„Stutta svarið er já“ – grímur geta komið í veg fyrir smit

Rann­sóknir hafa sýnt, án nokk­urs vafa, að and­lits­grímur geta komið í veg fyrir COVID-19-smit á milli ein­stak­linga. Þetta skrifar Jón Magnús Jóhann­es­son, deild­ar­læknir á Land­spít­ala, í nýju svari á Vís­inda­vefnum.

Rannsóknir hafa sýnt, án nokkurs vafa, að andlitsgrímur geta komið í veg fyrir COVID-19-smit á milli einstaklinga. Grímurnar gera þó mest gagn við ákveðnar aðstæður og þær þarf að nota á réttan hátt.
Rann­sóknir hafa sýnt, án nokk­urs vafa, að and­lits­grímur geta komið í veg fyrir COVID-19-smit á milli ein­stak­linga. Grím­urnar gera þó mest gagn við ákveðnar aðstæður og þær þarf að nota á réttan hátt. Mynd: EPA

Þegar aðgerðir vegna auk­innar útbreiðslu COVID-19 hér á landi voru hertar síð­asta dag júlí­mán­aðar voru hlífð­ar­grímur í fyrsta sinn nefndar til sög­unnar í okkar bar­áttu við veiruna. Eftir að hafa heyrt á upp­lýs­inga­fundum almanna­varna og land­læknis í vetur að grímur gerðu vissu­lega gagn en gætu einnig veitt falskt öryggi og að ekki þætti ástæða til að hvetja til notk­unar þeirra komu þessi nýju til­mæli mörgum á óvart. Enda létu Íslend­ingar ekki sitt eftir liggja og keyptu grímur í gáma­vís. Strætó boð­aði grímu­skyldu en dró það síðan til baka eftir að sótt­varna­yf­ir­völd skerptu á til­mælum sínum sem nú eru á þessa leið hvað almenn­ings­sam­göngur varðar: Nota skal and­lits­grímu í almenn­ings­sam­göngum vari ferð lengur en 30 mín­útur.

En hafa rann­sóknir sýnt að and­lits­grímur komi í veg fyrir að fólk smiti og/eða smit­ist af COVID-19? Og ef svo er skiptir þá máli hvernig gríma er notuð?

Þannig hljóð­aði spurn­ing blaða­manns Kjarnans sem send var Vís­inda­vefnum á dög­unum og nú hefur borist svar við. Það er Jón Magnús Jóhann­es­son, deild­ar­læknir á Land­spít­al­anum, sem er til svars.

„Stutta svarið við fyrri spurn­ing­unni er ein­fald­lega já,“ svarar Jón Magús. „Rann­sóknir hafa sýnt, án nokk­urs vafa, að and­lits­grímur geta komið í veg fyrir COVID-19-smit á milli ein­stak­linga.“

[adspot]

Sjúk­dóm­ur­inn COVID-19 verður vegna sýk­ingar af veirunni SARS-CoV-2 sem dreif­ist fyrst og fremst með dropa- eða snert­ismiti. Þegar við hóstum, hnerrum og tölum berst ara­grúi örsmárra dropa frá önd­un­ar­fær­unum. „Ef ein­stak­lingur er sýktur af SARS-CoV-2 eru þessir dropar gjarnan hlaðnir veirum,“ skrifar Jón Magnús. „Drop­arnir ber­ast síðan mis­langt áfram og geta lent í munni ann­arra, höndum eða á yfir­borði hluta í næsta nágrenni.“

Stærð dropa og hversu langt þeir ferð­ast er ýmsu háð. Til dæmis þeyt­ast fleiri dropar og lengra þegar við hnerrum og hóstum en þegar við tölum. „Grímur grípa yfir­gnæf­andi meiri­hluta dropa frá önd­un­ar­færum og varna því að þeir ber­ist lengra. Þetta þýðir að grím­urnar geta bæði stöðvað dropa sem við gefum frá okkur og dropa sem ber­ast til okkar frá vitum ann­arra.“

Af hverju er okkur þá ekki ráð­lagt að vera alltaf með grímu þegar far­aldur COVID-19 geisar?

Ýmis atriði flækja málið og geta virst rugl­andi, skrifar Jón Magnús. Grímur gagn­ast við að koma í veg fyrir smit en virkni þeirra er lang­mest við skil­greindar aðstæður. Enn­fremur þarf að nota þær á réttan hátt til að árangur náist:

  • Hendur þurfa að vera hreinar áður en gríma er sett á.
  • Gríman þarf að hylja nef og munn.
  • Ekki má snerta sjálfa grímuna eftir að hún er komin á.
  • Ekki ætti að taka grímuna niður nema næsti ein­stak­lingur sé í minnst tveggja metra fjar­lægð.
  • Aðeins á að snerta böndin þegar gríma er tekin niður, henni skal fleygja á öruggan hátt og hendur þvegnar að því loknu.
  • Ef nota þarf grímu í langan tíma á að skipta reglu­lega til að koma í veg fyrir raka­mettun (á sér­stak­lega við um einnota grímur).

Fjölnota grímur þarf að þvo dag­lega (aðferð fer eftir gerð grímu).

En við hvaða skil­greindu aðstæður virka grímur best?

COVID-19-smit á sér helst stað þegar ein­stak­lingar eru í miklu návígi, það er í innan við tveggja metra fjar­lægð. Smit­hættan eykst með tíma og er meiri í lok­uðu rými en úti. Nýjar ráð­legg­ingar um notkun gríma í sam­fé­lag­inu miða við að þær séu not­aðar þar sem hætta er á smiti, einkum þar sem tíma­bundið þarf að víkja frá tveggja metra regl­unni. Jón Magnús bendir á að smám saman hafi komið betur í ljós að ein­kenna­litlir eða -lausir berar SARS-CoV-2 geta smitað aðra sem þýðir að ein­stak­lingar geta verið smit­andi án þess að hafa hug­mynd um það. Grímur geti hins vegar komið í veg fyrir slík smit. „Helsti ókost­ur­inn við almenna notkun gríma, fyrir utan ranga notkun, er að hún getur veitt falskt öryggi og leitt til þess að fólk slaki á tveggja metra regl­unni,“ skrifar hann. „Tak­mörkun á fjar­lægð og almenn smit­gát eins og hand­þvottur og til­lits­semi við hósta eða hnerra (í oln­boga­bót) er öfl­ug­asta vörnin.“

Hvernig grímur á að nota?

Á heil­brigð­is­stofn­unum eru not­aðar sér­stakar fínagna­grímur eða veiru­grímur þegar um stað­fest COVID-19-smit er að ræða. Slíkar grímur sía út örfínar agnir með það að mark­miði að stoppa dropa af öllum stærðum og gerðum. „Þær koma í veg fyrir svo­kallað úða­smit þar sem veirur geta dreifst með örfínum úða en hann hangir í loft­inu í stað þess að falla vegna þyngd­arafls,“ skrifar Jón Magnús. Úðasmit virð­ist ekki vera veiga­mikil dreif­ing­ar­leið fyrir COVID-19 og skiptir mestu máli við ákveðin inn­grip á spít­ölum. „Í sam­fé­lag­inu dugar vel að nota hefð­bundnar skurð­grímur. Einnig hefur notkun taugríma auk­ist. Slíkar grímur eru í raun efni í annað svar en í stuttu máli er gagn­semi þeirra aðeins tryggð ef viss gerð af taui er notuð og lög grímunnar í það minnsta þrjú.“

Er þá ávinn­ingur af því að nota grímur úti í sam­fé­lag­inu?

„Það fer eftir ýmsu, meðal ann­ars sam­fé­lags­gerð, hegðun fólks og því hvort grím­urnar eru rétt not­aðar,“ svarar Jón Magnús. Hann segir grímur geta verið gagn­legar en almennt sé talið að svokölluð fjar­lægð­ar­tak­mörkun (e. physical distancing), það er að við­halda tveggja metra reglu, fara ekki á stór manna­mót og vera sem minnst í návígi við aðra sé besta leiðin til að koma í veg fyrir smit.

„Ef fjar­lægð­ar­tak­mörk­unum er við­haldið eru grímur í raun belti með axla­böndum,“ skrifar hann. „Þá eru þær óþarfa við­bót með til­heyr­andi kostn­aði og óþæg­indum.“ Notkun gríma getur þó gert tíma­bundna nálægð ein­stak­linga örugg­ari svo fram­ar­lega sem þær eru not­aðar á réttan hátt. Margar rann­sóknir hafa verið gerðar til að meta gagn­semi gríma í miðjum far­aldri en nið­ur­stöð­urnar eru langt frá því að vera skýrar vegna ýmissa óvissu­þátta.

Leið­bein­ingar um grímunotkun hér­lendis eru skýrar að mati Jóns Magnúsar. Þær eiga ekki að koma í stað tveggja metra regl­unnar eða ann­arra leiða til að tryggja fjar­lægð á milli fólks. Aðeins skal nota grímu þegar ekki er hægt að við­halda tveggja metra regl­unni. Mik­il­vægt er þá að nálægðin vari sem styst.„Afar ólík­legt er að smit­ast af ein­stak­lingi sem gengið er fram­hjá utandyra í örfáar sek­úndur,“ bendir hann á. „Að sitja við hlið smit­bera í strætó er hins vegar annað mál og einn hósti getur leitt til smits þó að nálægðin sé aðeins í nokkrar mín­útur. Grím­urnar gera okkur þannig kleift að við­halda góðri smit­gát við aðstæður sem væru ann­ars hættu­legar okkur og öðrum. Þannig getum við farið í klipp­ingu, ferð­ast með strætó og verslað í mat­vöru­verslun og verndað bæði okkur sjálf og aðra. Önnur atriði smit­gátar skipta þó áfram mestu máli við smit­varnir.“

Jón Magnús tekur svo helstu atriðin saman með þessum hætti:

  • Grímur koma ekki í stað tveggja metra reglu, almennrar smit­gátar og hrein­lætis.
  • Grímur virka helst þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjar­lægð í nokkurn tíma.
  • Grímur virka til að koma í veg fyrir smit, bæði til okkar og frá okkur til ann­arra.
  • Mik­il­vægt er að nota grím­urnar rétt, sam­an­ber leið­bein­ingar að ofan.
  • Skurð­gríma dugar vel í sam­fé­lag­inu en sér­stakar veiru­grímur á að nota við ákveðnar aðstæður, aðal­lega innan heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Hér má lesa ítar­legt svar Jóns Magnúsar á Vís­inda­vefnum í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár