„Hvort sem okkur líkar betur eða verr“ er ríkissjóður aðalleikarinn

Guðrún Johnsen hag­fræð­ingur segir að rík­is­sjóður þurfi að auka skuldir hratt og greiða þær hægt niður, til þess að takast á við hag­ræn áhrif veiru­far­ald­urs­ins. Hún segir nauð­syn­legt að allir í sam­fé­lag­inu finni að tekið sé til­lit til þeirra hags­muna.

Guðrún Johnsen hagfræðingur og efnahagsráðgjafi VR á fundinum í dag.
Guðrún Johnsen hag­fræð­ingur og efna­hags­ráð­gjafi VR á fund­inum í dag. Mynd: Skjáskot úr útsendingu af fundinum

Rík­is­sjóður er aðal­leik­ar­inn í þessu verk­efni, sagði Guðrún Johnsen hag­fræð­ingur og efna­hags­ráð­gjafi VR, er hún fór yfir hag­ræn áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í erindi sínu á sam­ráðs­fundi stjórn­valda um hvernig eigi að lifa með veirunni, sem fram fer í dag.

„Rík­is­sjóður er í aðal­hlut­verki í að koma okkur yfir gjánna sem nú hefur opn­ast fyrir fótum okkar, hvort sem okkur líkar betur eða verr,“ sagði Guðrún, sem fór yfir þau áhrif sem veiru­far­ald­ur­inn hefur haft á heims­hags­kerfið. Hún nefndi að 14 pró­sent færri vinnu­stundir hefðu verið unnar á heims­vísu og að talið væri að 400 milljón störf hefðu tap­ast.[links]

Guðrún fór einnig yfir sam­an­burð á skulda­stöðu rík­is­sjóða og benti á að Ísland væri í með­al­lagi skuld­sett miðað við önnur OECD-ríki og hefði aukið skuld­irnar minna en mörg önnur ríki á milli áranna 2007 og 2019. Hún sagði að hlut­verk rík­is­sjóðs á þessum óvissu­tímum væri mik­il­vægt, það þyrfti að auka rík­is­út­gjöld hratt og lækka skuldir hægt.

Efna­hags­legu við­brögðin þyrftu þó að vera hnit­miðuð og að stjórn­völd þyrftu að passa að búa ekki til ofþenslu í einum geira í sam­fé­lag­inu til þess að bæta upp fyrir slak­ann í öðrum geirum, til að verð­bólga færi ekki að láta á sér kræla ofan á allt annað.

Hærri atvinnuleysisbætur leiði ekki til meira atvinnuleysis

Varðandi vinnu­mark­aðs­að­gerðir af hálfu hins opin­bera sagði Guðrún að vitað væri að ef hið opin­bera hjálp­aði til við að segja upp fólki, leiddi það til hærra atvinnu­leysis. Að sama skapi sagði hún að það væri ekk­ert sem sýndi fram á að hóf­lega hækk­aðar atvinnu­leys­is­bætur myndu valda meira atvinnu­leysi.

[adspot]

„Hvort sem þær eru hækk­aðar um 20 þús­und eða 25 þús­und, til eða frá, það skiptir engu máli varð­andi atvinnu­leysi,“ sagði Guðrún og sagði það sökum þess að atvinnu­leys­is­trygg­ingin væri tíma­bundin.

Hún sagði þó að hið opin­bera þyrfti að grípa til aðgerða til þess að hjálpa fólki að færa sig á milli starfs­greina og að launa­fólk þyrfti að sama skapi að auka sveigj­an­leika sinn og hafa vilja til þess að þjálfa sig inn í ný störf. 

Töluvert hefur verið rætt um atvinnu­leys­is­bætur í sam­fé­lag­inu að und­an­förnu og hafa Samtök atvinnu­lífs­ins til dæmis farið í sér­staka aug­lýs­inga­her­ferð á sam­fé­lags­miðlum þar sem varað er við hækkun þeirra, á meðan að Alþýðu­sam­band Íslands hefur sett fram kröfu um að bætur verði hækk­aðar.

Reikna má með að tek­ist verði á um atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið á vett­vangi stjórn­mál­anna á næst­unni, en Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði í við­tali í Kast­ljósi í gær­kvöldi að honum hugn­að­ist ekki að ráð­ast í þá hækkun grunnatvinnu­leys­is­bóta sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur farið fram á. Frekar kæmi til greina í hans huga að fram­lengja tíma­bundið tekju­teng­ing­ar­tíma­bil atvinnu­leys­is­bót­anna, sem er í dag þrír mán­uðir.

„Það þarf að vera hvati til að stíga skref inn á vinnu­mark­að­inn,“ sagði Bjarni í Kast­ljósi. Fjár­mála­ráð­herra sagð­ist hafa farið um landið í sumar og rætt við marga atvinnu­rek­endur sem hefðu tjáð honum að erfitt væri að fá fólk til starfa þrátt fyrir stöð­una á vinnu­mark­aði.

Félagslegt virði veirufrelsis mikið

Guðrún sagði í erindi sínu að það stjórn­völd þyrftu á næst­unni að „bæta skað­ann og vinna frið­inn,“ í þeirri mein­ingu að öllum hópum í sam­fé­lag­inu þætti að til­lit hefði verið tekið til þeirra hags­muna þegar ákvarð­anir voru teknar um fórnir.

Hún sagði að það væri til mik­ils að vinna með því að reyna að halda sam­fé­lag­inu hér veiru­fríu, því að ef gert væri ráð fyrir því að hver og einn ein­stak­lingur væri til­bú­inn að greiða 1.000 krónur á dag fyrir það að geta lifað „eðli­legu lífi“, hitt fjöl­skyldu og vini að vild, farið og notið menn­ingar, farið út að skemmta sér, þá væru það gæði sem mætti verð­meta á 120 millj­arða króna á árs­grund­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár