Risaskjaldbökur eru „sannarlega mestu sæfarar jarðar“

Þær snúa alltaf aftur til sömu strandar og þær sjálfar klökt­ust út á. Svo sækja þær ávallt í sömu ætis­stöðv­arnar. Grænar risa­skjald­bökur rata alltaf heim þó að þær villist oft mörg hund­ruð kíló­metra af leið.

Græn risaskjaldbaka getur synt þúsundir kílómetra í leit að varpstöðvunum.
Græn risa­skjald­baka getur synt þús­undir kíló­metra í leit að varp­stöðv­unum.

Þegar sæskjald­bökur klekj­ast úr eggjum sínum og koma upp úr sandi strand­anna skríða þær í ofboði til sjávar og hverfa svo sjónum ofan í hið stóra haf. Mörgum árum seinna koma svo kven­dýrin aftur til nákvæm­lega sömu strandar og þau klökt­ust út á. Þá hafa þau sum hver farið mörg þús­und kíló­metra leið. Og þegar þau snúa til baka gera þau það í einum til­gangi: Að verpa eggjum sínum.

Svo hefst þessi hringrás á ný. Og svo kyn­slóð fram af kyn­slóð.

Lengi hefur verið talið að risa­skjald­bök­urnar sem synda um í heims­höf­unum noti seg­ul­svið jarðar til að rata en margt hefur þó verið á huldu um hegðun þeirra. Í nið­ur­stöðum nýrrar rann­sóknar, sem birtar voru nýverið í vís­inda­tíma­rit­inu Current Biology, og gerð var m.a. með því að setja GPS-tæki á risa­skjald­bökur, kemur fram að þó að þær hafi að lokum fundið strönd­ina sína hafi þær ekki synt þangað stystu leið. Þær not­ist því við nokk­urs konar gróft landa­kort á ferða­lag­inu.

„Ég held að við höfum haft þá ímynd í höfð­inu að skjald­bökur ferð­uð­ust um eins og lest á teinum,“ segir Alex Rattray, með­höf­undur rann­sókn­ar­innar og vís­inda­maður við Deakin-háskóla í Ástralíu. „En við komumst að því að þær gera mis­tök, þær hitta ekki á áfanga­stað­inn, þær fara fram hjá honum og að þær leita hans mikið.“

Skjald­bök­urnar snúa ekki aðeins aftur til fæð­ing­ar­staðar síns heldur fara þær líka aftur og aftur til sömu svæða í ætis­leit. Aðrar rann­sóknir hafa jafn­vel sýnt fram á að svo heit­bundnar eru þær ætis­stöðvum sínum að þær synda jafn­vel fram­hjá svæðum þar sem mun meira æti er að finna.

Vís­inda­menn­irnir sem þátt tóku í rann­sókn­inni festu GPS-tæki á 35 sæskjald­bökur er þær voru á varp­stöðvum sínum. Um leið og þær höfðu orpið fóru þær í sjó­inn og leit­uðu uppi ætis­stöðv­arnar. En þangað fóru þær fæstar beina leið. Margar þeirra fóru oft mörg hund­ruð kíló­metra af leið áður en að því kom.

„Okkur kom einnig á óvart hversu langa leið sumar þeirra fara,“ var haft eftir Graeme Hays, aðal­höf­undi rann­sókn­ar­innar sem er pró­fessor við Deakin-háskóla, í til­kynn­ingu um rann­sókn­ina. „Sex af skjald­bök­unum fóru meira en 4.000 kíló­metra leið með aust­ur­strönd Afríku, frá Mósambík til Sómalíu. Þannig að þessar skjald­bökur fara meira en 8.000 kíló­metra fram og til baka frá varp­stöðvum sínum á Chagos-eyjum.“

Rann­sóknin leiddi einnig í ljós að þó að dýrin virt­ust oft vill­ast af leið um tíma hefðu þau hæfi­leika til að taka rétta stefnu á ný. Engin þeirra villt­ist algjör­lega. „Þær fundu að lokum leið­ina heim,“ er haft eftir Rattray í til­kynn­ingu. „Þetta eru ótrú­legar skepnur. Og þær eru sann­ar­lega mestu sæfarar jarðar.“

Grænar risa­skjald­bökur, eins og þær sem fylgst var með í rann­sókn­inni, eru í útrým­ing­ar­hættu. Net og eyði­legg­ing búsvæða er þeirra helsta ógn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár