Vilja fylgjast með aksturshegðun til að ákveða verð trygginga

VÍS hyggst setja á markað vöru sem fylgist með akstri við­skipta­vina sinna, verð trygg­inga taki svo mið af akstr­inum. Sér­fræð­ingur í per­sónu­vernd segir mik­il­vægt að fólk viti út í hvað það er að fara þegar það veitir sam­þykki fyrir vinnslu á slíkum gögnum.

Höfuðstöðvar VÍS eru í Ármúla.
Höf­uð­stöðvar VÍS eru í Ármúla. Mynd: VÍS

VÍS mun aldrei setja vöru á markað sem ekki sam­ræm­ist per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf. Þetta segir Helgi Bjarna­son, for­stjóri VÍS, í sam­tali við Kjarnann um nýjan Ökuvísi sem til stendur að setja á markað. Fjallað var um Ökuvísi í frétt Vísis fyrir viku. Nýjungin var síðan kynnt með aug­lýs­inga­kápu sem kom með Frétta­blað­inu á þriðju­dag þar sem óskað var eftir fólki til að prófa þessa nýj­ung. Í kjöl­farið spruttu upp umræður um það hvort fyr­ir­tækið sé ekki að ganga of langt í raf­rænu eft­ir­liti með við­skipta­vinum sínum enda muni hegðun þeirra í umferð­inni hafa áhrif á verðið sem þeir svo á end­anum greiða fyrir trygg­ingar.

Ökuvísir lýsir sér þannig að lít­ill kubbur er settur í bíl­inn sem sendir upp­lýs­ingar til síma öku­manns­ins um akst­urs­lag hans. Í gegnum smá­forrit getur öku­mað­ur­inn skoðað nokkra þætti síns akst­urs­lags, svo sem hraði í akstri, hröðun, hemlun og síma­notkun. Út úr þeim þáttum sem metnir eru fæst svo akst­urs­ein­kunn sem VÍS notar til þess að áætla trygg­inga­ið­gjald öku­manns­ins.

Telja vöruna auka öryggi á vegum úti

Helgi seg­ist vera sann­færður um það að Ökuvísir eigi eftir að auka öryggi í umferð­inni. „Ég held að þetta hjálpi okkur öllum að verða betri öku­menn, bæði góðum að verða betri og líka þeim sem eru ekki góðir að verða góðir. Þannig sjáum við þetta fyrir okkur og okkar sýn og okkar trú er að þetta muni fækka slysum í umferð­inni sem er gríð­ar­lega stórt sam­fé­lags­mál,“ segir Helgi.

Helgi telur tækn­ina koma þar að góðum notum. Með tækn­inni geti öku­menn séð hvar þeir geti bætt sig í akstr­inum og nefnir í því sam­hengi þá þætti sem hér hafa verið taldir upp. „Ef við nýtum tækn­ina til þess að hjálpa okkur til að sjá jafn­vel hvað það er, er það hraði, er það hröðun er það hemlun, erum við að nota sím­ann? Það þarf ekk­ert mikið til þess að við verðum betri öku­menn,“ segir hann.

Verð trygginga geti sveiflast milli mánaða

Líkt og áður segir var þessi nýja vara frá VÍS kynnt í fyrsta sinn í frétt Vísis þar sem Helgi var til við­tals. Þar var sagt frá því að þeir öku­menn sem aki var­lega geti vænst þess að verð trygg­inga þeirra lækki umtals­vert. En getur verð trygg­inga þá ekki allt eins hækkað ef ekið er óvar­lega?

„Ef þú ert að keyra vel og kannski lítið einn mán­uð­inn og keyrir í næsta mán­uði meira eða af ein­hverjum ástæðum ert að keyra verr, þá getur iðgjaldið hækkað alveg eins og það getur lækkað. Það er samt hitt sem að mér finnst mest spenn­andi við þetta, það er að vinna með þeim sem að geta bætt akst­urs­lagið sitt á mjög fók­user­aðan máta,“ svarar Helgi. Hann segir að í dag sé hámarks­verð á trygg­ingum og það verði þannig einnig fyrir fólk sem notar Ökuvísi.

Vill minnka vægi tjóna í verðlagningu

Spurður að því hvernig akst­urs­ein­kunnin eigi eftir að vega inn í verð trygg­ingar segir Helgi að það sé enn í skoðun. Verk­efnið sé á byrj­un­ar­stigi og að end­an­leg útfærsla liggi ekki fyrir. Helgi segir verð­lagn­ingu trygg­inga hingað til hafa mið­ast of mikið við tjóna­sögu og þessu vill hann breyta. „Ef þú lendir í tjóni þá hækka oft iðgjöldin þín og það er það sem okkur langar til að horfa meira frá og horfa til þess hversu vel þú ert að keyra. Ef þú keyrir vel þá get­urðu alveg lent í tjóni. En við viljum verð­launa fyrir gott akst­urs­lag. Við viljum horfa til þess að það sé akst­urs­lagið frekar en tjóna­sagan sem hefur áhrif á verð trygg­ing­anna og það er það sem við erum að horfa til með þess­ari nálgun,“ segir Helgi.

Spurður að því hvað slæmir öku­menn megi þá búast við, fái þeir sér öku­vísi segir Helgi: „Mín algjöra trú er sú að það sem þeir mega búast við er að þeir verði, í sam­starfi við okkur, betri öku­menn.“

Persónuvernd upplýst um verkefnið

Að sögn Helga þarf mikil vinna í verk­efn­inu að eiga sér stað áður en Ökuvísir er til­bú­inn fyrir markað sem gert er ráð fyrir að verði um ára­mót. Einn af þeim þáttum sem þarf að huga vel að er að allt sé í sam­ræmi við per­sónu­vernd­ar­lög en Helgi segir að Per­sónu­vernd sé upp­lýst um verk­efnið. Eitt af því sem þarf að eiga sér stað fyrir almenna útgáfu Ökuvísis sé einmitt sam­tal og sam­ráð við Per­sónu­vernd.

Helgi bendir á að það sé á ábyrgð fyr­ir­tækja að starfa í sam­ræmi við per­sónu­vernd­ar­lög og að það sé ekki per­sónu­verndar að sam­þykkja til­tekna vöru. „Það er mik­il­vægt að hafa í huga að við myndum aldrei setja vöru í loftið sem ekki er í sam­ræmi við per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf­ina. Við leggjum mikla áherslu á að eiga náið og þétt sam­tal við Per­sónu­vernd um Öku­vís­inn,“ segir hann.

Samþykki er aðalatriðið að mati sérfræðings

Kjarninn tók Hörð Helga Helgason einnig tali en hann er lög­maður hjá Lands­lögum og sér­fræð­ingur í per­sónu­vernd. Hvað finnst honum um þessa tækni út frá sjón­ar­horni per­sónu­verndar?

„Eins og þessu er lýst þá stendur til að þetta verði gert á grund­velli upp­lýsts sam­þykkis hinna skráðu og það er svo sem grund­völlur sem hægt er að byggja á þegar farið er í vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga. Þá er hægt að byggja á því að hinn skráði hefur gefið sam­þykki sitt fyrir vinnsl­unni. Það mik­il­væg­asta í þessu er að hann sé vel með­vit­aður um hvaða afleið­ingar þetta getur haft og hvað það hafi í för með sér að veita slíkt sam­þykki,“ segir Hörður um málið.

Hörður segir gæta þurfi vel að skil­yrðum per­sónu­vernd­ar­laga þegar unnið er með per­sónu­upp­lýs­ingar og gögn sem safnað er saman um ein­stak­linga. „Það verður að gæta að ákveðnum skil­yrðum þegar unnið er með þau. Þannig að ef að þau skil­yrði eru upp­fyllt og sam­þykkið sem slíkt er upp­lýst, frjálst og óþvingað þá sé ég ekki í hendi mér neitt sem ætti að koma í veg fyrir þetta,“ segir hann.

Tíðkast víða erlendis

Hörður segir að sam­bæri­leg þjón­usta hafi tíðkast um nokk­urt skeið erlendis. „Meðal ann­ars innan hins evr­ópska efna­hags­svæðis sem býr við sömu per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf eins og við. Áhyggj­urnar hafa aðal­lega lotið að þessu að fólk átti sig alveg örugg­lega á öllu því sem að fylgir, að það sé uppi á borðum hvernig farið verði með þessar upp­lýs­ingar og að því gengnu þá er í sjálfu sér í sjálfs­vald hvers og eins sett hvað hann sam­þykkir mikið af ein­hverri svona hnýsni,“ segir Hörður.

Herði finnst umræðan um per­sónu­vernd­ar­mál eiga það til að keyra um þver­bak. „Það er merki­legt með þessi per­sónu­vernd­ar­mál að þau ýmist springa út í mjög heitri umræðu mjög hratt og fólk verður ofboðs­lega hneykslað. Eða þá að því finnst eitt­hvað vera alveg sjálf­sagt. Það þarf alltaf meira og meira til þess að fólk fari í þann gír, maður er orð­inn svo dof­inn fyrir þessu. Megnið af þessu er eitt­hvað sem við erum bara farin að sam­þykkja og gefum þannig eftir af okkar einka­lífi fyrir þæg­indin,“ segir Hörður að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár