Í frægri tilraun lögðu sálfræðingar við Stanford háskóla eftirfarandi þraut fyrir börn á leikskólaaldri: Barnið kom inn í herbergi þar sem fyrir voru stóll, borð, diskur með girnilegu sælgæti (sykurpúða), auk stjórnanda tilraunarinnar. Stjórnandinn sagði barninu að hann þyrfti að skreppa frá. Barninu var jafnframt sagt að það mætti eiga og borða sælgætið. Ennfremur að ef sælgætismolinn væri óhreyfður þegar stjórnandinn kæmi til baka (eftir 15 mínútur) myndi öðrum mola verða bætt við. Niðurstöður tilraunarinnar voru þær að um þriðjungur barna sem tók þátt fékk 2 sælgætismola.
Meirihlutinn, tvö af hverjum þremur börnum, höfðu ekki þrautseigju eða sjálfsstjórn til að bíða þó í boði væri tvöföldun ávinnings. Endurteknar tilraunir hafa gefið sömu niðurstöðu. Síðan hafa sálfræðingar eytt miklu púðri í að skýra skapgerð, bakgrunn og uppeldi þeirra barna bíða eftir seinni molanum og borið saman við sömu eiginleika hinna sem láta sér nægja einn mola „strax“. Skal það ekki rakið frekar í bili. En þann lærdóm má af tilrauninni hafa að mannfólkinu er ekki áskapað að neita sér tímabundið um glaðning, jafnvel þó ávinningur af frestuninni sé ríkulegur (100% ávöxtun á 15 mínútum). Sú hugsun að það geti verið hagstætt að neita sér um eitthvað gott í dag ef meir gæði eru í boði síðar er lærð, ekki meðfædd.
[adspot]Því er þetta rifjað upp að Covid-19 býður upp á sykurpúða-tilraun í breyttu formi og á áður óþekktum skala. Með því að beita takmörkunum á fjölda þeirra sem geta komið saman í opinberu rými og með því að fyrirskipa „samskiptafjarlægð“ (social distancing) er hægt að „fletja kúrfuna“ og draga mjög úr áhrifum farsóttarinnar á líf og heilsu heilu þjóðanna. En rétt eins og á sér stað í sykurpúðatilrauninni sem lýst var að framan kemur ávinningurinn af að beita samskiptafjarlægð og samkomubanni ekki í ljós fyrr en eftir ákveðinn biðtíma. Og lokaður bar eða matsölustaður sem lokar matsalnum skapa hvorki tekjur fyrir eigandann eða neysluánægju fyrir neytandann. Af þessu getur orðið óþol og pirringur: Viðskiptavinahópurinn (eða a.m.k. hluti hans) er tilbúinn til að borða og drekka, fara í líkamsrækt, láta klippa sig. Og þá velta eigendur (eða talsmenn veitingagreinarinnar, líkamsræktargreinarinnar, hótelanna, flugfélaganna) fyrir sér rétt eins og leikskólabörnin í Stanfordtilrauninni: Af hverju ekki að hunsa samskiptafjarlægð og samkomubann og borða sykurpúðann strax? Hann er þarna núna! Rétt er að halda því til haga að eigendur þeirra fyrirtækja sem verða fyrir barðinu á samskiptafjarlægðarreglu eru ekki að sækjast eftir gróða og sælgæti, þeir vilja forðast tap. En vandinn er sá að það tap sem má forða á fyrstu stigum stigmögnunar farsóttar er svo margfalt minna en það tap sem má forða takist að „fletja kúrfuna“ og koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar samkvæmt veldisvaxtarformúlu.
Hvað skal gera þegar eðlisávísun og meðfædd viðbragðsmynstur knýr marga til að valda sér og öðrum tjóni? Gott fordæmi, upplýsing, kennsla og fræðsla auk lagaboða eru þau tæki sem notuð eru. Kristnum er kennt að breyta eins og frelsari þeirra breytti (þó sumum gangi það illa), reynt er að kenna börnum og unglingum að spara og fjárfesta (fjármálalæsi). Launþegum og sjálfstætt starfandi er skylt samkvæmt lagaboði að leggja umtalsverðan hluta tekna í lífeyrissjóð, enda sýnir sykurpúðatilraunin að ótryggt er að treysta því að unglingar hugsi til elliáranna.
Tilraunasálfræðingarnir í Stanford fylgdust með atferli þátttakendanna í sykurpúðatilrauninni eftir að stjórnandinn fór úr herberginu á sjónvarpsskjá. Eins og við mátti búast reyndu margir þátttakenda bæði að borða sykurpúðann og geyma hann með því að taka örlitla flís. Þeim sem lengst komst tókst að borða megnið af púðanum en skilja „skurn“eftir svo það leit út fyrir að ekki hefði verið hreyft við sælgætinu!
Í baráttu við drepsótt grípa margir til svipaðra aðferða og reyna að sannfæra stjórnvöld um að það sé í lagi að undanþiggja þeirra rekstur frá ákvæðum um samskiptafjarlægð og samkomubönn. Að ekki þurfi að taka sýni af öllum sem koma erlendis frá, að ekki þurfi að íþyngja með greiðslu fyrir sýnatöku, að ekki sé neinn munur á að loka öldurhúsum og veitingahúsum klukkan ellefu að kvöldi eða tólf að kvöldi (eða eitt að nóttu eða....). Þetta er fullorðinsaðferðin við að borða flís af sykurpúðanum í þeirri von að það skaði ekki ávinninginn sem gæti orðið.
[adspot]Í baráttu við drepsótt þarf að beita öllum brögðunum í bókinni ef vel á að takast. Gott upplýsingaflæði frá sóttvarnaryfirvöldum og góðar tillögur almannavarnaryfirvalda duga skammt ef ríkisstjórn og pólitískir áhrifamenn tala viðbrögðin niður eins og dæmin sanna. Það þarf staðfestu og skýra sýn og skilning til að standa gegn öllum hagsmunaaðilunum sem vilja fá smá flís af sykurpúðanum, bara smá rýmkun á reglum, bara smá fleiri erlenda ferðamenn, bara smá lengri opnunartíma, bara smá rýmri fjöldareglur fyrir samkomur.
Reynsla síðustu daga sýnir svart á hvítu að eftirlátssemi gagnvart samskiptafjarlægð og smitvörnum er fljót að verða kostnaðarsöm. Nú virðist sem rýmkun á skimunarskyldu á landamærum Íslands geti sett stórt strik í reikninginn þegar kemur að skólahaldi í haust. Sömuleiðis er líklegt að ótímabær og/eða of víðtæk opnun landamæra dragi mjög úr möguleikum fyrir tónleikahald, leikhús og aðrar fjöldasamkomur sem fyrst og fremst eru sóttar af innlendum neytendum. Ákvarðanir um beitingu samskiptafjarlægðar og samkomutakmarkana og skimun á landamærum voru, að því er virðist, teknar á grundvelli þrýstings hagsmunagæslumanna og þröngra hagsmuna umbjóðenda þeirra. Ekki á grundvelli hagræns uppgjörs á kostnaði og ábata. Nágrannar okkar í Noregi létu vinna slíkt uppgjör í apríl s.l. Þar kom fram að mestu skiptir að halda útbreiðslu niðri og komast hjá að loka skólum og leikskólum vegna þess hversu hamlandi slíkar lokanir eru á atvinnulífið almennt. Íslensk stjórnvöld þekkja til þeirrar vinnu en hafa ekki látið vinna tilsvarandi álitsgerð mér vitanlega. Það er skaði því hugsanlega hefði niðurstaða slíkrar vinnu haft áhrif. Kannski værum við ekki að velta fyrir okkur að Zoom-væða skólakerfið annað misserið í röð, hver veit?
Höfundur er prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir