð og umfang fyr­ir­hug­aðrar upp­bygg­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár