Reyna að leiða kjaradeilu Herjólfs og Sjómannafélagsins til lykta í dag

Meiri­hluti áhafnar Herjólfs boð­aði til verk­falls í upp­hafi þessa mán­aðar. Tvívegis hefur komið til vinnu­stöðv­unar og að öðru óbreyttu hefst þriggja sól­ar­hringa vinnu­stöðvun á mið­nætti.

Ef til vinnustöðvunar kemur á miðnætti verður hún sú þriðja í röðinni.
Ef til vinnu­stöðv­unar kemur á mið­nætti verður hún sú þriðja í röð­inni. Mynd: Vegagerðin

Viðræður milli Sjó­manna­fé­lags Íslands og stjórnar Herjólfs ohf. halda áfram í dag vegna verk­falls sjó­manna Herjólfs. Að öðru óbreyttu hefst vinnu­stöðvun áhafnar Herjólfs á mið­nætti og stendur í þrjá sól­ar­hringa.

„Þetta þarf að klár­ast við samn­inga­borðið og það er verk­efni dags­ins,“ segir Guð­bjartur Ellert Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Herjólfs Ohf., í sam­tali við Kjarnann. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um hvar hafi strand­aði í við­ræðum milli deilu­að­ila. „Nú eru menn bara að tala saman og við skulum sjá hvað kemur út úr því.“

Gamli Herjólfur siglir í verkfalli

Ef til vinnu­stöðv­unar kemur mun Herj­ólfur III sigla á milli lands og eyja og hann mann­aður sjó­mönnum sem ekki eru í Sjó­manna­fé­lagi Íslands. Rætt hefur verið um verk­falls­brot í sam­hengi við þessa ráð­stöfun stjórnar Herjólfs ohf. Guð­bjartur telur ekki að um verk­falls­brot sé að ræða þegar sjó­menn úr öðru stétt­ar­fé­lagi sáu um ferðir Gamla Herjólfs milli lands og eyja.

„Það er alveg við­ur­kennt í félags­dómi að félags­menn í Sjó­manna­fé­lagi Íslands hafa fengið þennan rétt til að boða til verk­falls. Að sama skapi þýðir það að aðrir og önnur stétt­ar­fé­lög sem hafa aðkomu að und­ir­mönnun á skip­inu eru ekki í verk­falli. Af því leiðir að þeir eru með vinnu­skyldu og við getum þá siglt á þeim. Þannig að við erum í sjálfu sér ekki að brjóta nein lög og þetta er þá aðrir í áhöfn en þeir sem eru í Sjó­manna­fé­lagi Íslands. Það er ekk­ert verið að nota starfs­menn úr því félagi enda eru þeir í verk­falli,“ segir Guð­bjartur.

„Þetta er klárt verkfallsbrot“

Bergur Þor­kels­son, for­maður Sjó­manna­fé­lags­ins, segir í sam­tali við Kjarnann að um klárt verk­falls­brot sé að ræða og að Sjó­manna­fé­lagið hygg­ist kæra það til félags­dóms.

Þegar Bergur er spurður um það hvort hann sé bjart­sýnn fyrir því að við­ræður dags­ins skili árangri seg­ist hann vera bjart­sýnn að eðl­is­fari. Ekki sé hægt að leggja mat á það hvort að við­ræður dags­ins skili árangri enda funda­höld skammt á veg komin.

Horfa til lífskjarasamningsins

Aðspurður um hvort Sjó­manna­fé­lagið hafi eitt­hvað slegið af sínum kröfum segir Bergur: „Við tökum annan vinkil á þetta. Þeir hafa vísað í sínum skrifum svo mikið í lífs­kjara­samn­ing­inn svo við tókum bara vinkil þangað. Eitt af atriðum lífs­kjara­samn­ings­ins er vinnu­tíma­stytt­ing. Við sjáum hvernig við getum útfært það.“

Í því sam­hengi segir hann starfs­fólk Herjólfs vinna mikið eins og staðan er í dag. „Þetta fólk vinnur núna 190 tíma í mán­uði og 67 pró­sent af því er í yfir­vinnu. Þannig að við skulum sjá hvort að við finnum ekki far­sæla lausn á þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár