Gosið í Eyjum notað til þess að sýna áhrif fólksflótta

Börnum sem fluttu frá Vest­manna­eyjum vegna goss­ins árið 1973 og afkom­endum þeirra vegn­aði að með­al­tali betur vegna flutn­ing­anna, sam­kvæmt rann­sókn íslenskra hag­fræð­inga.

Nýr vinnu­pappír eftir hag­fræð­ing­ana Jón Steins­son, Emi Nakamura og Jósef Sig­urðs­son um Vest­manna­eyja­gosið sýnir hvernig ytri áföll í eins­leitum bæj­ar­fé­lögum geta leitt til meiri atvinnu­tæki­færa íbúa sem flytja þaðan. Höf­und­arnir segja eld­gosið vera ein­stakan atburð sem gerir þeim kleift að finna orsaka­sam­hengi, en Nóbels­verð­launa­hafar hafa vitnað í grein­ina í umræðu um flótta­fólk.

Nýjasta útgáfa papp­írs­ins, sem ber heitið „The Gift of Moving“, var birt fyrr í mán­uð­inum, en fyrsta útgáfa hans var birt árið 2016. Samkvæmt honum hafði Vest­manna­eyja­gosið árið 1973 langvar­andi áhrif á efna­hag Eyja­manna sem sett­ust að ann­ars staðar í kjöl­far þess. Þetta sést á skóla­göngu barn­anna sem fluttu frá Eyjum, en hún lengd­ist að með­al­tali um fjögur ár vegna flutn­ing­anna.

Áhrifin voru þó ekki jákvæð fyrir alla íbúa Vest­manna­eyja sem fluttu, en hagur for­eldra í þeim fjöl­skyldum sem fluttu í kjöl­far goss­ins versn­aði nokkuð. Að mati Jóns Steins­sonar, eins höf­unda grein­ar­innar, virð­ist ástæða þess vera að for­eldr­arnir beri kostn­að­inn af því að flytja á meðan börnin njóta ábatans.

Vestmannaeyjar ekki „slæmur staður“

Hins vegar bætir Jón við að nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar þýði ekki að öllum hefði vegnað betur ef þau hefðu flutt frá Vest­manna­eyjum, þar sem með­al­tekjur þar eru hærri en t.d. í Reykja­vík. Hins vegar hafi atvinna í bænum verið eins­leit og nær ein­ungis tengd sjáv­ar­út­vegi. Með gos­inu var þeim sem ekki höfðu hæfi­leika í þeirri grein gef­inn hvati til þess að færa sig um set, og höfðu þannig meiri tæki­færi á að finna sér vinnu sér við hæfi.

Jósef Sig­urðs­son, annar höf­unda grein­ar­innar, bætir við að eld­gosið hafi verið ein­stakur atburður sem geri þeim kleift í að leiða í ljós ákveðið orsaka­sam­hengi sem ekki hefði náðst ef ein­ungis væri horft til tekjumunar þeirra sem flytj­ast búferlum og þeirra sem sitja eftir.

Afkomendurnir græddu meira

Til við­bótar við að skoða áhrif á íbú­ana sem fluttu vegna goss­ins skoð­uðu grein­ar­höf­undar áhrif á afkom­endur þeirra. Þetta var gert með hjálp gagna­söfn­unar frá Íslenskri erfða­grein­ingu, og er Kára Stef­áns­syni for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins þakkað sér­stak­lega fyrir hjálp sína. Samkvæmt nið­ur­stöð­unum voru afkom­endur barn­anna sem fluttu vegna goss­ins að með­al­tali sex árum lengur í skóla en þau hefðu verið ef gosið hefði ekki átt sér stað.

Notuð í umræðu um flóttafólk

Nóbels­verð­launa­haf­arnir Abhijit Banerjee og Esther Duflo minnt­ust á rann­sókn Jóns, Jósefs og Nakamura í bók sinni Good Economics for Hard Times sem kom út í fyrra, sem sönnun þess að fólk flytji ekki auð­veld­lega frá heim­ilum sínum, þótt þeir ættu betri efna­hags­leg tæki­færi ann­ars staðar. Samkvæmt Banerjee og Duflo er þetta mik­il­vægt inn­legg í umræð­unni um flótta­fólk, sem sýnir að meira þurfi til heldur en hag­rænir hvatar til þess að margir færi sig um set.

Jón Steins­son og Emi Nakamura eru hjón og hag­fræði­pró­fess­orar við Berkeley-skól­ann í Háskól­ann í Kali­forníu, en Jósef Sig­urðs­son er hag­fræði­lektor við Norwegian School of Economics. Nakamura vann í fyrra virtu John Bates Clark hag­fræði­verð­launin og Jósef vann Peggy & Richard Musgrave-verð­launin í síð­asta mán­uði, líkt og mbl.is greindi frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagfræði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár