Útgáfufélag Fréttablaðsins tapaði 212 milljónum í fyrra

Rekstr­ar­tekjur útgáfu­fé­lags­ins sem á Frétta­blaðið, Hring­braut, DV og tengda miðla dróg­ust saman á síð­asta ári og tap varð á rekstr­inum.

Torg ehf., útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, tap­aði 212 millj­ónum króna á síð­asta ári eftir að hafa skilað 39 millj­óna króna hagn­aði árið 2018. Rekst­ar­nið­ur­staða félags­ins (EBITDA) fyrir fjár­magns­gjöld, afskriftir og skatta var nei­kvæð um 59 millj­ónir króna, en afskriftir námu alls 138 millj­ónum króna. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir að kostn­aður vegna sam­ein­ingar við sjón­varps­stöð­ina Hring­braut og DV og tengda miðla hafi allur verið færður til gjalda á síð­asta ári. Rekstr­ar­tekjur Torgs voru 2,3 millj­arðar króna en höfðu verið 2,6 millj­arðar króna árið áður og dróg­ust saman um yfir tíu pró­sent milli ára. Hjá Torgi starfa um 100 manns.

[adspot]Félag í eigu Helga Magn­ús­son­ar, fjár­festis og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, keypti helm­ings­hlut í Torgi um mitt ár í fyrra. Í októ­ber keyptu Helgi og sam­starfs­menn hans hinn helm­ing­inn auk þess sem sjón­varps­stöð­inni Hring­braut var rennt inn í rekst­ur­inn. Hún hafði þá verið rekin í umtals­verðu tapi og var skil­greind sem á fallandi fæti.

[links]Helgi átti eftir það 82 pró­sent í Torgi en aðrir eig­endur eig­anda útgáfu­fé­lags­ins, félags­ins HFB-77 ehf., eru Sig­urður Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Hring­brautar og við­skipta­fé­lagi Helga til margra ára, með tíu pró­sent hlut, Jón G. Þór­is­son, rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, með fimm pró­sent hlut, og Guð­mundur Örn Jóhanns­son, fyrr­ver­andi sjón­varps­stjóri Hring­brautar og nú fram­kvæmda­stjóri sölu, mark­aðs­­mála og dag­­skrár­­gerðar hjá Torg­i.

Á fimmt­u­­dags­­kvöldið 13. des­em­ber greindi Kjarn­inn frá því að Torg, útgáfu­­fé­lag Frétta­­blaðs­ins, væri að kaupa DV og tengda miðla af Frjálsri fjöl­mið­l­un. Útgáfu­­fé­lögin stað­­festu svo kaupin dag­inn eft­­ir. Ástæðan fyrir kaup­unum var sögð vera erfitt rekstr­ar­um­hverfi, en Frjáls fjöl­miðlun var rekin með miklu lausu tapi frá því að félagið var stofnað til að kaupa DV og tengdra miðla árið 2017.

Með kaup­unum á DV og tengdum miðlum var Torg orðið að einu stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár