„Þá féll spilaborgin alveg“

Á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi sjást lítil ummerki um kór­ónu­veiruna sem tutt­ugu íbúar og starfs­menn sýkt­ust af. Þau sjást helst á máðum gólfum eftir stöðuga þvotta. „Þetta var nátt­úr­lega alvar­legt. Það dó fólk og það var mikil sorg og hræðsla.“

Gylfi Ólafsson á skrifstofu sinni á Ísafirði.
Gylfi Ólafsson á skrif­stofu sinni á Ísafirði. Mynd: Aðsend

„Þetta var nátt­úr­lega alvar­legt. Fólk dó og það var mikil sorg og hræðsla. Hvaða afleið­ingar það mun hafa á líðan fólks til langs tíma er enn óvíst. En núna er bjart yfir öllum, bæði starfs­fólki og íbúum. Svona ástand getur þjappað fólki saman.“

Gylfi Ólafsson, for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða, heim­sótti hjúkr­un­ar­heim­ilið Berg á Bol­ung­ar­vík í vik­unni. Heimilið þar sem kom upp hóp­sýk­ing af kór­ónu­veirunni. Sjö íbúar af ell­efu sýkt­ust og tveir lét­ust. Þrettán starfs­menn sýkt­ust, þar af tveir bak­verðir sem komu til aðstoðar. Nítján starfs­menn þurftu að fara í sótt­kví, þar af fimm bak­verðir. Veiran hafði því þau áhrif að 32 sem ýmist unnu eða bjuggu á heim­il­inu sýkt­ust eða þurftu að fara í sótt­kví.

Ummerki um kór­ónu­veiruna á Bergi eru nú vart sjá­an­leg. Þau sjást helst í því að veggir og gólf hafa látið á sjá eftir ítrekuð þrif með sterkum sótt­hreins­andi efnum og lím­böndum sem notuð voru til að hólfa hús­næðið niður.

Flestir sýkt­ust í upp­hafi apríl og tveimur vikum seinna sýkt­ust tveir starfs­menn til við­bótar.

„Starfs­menn­irnir veikt­ust ekki mjög alvar­lega en hins vegar þá hafa veik­indin hjá mörgum þeirra verið lang­vinn,“ segir Gylfi. „Fólk er enn að kvarta yfir eyrna­verk, skertu starfs­þreki, höf­uð­verk eða jafn­vel gleymsku.“ Enginn er þó enn í veik­inda­leyfi.

Gylfa seg­ist hafa brugðið þegar ljóst var að COVID-19 hefði greinst meðal fólks­ins á Bergi. Vegna sótt­varna­ráð­staf­ana þurfti hann sjálfur að loka sig af inni á skrif­stofu og fá fréttir af gangi mála frá öðrum.

Hann segir að á miklu hafi gengið á starfs­stöð hans á Ísafirði á þessum tíma. Það var ekki aðeins Berg sem var undir heldur umfangs­mikil sýna­taka vegna hóp­sýk­inga í umdæm­inu, smitrakn­ing, skipu­lagn­ing á sótt­kví fjölda fólks auk sam­skipta við fjöl­miðla og þar fram eftir göt­unum. „Svo bætt­ist við ófærð framan af,“ rifjar Gylfi upp.

31 starfs­maður til við­bótar við þá sem fyrir voru kom til starfa á Bergi á því tíma­bili sem ástandið var hvað verst. „Til starfa kom fólk úr bak­varða­sveit­inni en einnig fólk sem hafði ætlað að vera í fríi, sum­ar­starfs­menn komu fyrr en til stóð, nemar sem voru í háskólum erlendis komu heim og lögðu sitt af mörkum og einnig var flutt til fólk af öðrum deildum stofn­un­ar­innar. Allt þetta fólk var kallað til.“

Þegar fyrsta smitið greind­ist hjá íbúa á Bergi hafði heim­sókn­ar­bann staðið í nokkrar vikur. Var það rakið til starfs­manns. Sá hafði verið ein­kenna­laus og engar vís­bend­ingar haft um veik­indi sín.

Mikil vanlíðan

Á þessum tíma var búið að skipta starfs­mönnum niður í teymi svo að ef upp kæmi smit væri hægt að setja allt teymið í sótt­kví og lág­marka þannig frekara smit. En á Bergi barst smit snemma í íbúa og áður en það var greint höfðu fleiri, bæði aðrir íbúar og aðrir starfs­menn, smit­ast. „Þá féll spila­borgin alveg,“ rifjar Gylfi upp. Hann segir að starfs­mað­ur­inn sem óað­vit­andi bar smitið inn á heim­ilið hafi glímt við mikla van­líðan í kjöl­farið. Sömu sögu sé að segja um marga aðra starfs­menn. Þeir þurftu margir að fara heim í ein­angrun eða sótt­kví og fannst þeir því ekki geta komið að gagni þegar mest þurfti á að halda. Þeir sem veikt­ust voru svo eins og aðrir sem fengu þennan nýjan sjúk­dóm í mik­illi óvissu með hvað koma skyldi. Og hver eft­ir­köstin yrðu – líkt og nú er farið að koma í ljós.

Gylfi segir allt hafa verið reynt til að halda utan um starfs­manna­hóp­inn og hlúa að honum við þessar erf­iðu aðstæður. Rauði kross­inn kom þar m.a. til skjal­anna og bauð áfalla­hjálp. „Við lögum mikið upp úr því að hringja í starfs­menn og heyra í þeim hljóðið og einnig í aðstand­endur íbú­anna og heyra hvernig þeir hefðu það og halda þeim upp­lýstum.“

Gæti haft áhrif til framtíðar

Á Bergi er lífið að kom­ast í samt horf. Heim­sókn­ar­banni hefur verið aflétt og þeir starfs­menn sem fóru í veik­inda­leyfi eru komnir til baka. Byrjað var að taka við nýjum íbúum í lok maí.

„Þetta var nátt­úr­lega alvar­legt,“ segir Gylfi. „Fólk dó og það var mikil sorg og hræðsla. Hvaða afleið­ingar það mun hafa til langs tíma er enn óvíst. Það er enn svo stutt síðan þetta gekk yfir. En því miður þá er ekki úti­lokað að þetta tíma­bil og allt sem því fylgdi eigi eftir að hafa áhrif á and­lega heilsu ein­hverra síðar. Með því þarf að fylgj­ast vel.“

Gylfi vonar að áfallið muni ekki skilja eftir sig djúp sár til lengri tíma. „Mér fannst svaka­lega bjart yfir öllum,“ segir Gylfi. „En í fyrra­dag var reyndar sér­stakur dagur, Guðni [Th. Jóhann­es­son] for­seti kom í heim­sókn og því hátíð­ar­bragur á öllu.“

Hefði getað farið mun verr

Þegar Gylfi er beð­inn að líta í bak­sýn­is­speg­il­inn er honum efst í huga að ekki hafi farið verr. Hann bendir á að erlendis hafi veiran víða valdið hörm­ungum á hjúkr­un­ar­heim­ilum. „Dæmin að utan sýna að þegar smit hafa komið upp á hjúkr­un­ar­heim­ilum hafi reynst mjög erfitt að ráða við ástandið. Dán­ar­tíðnin hefur oft verið mjög há. Við misstum tvo af þeim sjö íbúum sem sýkt­ust.“

Það sem hafi komið í veg fyrir að ekki fór enn verr má að sögn Gylfa rekja til þess að leið­bein­ingar um sótt­kví og aðrar sótt­varnir voru til staðar og hlífð­ar­fatn­aður til taks þegar á þurfti að halda. Þá hafi heil­brigð­is­stofn­an­irnar staðið vel saman. Nokkrir þeirra sem veikt­ust alvar­lega af COVID-19 í umdæm­inu voru sendir til aðhlynn­ingar á Akureyri og aðrir suður til Reykja­víkur. Svo hafi fólk komið alls staðar að af land­inu til aðstoðar í gegnum bak­varða­sveit­ina. Gylfi segir að her mann­anna hafi „gert og græjað“ allt sem til þurfti. „Ég var stundum spurður hvort að við réðum við álagið og þá spurði ég á móti: Hvað mein­arðu með við? Því þetta voru svo margir sem gengu hver undir ann­ars hönd.“

Alls hafa 97 greinst með veiruna á Vest­fjörðum frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Gylfi seg­ist vita til þess að það séu fleiri en starfs­menn Bergs sem hafi fundið fyrir lang­vinnum ein­kennum vegna sjúk­dóms­ins. „Þessi ein­kenni virð­ast sitja í mörgum, meðal ann­ars þetta slen. Það vantar dálít­inn vind í fólk sem ekki er hægt að vinna upp með miklum fjall­göngum heldur verður fólk bara að gefa sér tíma til að jafna sig.“

Samfélagið að ná vopnum sínum

Fyrir utan það virð­ist honum sam­fé­lagið vera búið að ná vopnum sínum að mestu fyrir utan þá erf­iðu stöðu sem upp er komin í ferða­þjón­ust­unni. Skemmti­ferða­skipin hafa flutt tug­þús­undir far­þega til svæð­is­ins und­an­farin ár en ekki er von á slíku skipi í sumar.

Á Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða er haldið utan um sér­stakan „COVID-reikn­ing“ í bók­hald­inu. „Við væntum þess að ríkið greiði hann þegar rykið sest,“ segir Gylfi. Reikn­ing­ur­inn er vegna aðfanga og launa starfs­manna og hljóðar upp á um hund­rað millj­ónir króna. Reikn­ing­ur­inn hefur verið sendur – en er enn ógreiddur. „En ég á ekki von á öðru en að það verði gert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár