Gylfi: Hætta á ferðum í þjóðfélögum þegar enginn þorir að standa upp

Pró­fessor í hag­fræði segir merki­legt að sjá það pláss sem tals­mönnum hags­muna­sam­taka er gefið í fjöl­miðlum dag eftir dag til að halda uppi áróðri. Hann segir hag­fræði­legt tóma­rúm hafa verið til staðar frá því að Þjóð­hags­stofnun var lögð niður.

Gylfi Zoega
Gylfi Zoega Mynd: Skjáskot

„Það er hætta á ferðum í þjóð­fé­lögum þegar eng­inn þorir að standa upp og benda á þær hættur sem eru fram undan eða það sem betur mætti fara. Í ein­ræð­is­ríkjum eru slíkir ein­stak­lingar teknir í karp­húsið svo að aðrir sitji kyrrir. Í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lögum geta hags­muna­að­ilar eða mis­kunn­ar­laus meiri­hluti gengið hart að þeim sem fram stígur.“

Þetta skrifar Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, í grein í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar sem barst áskrif­endum í dag.

Þar fjallar hann hann um það hag­fræði­lega tóma­rúm sem skap­að­ist þegar stjórn­völd ákváðu að leggja niður Þjóð­hags­stofnun árið 2002. Gylfi segir að Alþing­is­menn, rík­is­stjórn lands­ins og þjóð­fé­lagið allt eigi það skilið að sett sé upp stofnun þar sem hag­fræði­leg grein­ing sé fram­kvæmd svo að ákvarð­anir séu vand­aðar og umræða í sam­fé­lag­inu upp­lýst­ari og minna lituð af þeim sem hafa sér­hags­muni sem fari ekki alltaf saman við almanna­hag.

Engin greinarmunur gerður í fjölmiðlum

Með því að skapa og varð­veita það hag­fræði­lega tóma­rúm sem skap­að­ist þegar Þjóð­hags­stofnun var lögð niður fyrir 18 árum hafi stjórn­völd hér á landi búið til aðstæður þar sem hags­muna­sam­tök geta fyllt tóma­rúmið með ein­hliða mál­flutn­ingi. „Grein­ing­ar­deildir bank­anna og stjórn­endur þeirra fylltu tóma­rúmið fyrir 2008 og vitnað í tals­menn þeirra eins og þeir væru óháðir aðilar. Þau voru ein­ungis að vinna vinn­una sína og gátu varla fjallað um allt sem þau vildu.“

[adspot]Í fjöl­miðlum sé enn þá yfir­leitt eng­inn grein­ar­munur gerður á þeim sem stöðu sinnar vegna geta verið óháðir og hinum sem starfa sinna vegna þurfa að vernda hags­muni vinnu­veit­enda. „Það er merki­legt að sjá það pláss sem tals­mönnum hags­muna­sam­taka er gefið í fjöl­miðlum dag eftir dag vegna þess að þeir eru eðli máls sam­kvæmt að halda uppi áróðri fremur en að upp­lýsa. Reyndar má ganga lengra og spyrja hvaða hags­munum fjöl­miðl­arnir sjálfir þjóna.“

Sagði opnun landsins mistök

Gylfi skrif­aði aðra grein í Vis­bend­ingu, sem birt­ist 7. ágúst, sem vakti gríð­ar­lega athygli og varð til þess að hann var gagn­rýndur af stjórn­mála­mönnum og hags­muna­gæslu­að­ilum.

[links]Í þeirri grein setti Gylfi fram það mat að stjórn­völd hefðu gert mis­tök með því að opna landið fyrir ferða­mönnum um miðjan júní. Þau hafi ofmetið kosti þess en van­metið þá hættu sem slík opnun skap­aði fyrir efna­hags­líf­ið. Ekki hafi verið gerð heild­stæð athugun á efna­hags­legum áhrifum opn­un­ar­innar við und­ir­bún­ing henn­ar. „Með ákvörð­unum sínum um opnun lands­ins hafa stjórn­völd stefnt mik­il­vægum almanna­gæðum í hættu sem eru þau gæði að geta hitt annað fólk, lært með öðru fólki, unnið með öðru fólki og verslað við annað fólk. Og þar með er efna­hag lands­ins einnig stefnt í hætt­u.“

Viku síðar var greint frá ákvörðun stjórn­valda um að herða veru­lega tak­mark­anir á landa­mærum Íslands með því að skylda alla ferða­menn í tvö­falda skimun og fimm til sex daga sótt­kví á milli þeirra.

Gylfi segir í grein­inni sem birt­ist í dag að þeim skrifum hafi verið ætlað að vera inn­legg í umræð­una en ekki alls­herj­ar­dómur. „Einungis í því tóma­rúmi sem hér hefur verið á sviði hag­fræði­legrar grein­ingar hefðu slík grein­ar­skrif getað valdið titr­ingi í stjórn­málum og bein­skeyttum rit­stjórn­ar­greinum í dag­blöðum.“

Hér að ofan er ein­ungis brot úr ítar­legri grein Gylfa í nýj­ustu Vís­bend­ingu. Hægt er að ger­ast áskrif­andi að rit­inu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár