Vandræði með skráningu á undirskriftalista – „Afhjúpandi fyrir gallað fyrirkomulag“

Nú stendur yfir und­ir­skrifta­söfnun þar sem þess er kraf­ist að Alþingi virði nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og lög­festi nýju stjórn­ar­skrána. Margir hafa lent í vand­ræðum með að skrá nafn sitt á list­ann en söfn­unin fer fram á Stafrænu Íslandi.

Þögul mótmæli árið 2018 við þingsetningu til þess að minna á nýja stjórnarskrá á vegum Stjórnarskrárfélagsins.
Þögul mót­mæli árið 2018 við þing­setn­ingu til þess að minna á nýja stjórn­ar­skrá á vegum Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Yfir 17.700 manns hafa nú skráð nafn sitt á und­ir­skrifta­lista þar sem þess er kraf­ist að Alþingi virði nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar 20. októ­ber 2012 og lög­festi nýju stjórn­ar­skrána.

„Í kosn­ing­unni sam­þykktu yfir 2/3 hlutar kjós­enda að til­lög­urnar sem kosið var um skyldu verða grund­völlur nýrrar stjórn­ar­skrár. Til­lög­urnar eru heild­stæður sam­fé­lags­sátt­máli, það er ekki Alþingis að velja og hafna ákvæðum úr sátt­mál­anum. Þjóðin er stjórn­ar­skrár­gjaf­inn og setur vald­höfum mörk en ekki öfugt. Við ætlum ekki að bíða í heilan ára­tug eftir að nýja stjórn­ar­skráin taki gildi og því krefj­umst við aðgerða strax!“ segir í texta sem fylgir með und­ir­skrifta­söfn­un­inni.

Mikið hefur borið á því að fólk nái ekki að skrá sig á list­ann eða viti ekki hvort það hafi tek­ist. Í svari Stafræns Íslands, eða Ísland.is, kemur fram að afrit af list­anum hafi verið keyrt út fyrir helgi og honum komið til for­svars­manna söfn­un­ar­innar svo hægt væri að skoða hvort eitt­hvað vant­aði. Þær stikkprufur sem voru teknar af aðilum – sem vildu meina að skrán­ing hefði ekki skilað sér – hefðu í raun verið á list­anum.

Helga Baldvins Bjarg­ar­dóttir, ábyrgð­ar­maður und­ir­skrifta­list­ans, seg­ist í sam­tali við Kjarnann vera nýbúin að fá list­ann í hend­urnar. Hún segir að nokkrir ein­stak­lingar, sem héldu að þeir væru búnir að skrá sig á list­ann, séu ekki á honum – aðrir séu aftur á móti á list­anum. „Það er greini­lega allur gangur á þessu,“ segir hún.

Eitthvað verulega að notendaviðmótinu

„Þetta er svo afhjúp­andi fyrir þetta gall­aða fyr­ir­komu­lag. Bæði það að við fáum ekki list­ann nema að vaða eld og brenni­stein og svo þetta að það er eitt­hvað veru­lega mikið að not­enda­við­mót­inu hjá þeim þegar margir tugir ein­stak­linga eru að lenda í því að halda að þeir séu skráðir á lista og eru það svo ekki,“ segir hún.

Í svari Þjóð­skrár, sem sér um rekstur þjón­ustu­vers fyrir hönd Ísland.is, við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið kemur fram að umrædd und­ir­skrifta­söfnun sé ein af sex und­ir­skrifta­söfn­unum sem séu virkar á Ísland.is í dag. Áður hafi á sjö­unda tug und­ir­skrifta­safn­ana verið fram­kvæmdar á sam­bæri­legan hátt á Ísland.is og sé skrán­ing á und­ir­skrifta­listana í gangi.

„Mögulegt er að not­endur hafi ekki klárað að skrá sig á list­ann eftir inn­skrán­ingu með raf­rænum skil­ríkjum eða Íslykli eða telji sig ekki vera á list­anum ef þeir sjá ekki nafn sitt þar. Það er þó eðli­legt þar sem list­inn sýnir ein­ungis síð­ustu 10 ein­stak­linga sem hafa skráð sig ásamt heild­ar­tölu þeirra sem hafa skráð sig á list­ann. Önnur nöfn eru þó skráð og fara til ábyrgð­ar­manns lista þegar söfnun er lokið. Einnig getur verið að ein­stak­lingar fari inn á vef­svæðið og sjái að hægt er að skrá sig, en eftir að inn­skrán­ingu er lokið þá ættu þeir að sjá að þeir hafi þegar skráð sig og geti þá afskráð sig ef vilji er fyrir því,“ segir í svari Þjóð­skrár.

Helga bendir á í sam­tali við Kjarnann að auð­vitað séu það ein­hverjir sem hafi skráð sig með röngum hætti á list­ann en það sé vegna gall­aðs not­enda­við­móts. „Það þarf að rekja tækn­ina – getur verið að fólk sem hafi skráð sig rétt sé ekki á list­anum? Það er nátt­úru­lega mjög alvar­legt,“ segir hún.

Ekki hægt að bæta við þýðingum

Helga segir að við­mótið á síð­unni hafi verið gallað alveg frá upp­hafi. „Því þegar ég bý til und­ir­skrifta­list­ann þá sé ég ekki hvernig hann kemur til með að líta út.“ Helga var á þessum tíma til­búin með enska þýð­ingu. Hún setti íslenska text­ann í ákveðið hólf merkt „til­gangur“ og ensku þýð­ing­una í hólf merkt „rök­stuðn­ingur“. Síðan kom á dag­inn að ein­ungis íslenski text­inn birt­ist á und­ir­skrifta­list­anum en ekki enska þýð­ingin. Hún bað um að bæta við enskri og pól­skri þýð­ingu af nákvæm­lega sama texta en ekki var hægt að verða við þeirri bón.

Í svari Þjóð­skrár við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að varð­andi þýð­ingar þá skili ábyrgð­ar­maður list­ans inn ýmsum upp­lýs­ingum við skrán­ingu, þar á meðal sé til­gangur list­ans og sá tími sem opið eigi að vera fyrir skrán­ingar. „Eftir að listi hefur verið settur í loftið er ekki hægt að breyta efn­is­legu inni­haldi eða tíma­setn­ingum list­ans. Þannig er ekki hægt að breyta eða bæta við upp­lýs­ingum eftir að listi fer í loftið og und­ir­skrifta­söfnun er hafin. Engin starfs­maður hefur aðgang að því að breyta listum eða skrán­ingum á lista.“

Á verkefnalista Ísland.is að bæta notendaupplifunina

Stafrænt Ísland fékk fregnir af vand­ræðum með skrán­ingar í síð­ustu viku, að því er fram kemur í svari frá þeim. „Kerfin voru yfir­farin og allar skrán­ingar eru að skila sér. Kerfið er að virka sem skildi en gam­alt kerfi og not­enda­upp­lifunin eftir því. Það birt­ast t.a.m aðeins 10 síð­ustu nöfn sem skráðu sig á list­ann og áfram birt­ist hnappur sem segir „skrá sig á lista“ þó fólk sé búið að skrá sig. Það sér ekki að það sé búið að skrá sig fyrr en það hefur aftur auð­kennt sig inn með raf­rænum skil­ríkjum. Þá breyt­ist hnapp­ur­inn í „afskrá sig af lista“,“ segir í svari Ísland.is.

Skrán­ingar virki þannig vel en not­enda­upp­lifun­ina þurfi að bæta. Það sé á verk­efna­list­anum um end­ur­bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár