RÚV sér fram á allt að 300 milljóna tekjusamdrátt á næsta starfsári

Útvarps­stjóri greindi starfs­fólki RÚV frá því í dag að sam­dráttur í aug­lýs­inga­tekjum fyr­ir­tæk­is­ins á fyrri hluta árs­ins 2020 hafi leitt til þess að tekjur hafi verið 150 millj­ónum króna undir áætlun. Fyr­ir­sjá­an­legt sé að staðan muni vara um lengri tíma.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur RÚV hafa fallið umtals­vert á síð­ustu mán­uðum vegna sam­dráttar í aug­lýs­inga­tekjum. Á árinu 2020 eru raun­tekjur þegar 150 millj­ónum krónum undir áætl­uðum tekjum vegna þessa og búist er við 200 til 300 milljón króna tekju­sam­drætti á næsta starfs­ári. Tekist verður á við þessa stöðu með hag­ræð­ing­ar­að­gerðum sem fela meðal ann­ars í sér fækkun á starfs­fólki og með því að bjóða starfs­fólki yfir 65 ára aldri að lækka við sig starfs­hlut­fall um helm­ing.

Þetta kemur fram í bréfi sem Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri sendi á starfs­fólk klukkan 14:00 í dag.

Þar segir Stefán að fyr­ir­sjá­an­legt sé að staðan muni vara um lengri tíma. Hún hafi verið til umræðu á síð­ustu stjórn­ar­fundum fyr­ir­tæk­is­ins auk þess sem stjórn­endur ein­stakra sviða og ein­inga hafi farið yfir mögu­legar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir til bæði lengri og skemmri tíma. „Á fundi stjórnar RÚV ohf. í vik­unni kynnti ég þessa vinnu í grófum dráttum, stöðu hennar og næstu skref. Við nálg­umst þetta verk­efni eins og áður með yfir­veg­uðum hætti og í vinnu okkar með stjórn­endum ein­stakra sviða og ein­inga hefur verið safnað saman fjöl­mörgum aðgerðum og leiðum til hag­ræð­ingar. Okkar vinna gengur núna út á að tíma­setja þær, kostn­að­ar­meta og hrinda þeim í kjöl­farið í fram­kvæmd.“

Ráðist í hagræðingaraðgerðir

Stefán rekur svo aðgerð­irnar, sem eru af ýmsum toga. Smærri aðgerðir snúa meðal ann­ars að auk­inni sam­vinnu milli sviða og ein­inga, breyt­ingum á verk­efnum og starfs­hlut­falli/störfum í ein­hverjum til­vikum, yfir­ferð yfir auka­greiðslur sem einnig teng­ist vinnu við jöfnun launa milli kynja og jafn­launa­vottun, til­færslu og breyt­ingu á verk­efnum og utan­um­haldi. „Þessar smærri aðgerðir eru í gangi á öllum sviðum og verða nánar kynntar hlut­að­eig­andi þegar það er tíma­bært í hverju og einu til­viki.“

Tvær stærri aðgerðir eru sér­stak­lega til­greindar í póst­inum. Annars vegar ætlar RÚV að nýta starfs­manna­veltu til þess að fækka starfs­fólki. Í því felst, að sögn Stefáns, að not­ast verður við þær heim­ildir sem RÚV hefur til breyt­inga á ein­staka störfum og til­færslum inn­an­húss þar sem nauð­syn­legt er að manna lausar stöður eða sinna verk­efnum, þegar störf hjá RÚV losna eða fækkar í hópi starfs­manna af öðrum ástæðum.

[adspot]Hins vegar stendur til að bjóða öllu starfs­fólki 65 ára og eldra að lækka við sig starfs­hlut­fall um helm­ing, gegn því að halda óbreyttum kjörum í þrjá mán­uði eftir að starfs­hlut­fall hefur verið lækkað. Stefán segir þetta vera lið í mannauðs­stefnu RÚV til fram­búðar. „Jafn­framt er hægt að líta á þetta sem hag­ræð­ing­ar­að­gerð þar sem ekki stendur til að ráða inn nýtt starfs­fólk til móts við þá lækkun á starfs­hlut­falli sem þessu mun fylgja. Réttindi flestra í þessum hópi eru með þeim hætti að unnt er að hefja töku líf­eyris sam­hliða lækkun starfs­hlut­falls. Mik­il­vægt er að hafa í huga að hér er um mögu­leika að ræða fyrir hvern og einn en ekki skyldu, gegn þeirri umbun að halda fullum launum á lækk­uðu starfs­hlut­falli í þrjá mán­uði.“

2,2 milljarða tekjur úr samkeppnisrekstri

RÚV hagn­að­ist um 6,6 millj­ónir króna á árinu 2019. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins voru 6,9 millj­arðar króna. Þar af komu 4,7 millj­arðar króna úr rík­is­sjóði í formi þjón­ustu­tekjna af útvarps­gjaldi, en 2,2 millj­arðar króna voru tekjur úr sam­keppn­is­rekstri, sem er að uppi­stöðu sala aug­lýs­inga og kost­aðs efn­is.

Rekstr­ar­hagn­aður RÚV fyrir fjár­magns­gjöld, afskriftir og skatta var 290 millj­ónir króna í fyrra.

Afkoma RÚV á árunum 2013 til 2018 var jákvæð um 1,5 millj­­arða króna, en sú afkoma skýrð­ist fyrst og fremst af hagn­aði vegna sölu bygg­inga­réttar á lóð félags­­ins við Efsta­­leiti. Ef litið er á afkomu félags­­ins fyrir tekju­skatt og sölu­hagnað hefði heild­­ar­af­koma félags­­ins á þessu tíma­bili var hún nei­­kvæð um 61 milljón króna. Án lóða­­söl­unnar hefði RÚV ohf. orðið ógjald­­fært.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár