Fyrrum eigendur Mjólku vilja skaðabætur frá Mjólkursamsölunni

Stofn­endur og fyrrum eig­endur Mjólku fara fram á að MS við­ur­kenni skaða­bóta­skyldu vegna sam­keppn­is­brota sem hafi leitt til þess að Mjólka fór í greiðslu­þrot. Brot MS hafa verið stað­fest fyrir dóm­stólum og fyr­ir­tækið greitt sektir vegna þeirra.

Stofn­endur og fyrrum eig­endur Mjólku hafa stefnt Mjólk­ur­sam­söl­unni vegna þess sem þeir langvar­andi, ítrek­aðra og alvar­leg brota á sam­keppn­is­lögum af hálfu MS. Með stefn­unni nú fara fyrr­ver­andi eig­endur Mjólku fram á MS við­ur­kenni skaða­bóta­skyldu sína gagn­vart þeim.

Í stefn­unni, sem send hefur verið á fjöl­miðla, kemur fram að beint tjón af ólög­mætri hátt­semi MS sé metið á 58,9 millj­ónir króna, en að óbeint tjón sé mun meira og hafi haft það í för með sér að Mjólka stóð frammi fyrir greiðslu­þroti í árs­lok árið 2009.[links]

Lands­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í mars­mán­uði að MS ætti að greiða alls 480 millj­ónir króna í stjórn­valds­sekt vegna brota á sam­keppn­is­lögum, fyrir að hafa mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína og mis­munað við­skipta­að­ilum sínum þegar kom að því að selja hrá­mjólk til fram­leiðslu á mjólk­ur­vörum.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafði áður kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að MS hefði með þessu brotið mjög alvar­lega gegn sam­keppn­is­lögum. Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá árinu 2016 sagði að hátt­semi MS, sem seldi Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga hrá­mjólk á lægra verði en öðrum á mark­aði, hefði verið til þess fallin að veita þeim veru­legt sam­keppn­is­for­skot.

[adspot]

Upp komst um þessa hátt­semi MS fyrir hálf­gerða slysni. Árið 2012 fékk Ólafur M. Magn­ús­son, sem áður stóð í stafni hjá Mjólku, sendan reikn­ing frá MS sem var stíl­aður á Mjólku II þegar hann sjálfur var byrj­aður með KÚ, sem einnig var að kaupa hrá­mjólk af MS.

Þá komst hann að því að MS var að selja KS hrá­mjólk­ina á nokkuð lægra verði en honum sjálfum. Í kjöl­farið til­kynnti hann það til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem fór að skoða málið.

Brot MS hafa verið stað­fest fyrir dóm­stólum og nú fara stofn­endur Mjólku, sem áður segir, fram á að MS við­ur­kenni skaða­bóta­skyldu sína gagn­vart þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár