Tuttugu þúsunda múrinn rofinn

„Þetta eru svo dásam­lega, ynd­is­lega, stur­læð­is­lega frá­bærar fréttir,“ segir Katrín Odds­dóttir, for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins.

Yfir 20 þús­und manns hafa nú ritað nafn sitt á und­ir­skrifta­lista þar sem þess er kraf­ist að Alþingi virði nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar 20. októ­ber 2012 og lög­festi nýju stjórn­ar­skrána.

„Í kosn­ing­unni sam­þykktu yfir 2/3 hlutar kjós­enda að til­lög­urnar sem kosið var um skyldu verða grund­völlur nýrrar stjórn­ar­skrár. Til­lög­urnar eru heild­stæður sam­fé­lags­sátt­máli, það er ekki Alþingis að velja og hafna ákvæðum úr sátt­mál­an­um. Þjóðin er stjórn­ar­skrár­gjaf­inn og setur vald­höfum mörk en ekki öfugt. Við ætlum ekki að bíða í heilan ára­tug eftir að nýja stjórn­ar­skráin taki gildi og því krefj­umst við aðgerða strax!“ segir í texta sem fylgir með und­ir­skrifta­söfn­un­inni.

Katrín Odds­dóttir, ein for­svars­kona und­ir­skrifta­list­ans og for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, segir á Facebook að nú sé til­efni til þess að ærast úr gleði vegna þess að tutt­ugu þús­unda múr­inn hafi verið rof­inn.

Markmiðið 25 þúsund undirskriftir

„Hugsið ykkur, tutt­ugu þús­und hjörtu sem slá í takt og vilja að hlustað sé á almenn­ing í þessu landi þegar það kemur að sjálfum sam­fé­lags­sátt­mál­anum,“ skrifar Katrín.

Markið er sett á 25 þús­und und­ir­skriftir en söfn­un­inni lýkur þann 19. októ­ber næst­kom­andi. „Þetta eru svo dásam­lega, ynd­is­lega, stur­læð­is­lega frá­bærar fréttir,“ skrifar hún enn fremur í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Vandræði með skráningu

Kjarninn greindi frá því í byrjun sept­em­ber að mikið hefði borið á því að fólk næði ekki að skrá sig á list­ann eða vissi ekki hvort það hefði tek­ist.

[links]Helga Bald­vins Bjarg­ar­dótt­ir, ábyrgð­ar­maður und­ir­skrifta­list­ans, sagði í sam­tali við Kjarnann að nokkrir ein­stak­ling­ar, sem héldu að þeir væru búnir að skrá sig á list­ann, væru ekki á honum – aðrir væru aftur á móti á list­an­um. „Það er greini­lega allur gangur á þessu,“ sagði hún.

„Þetta er svo afhjúp­andi fyrir þetta gall­aða fyr­ir­komu­lag. Bæði það að við fáum ekki list­ann nema að vaða eld og brenni­stein og svo þetta að það er eitt­hvað veru­lega mikið að not­enda­við­mót­inu hjá þeim þegar margir tugir ein­stak­linga eru að lenda í því að halda að þeir séu skráðir á lista og eru það svo ekki,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nýja stjórnarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár