Seðlabankinn gerir ráð fyrir sjö prósent samdrætti landsframleiðslu í ár

Sam­dráttur lands­fram­leiðslu milli ára á öðrum árs­fjórð­ungi er sá mesti frá upp­hafi árs­fjórð­ungs­legra þjóð­hags­reikn­inga. Sam­drátt­ur­inn er samt sem áður minni en gert hafði verið ráð fyrir í maí en upp­færð grunn­spá SÍ var birt í Pen­inga­málum í dag.

Peningamál Seðlabanka Íslands komu út í dag samhliða stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar.
Pen­inga­mál Seðla­banka Íslands komu út í dag sam­hliða stýri­vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar. Mynd: Seðlabanki Íslands

Útlit er fyrir að sam­dráttur á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins hafi verið sá mesti frá upp­hafi árs­fjórð­ungs­legra þjóð­hags­reikn­inga. Þetta kemur fram í nýjum Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands sem komu út í dag sam­hliða stýri­vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar en nefndin ákvað að halda stýri­vöxtum í einu pró­senti.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að horfur fyrir seinni hluta árs­ins séu lak­ari heldur en spáð var í maí. Nefndin gerir hins vegar ráð fyrir að sam­drátt­ur­inn á árinu öllu verði nokkru minni en þá var gert ráð fyrir. Þar vegur þyngst að einka­neysla var kröft­ugri í vor og sumar. Óvissan sé hins vegar óvenju mikil.

Gera ráð fyrir sjö prósenta samdrætti landsframleiðslu

Í Pen­inga­málum kemur fram að talið sé að þjóð­ar­út­gjöld hafi dreg­ist saman um átta pró­sent á öðrum fjórð­ungi árs­ins pró­sent milli ára. Við þetta bæt­ist nei­kvætt fram­lag utan­rík­is­við­skipta svo í heild er gert ráð fyrir að lands­fram­leiðsla hafi dreg­ist saman um tæp­lega ell­efu pró­sent. „Gangi þetta eftir yrði það mesti sam­dráttur á einum árs­fjórð­ungi frá upp­hafi árs­fjórð­ungs­legra þjóð­hags­reikn­inga,“ segir í Pen­inga­málum.

Þrátt fyrir met­sam­drátt er hann minni en búist var við í maí­spá Seðla­bank­ans. Þá var gert ráð fyrir að sam­drátt­ur­inn yrði tæp­lega 15 pró­sent. Í Pen­inga­málum segir að það sem helst hafði áhrif á að sam­dráttur á fjórð­ungnum hafi ekki orðið jafn mik­ill og við var búist hafi verið neyslu­út­gjöld heim­ila, Þau hafi ekki gefið eins mikið eftir á fyrri hluta árs­ins og ótt­ast var í maí.

Horf­urnar fyrir árið í heild eru einnig betri í nýj­ustu spá Seðla­bank­ans heldur en í spánni frá því í maí. Búist er við því að sam­dráttur fyrir árið í heild verði sjö pró­sent en í maí var búist við því að sam­drátt­ur­inn yrði átta pró­sent á árinu. Engu að síður eru horfir fyrir seinni hluta árs­ins lak­ari nú heldur en gert var ráð fyrir í maí. Ástæðan fyrir því er sú að far­ald­ur­inn hefur víða færst í auk­ana á ný.

[links]

Einkaneyslan niður um tíu prósent

Líkt og áður segir var sam­dráttur í einka­neyslu minni en spáð hafði verið fyrir um í maí. Talið er að einka­neysla hafi dreg­ist saman um tíu pró­sent milli ára á öðrum árs­fjórð­ungi. Sam­drátt­ur­inn hafi ekki orðið jafn mik­ill vegna þess hve hratt far­ald­ur­inn gekk niður í vor. Auk þess gekk vel að mæta eft­ir­spurn heim­ila í gegnum net­verslun heldur en gert hafði verið ráð fyrir.

Þróun einka­neyslu það sem eftir lifir árs mun ráð­ast að miklu leyti af því hversu vel tekst til með að halda far­aldr­inum í skefjum að mati Seðla­bank­ans. Gert er ráð fyrir því að hún drag­ist saman um sjö pró­sent á milli ára á seinni helm­ingi árs­ins og að heild­ar­sam­dráttur einka­neyslu í ár verði 5,8 pró­sent. Það er minni sam­dráttur en gert hafði verið fyrir í maí. Batinn á næsta ári verði hins vegar hæg­ari.

Gera ráð fyrir tíu prósent atvinnuleysi

Í spá Seðla­bank­ans er talið að atvinnu­leysi verði um tíu pró­sent undir lok árs og rúm­lega sjö pró­sent að með­al­tali á árinu öllu. „Vegna hag­stæð­ari þró­unar efna­hags­mála á fyrri hluta árs­ins hefur atvinnu­leysi ekki auk­ist eins mikið og ótt­ast var í maí en hluta­bóta­leið stjórn­valda, minnk­andi atvinnu­þátt­taka og fjölgun hluta­starfa hafa einnig átt þátt í því að atvinnu­leysi jókst minna en ella,“ segir í sam­an­tekt spár­innar.

Í spánni segir enn fremur að heild­ar­vinnu­stundum hafi fækkað um 7,2 pró­sent á milli ára á öðrum árs­fjórð­ungi sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­könnun Hag­stof­unnar og er það mesta fækkun heild­ar­vinnu­stunda sem mælst hefur á einum árs­fjórð­ungi frá þriðja fjórð­ungi árs­ins 2009. Vinnu­stunda­fækk­unin sé þó minni en gert var ráð fyrir í maí.

Samdráttur útflutnings verði 28 prósent á árinu

„Á heild­ina litið er talið að útflutn­ingur hafi dreg­ist saman um tæp­lega 40% milli ára á öðrum fjórð­ungi árs­ins og að sam­drátt­ur­inn á árinu öllu verði ríf­lega 28% sem er aðeins minni sam­dráttur en spáð var í maí. Horfur fyrir næstu tvö ár hafa hins vegar lítið breyst,“ segir um þróun útflutn­ings í spá Seðla­bank­ans.

Á fyrsta árs­fjórð­ungi dróst útflutn­ingur á vörum og þjón­ustu um 17,2 pró­sent sem var mesti sam­dráttur útflutn­ings í einum fjórð­ungi frá upp­hafi árs­fjórð­ungs­legra þjóð­hags­reikn­inga árið 1995. Þjón­ustu­út­flutn­ingur dróst saman um 16,2 pró­sent á fyrsta fjórð­ungi. Áhrif far­sótt­ar­innar á vöru­út­flutn­ing var minni en á þjón­ustu­út­flutn­ing. „Ef horft er fram hjá útflutn­ingi skipa og flug­véla dróst vöru­út­flutn­ingur saman um 4,5% á fjórð­ungnum, einkum vegna sam­dráttar í útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða,“ segir í Pen­inga­málum. Í spá bank­ans er engu að síður gert ráð fyrir að sam­dráttur í útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða verði minni en áætlað var. Dreifing á alþjóða­mark­aði hefi gengið betur en ótt­ast var og eft­ir­spurn meiri en spáð var.

Mikill samdráttur í helstu viðskiptalöndum Íslands

Þá segir í Pen­inga­málum að lands­fram­leiðsla helstu við­skipta­landa Íslands hafi dreg­ist saman um 1,9 pró­sent á milli ára á fyrsta árs­fjórð­ungi og áætlað er að sam­drátt­ur­inn verði tæp­lega 13 pró­sent á örðum fjórð­ungi árs­ins. Sam­drátt­ur­inn hafi því orðið meiri en gert var ráð fyrir í maí­spá bank­ans.

„Það er mesti sam­dráttur sem mælst hefur í þró­uðum ríkjum frá upp­hafi árs­fjórð­ungs­legra þjóð­hags­reikn­inga og er hátt í þrisvar sinnum meiri sam­dráttur á einum árs­fjórð­ungi en mest varð í alþjóð­legu fjár­málakrepp­unni fyrir lið­lega ára­tug,“ segir í Pen­inga­málum um sam­drátt helstu við­skipta­landa Íslands.

Í Pen­inga­málum er sagt frá örv­un­ar­að­gerðum seðla­banka helstu iðn­ríkja til þess að reyna að sporna við áhrifum far­ald­urs­ins. Þeir hafa haldið vöxtum sínum óbreyttum eftir að hafa lækkað þá tölu­vert við upp­haf heims­far­ald­urs. Þá hafa þeir beitt örv­un­ar­að­gerðum sem leitt hafa til stór­felldrar stækk­unar á efna­hags­reikn­ingi þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár