Tekjur Kjarnans jukust og rekstrarniðurstaða í takti við áætlanir

Rekstur Kjarnans miðla, útgáfu­fé­lags Kjarnans, skil­aði hóf­legu tapi á árinu 2019. Umfang starf­sem­innar var aukið á því ári og tekju­stoðir hafa styrkst veru­lega síð­ustu miss­eri.

Kjarninn miðlar, útgáfu­fé­lags Kjarnans og Vís­bend­ingar, tap­aði 5,7 millj­ónum króna á árinu 2019. Rekstr­ar­nið­ur­staðan er í takti við áætl­anir stjórn­enda Kjarnans en hlutafé félags­ins var aukið lít­il­lega um mitt síð­asta ár til að standa straum að skipu­lags­breyt­ingum sem fólu í sér frek­ari manna­ráðn­ingar. Tekjur juk­ust lít­il­lega milli ára og gjöld juk­ust um tæp sjö pró­sent. Á árinu 2018 juk­ust tekjur Kjarnans um fjórð­ung frá árinu á undan.

Á árinu 2019 hætti Kjarninn sam­starfi við aðra miðla sem staðið hafði yfir í nokkur ár. Annars er um að ræða sjón­varps­stöð­ina Hring­braut, sem rann inn í fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Torg á síð­asta ári, og hins vegar frí­blaðið Mannlíf, sem í dag er í útgáfu­hléi.

Það sem af er árinu 2020 hafa tekjur Kjarnans frá síð­asta ári vaxið og allt bendir til þess að útgáfu­fé­lagið rekið í jafn­vægi í ár. Ef væntir styrkir til Kjarnans úr rík­is­sjóði vegna áhrifa COVID-19 far­ald­urs­ins á fjöl­miðlaum­hverfið, sem taka mið af rekstri miðla í fyrra, væru bók­færðir á árinu 2019 þá hefði Kjarninn raunar skilað hagn­aði á því ári einnig.

Eyrún Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Kjarnans, segir að fyr­ir­tækið sé nú með sjálf­bært rekstr­ar­módel þar sem rekst­ur­inn byggir alfarið á þremur reglu­legum tekju­stoðum: styrkjum frá les­endum í gegnum Kjarna­sam­fé­lagið, áskrift­ar­tekjum vegna Vís­bend­ingar og enskra frétta­bréfa og aug­lýs­inga­sölu, sem fer fram í gegnum þriðja aðila. Um 90 pró­sent af öllum tekjum fari í að greiða starfs­mönnum laun.

[adspot]Á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 2020 hafi lestur Kjarnans stór­auk­ist þegar miðað sé við sama tíma­bil í fyrra. „Notendum hefur fjölgað um 46 pró­sent, nýjum not­endum um 58 pró­sent, inn­litum um rúm­lega 32 pró­sent og flett­ingum um 22 pró­sent. Lest­ur­inn hefur verið meiri í hverri ein­ustu viku það sem af er ári, en í sömu viku í fyrra.“

Mest hefur aukn­ingin í lestri verið í yngri ald­urs­hóp­unum og hjá kon­um. Fjöldi les­enda í ald­urs­hópnum 18-24 ára hefur til að mynda tvö­fald­ast.

Kjarn­inn miðlar er fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sem var stofnað 2013, og er því sjö ára um þessar mund­ir. Það rekur frétta­vef­inn Kjarninn.is, gefur út dag­­­legan morg­un­­­póst og heldur úti hlað­varps­­­þjón­­­ustu. Þá gefur Kjarn­inn út Vís­bend­ingu, viku­­­rit um við­­­skipti, efna­hags­­­mál og nýsköp­un, og ensk frétta­bréf.

Rit­­stjórn­­­ar­­stefna Kjarn­ans er að leggja áherslu á gæði og dýpt í umfjöll­unum sín­­um. Verulega hefur verið skerp á þeim áherslum síð­ast­lið­inn tvö ár.

Hlut­hafar Kjarn­ans miðla ehf.:

  • HG80 ehf. í eigu Hjálm­ars Gísla­son­ar 17,68%
  • Mið­eind ehf. í eigu Vil­hjálms Þor­steins­sonar 17,21%
  • Birna Anna Björns­dótt­ir 11,80%
  • Magnús Hall­dórs­son 11,32%
  • Þórður Snær Júl­í­us­son 10,01%
  • Hjalti Harð­ar­son 7,59%
  • Fagri­skógur ehf. í eigu Stef­áns Hrafn­kels­son­ar 4,67%
  • Milo ehf. í eigu Gumma Haf­steins­sonar og Eddu Haf­steins­dótt­ur 4.67 %
  • Voga­bakki ehf. í eigu Árna Hauks­sonar og Hall­björns Karls­sonar 4,67%
  • Charlotta María Hauks­dóttir og Úlfar Erlings­son 4,67%
  • Birgir Þór Harð­ar­son 2,37%
  • Jónas Reynir Gunn­ars­son 2,37%
  • Fanney Birna Jóns­dótt­ir 0,93%
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár