Viðra hugmynd um nýjan dómstól og telja ekki rétt að fella út íhlutunarheimild SKE

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar þings­ins lagði til tölu­verðar breyt­ingar á sam­keppn­islaga­frum­varpi Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur ráð­herra, sem bíður þess að vera tekið til 2. umræðu á Alþingi.

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis telur ekki rétt að fella brott heim­ild Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til íhlut­unar án brots og segir almanna­hags­muni standa til þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið geti brugð­ist við ef sam­keppn­is­hindr­anir séu á mark­aði án þess að brotið sé gegn lögum. Þó telur meiri­hlut­inn að skýra þurfi fram­kvæmd íhlut­un­ar­innar frekar.

Meiri­hluti nefnd­ar­innar leggur til tölu­verðar breyt­ingar á sam­keppn­islaga­frum­varpi Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur ráð­herra sam­keppn­is­mála, sem bíður þess nú að vera tekið til ann­arrar umræðu á Alþingi.

Í nefnd­ar­á­lit­inu er því einnig beint til ráð­herra að kanna hvort fýsi­legt sé að setja á fót sér­stakan dóm­stól, sem leyst gæti af hólmi ýmsar áfrýj­unar- og úrskurð­ar­nefndir á sviði við­skipta- og neyt­enda­mála.

„Meðal þeirra stjórn­sýslu­nefnda sem til greina kæmi að slíkur dóm­stóll leysti af hólmi eru áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála, áfrýj­un­ar­nefnd neyt­enda­mála, kæru­nefnd útboðs­mála, áfrýj­un­ar­nefnd hug­verka­rétt­inda, úrskurð­ar­nefnd raf­orku­mála og úrskurð­ar­nefnd fjar­skipta- og póst­mála,“ segir í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans, sem segir að könnun á því hvort þetta væri fýsi­legt þyrfti að vinna þvert á ráðu­neyti.

Frumvarp sem hefur verið kallað „prófsteinn á íslenska stjórnmálakerfið“

Áform ráð­herra um að fella á brott heim­ild Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til íhlut­unar án brots höfðu verið tals­vert mikið gagn­rýnd, til dæmis af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu sjálfu, sem sagði að til­vist þess­arar heim­ildar hefði mikla þýð­ingu.

[adspot]

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, sagði í ítar­legri aðsendri grein í Kjarn­anum, sem hann lagði einnig fram sem umsögn við málið, að um óheilla­skref væri að ræða. Hann hafði raunar miklar athuga­semdir við frum­varpið í heild sinni. Það höfðu Neyt­enda­sam­tökin og Alþýðu­sam­band Íslands einnig, auk ann­arra.

„Það verður áhuga­vert að fylgj­ast með afdrifum frum­varps­ins á Alþingi. Í raun má líta á það sem próf­stein á íslenska stjórn­mála­kerf­ið. Verður látið undan háværum kröfum stór­fyr­ir­tækja og sam­taka þeirra um að veikja íslenskt sam­keppn­is­eft­ir­lit eða fær almenn­ingur að njóta þeirrar verndar sem hann hefur notið til þessa?“ skrif­aði Gylfi Magn­ús­son.[links]

Við­skipta­ráð Íslands og Samtök atvinnu­lífs­ins voru á þeirri skoðun að það væri heilla­væn­legt skref að afnema heim­ild Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til íhlut­unar án brots og skömmu áður en efna­hags- og við­skipta­nefnd kláraði yfir­ferð sína á mál­inu færðu þau rök fyrir því að það væri mik­il­vægt að heim­ildin félli á brott.

Hags­muna­sam­tökin sendu sam­eig­in­legt minn­is­blað sitt inn sem svar við fyrra minn­is­blaði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, þar sem eft­ir­lits­stofn­unin vakti athygli á því að fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins væri með til skoð­unar að taka upp íhlut­un­ar­heim­ild af svip­uðu tagi og þá sem lagt væri til að fella brott með frum­varp­inu.

Ljóst er að nefnd­ar­mönnum í efna­hags- og við­skipta­nefnd hefur þótt það ganga of langt að afnema heim­ild­ina með öllu.

„Fram hjá því verður ekki litið að fákeppni og þegj­andi sam­ráð er lík­legri á litlum mörk­uðum eins og hér á landi en á stærri mörk­uðum þar sem leik­endur eru fjöl­margir. Þá geta alvar­legar við­skipta­hindr­anir falist í tak­mörk­uðu aðgengi að nauð­syn­legum innviðum og þar með dregið úr sam­keppni á mark­aði. Meiri hlut­inn bendir einnig á að lítil fyr­ir­tæki á sam­keppn­is­mark­aði veita stórum og rót­grónum fyr­ir­tækjum mik­il­vægt aðhald. Meiri hlut­inn telur að hags­munir minni fyr­ir­tækja séu betur tryggðir með því að halda heim­ild Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til íhlut­unar án brots inni í lögum,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu.

Aukin skilyrði fyrir því hvernig Samkeppniseftirlitið geti beitt heimildinni

Nefnd­ar­menn segja þó einnig að marka þurfi beit­ingu heim­ild­ar­innar skýr­ari ramma í lögum, því ljóst sé að beit­ing hennar geti verið verið afar íþyngj­andi, einkum ef hún felist í breyt­ingum á skipu­lagi þess aðila sem í hlut á. Því tengt þurfi að skil­greina hug­takið mark­aðs­rann­sókn sér­stak­lega í lög­unum, á þann hátt að átt sé við rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á sam­keppn­isum­hverfi á til­teknum mark­aði til að meta hvort aðstæður eða hátt­semi opin­berra aðila eða einka­að­ila komi í veg fyrir, tak­marki eða hafi skað­leg áhrif á sam­keppni, almenn­ingi til tjóns.

Einungis að und­an­geng­inni slíkri mark­aðs­rann­sókn, sem sýni fram á skað­leg áhrif á sam­keppni, megi leiða líkur að því að íhlutun sam­keppn­is­yf­ir­valda sé rétt­læt­an­leg, segir meiri­hluti nefnd­ar­innar, og í kjöl­farið þurfi Sam­keppn­is­eft­ir­litið að gæta með­al­hófs og nota væg­asta úrræðið til að ná því mark­miði sem að er stefnt.

Meiri­hluti nefnd­ar­innar leggur einnig til að ákvæði verði bætt við sam­keppn­is­lögin þess efnis að mark­aðs­rann­sóknir þurfi að grund­vall­ast á rann­sókn­ar­á­ætlun, sem stað­fest hafi verið af stjórn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

„Stjórn ber þannig m.a. að meta hvort áætlun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um rann­sókn sé þannig úr garði gerð að með­al­hófs sé gætt og að rann­sóknin sé lík­leg til að skila þeim árangri sem að er stefnt. Jafn­framt skuli haft sam­ráð um rann­sókn­ar­á­ætl­un­ina sem að lág­marki skuli snúa að aðilum máls­ins sem þar fái sann­gjarnt tæki­færi til að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi. Gera má ráð fyrir að rann­sókn­ar­á­ætlun birt­ist jafnan opin­ber­lega í opnu sam­ráðs­ferli nema sér­stakar ástæður séu til annar,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu.

Meiri­hluti nefnd­ar­innar segir þessu ætlað að skapa meiri fyr­ir­sjá­an­leika um beit­ingu heim­ild­ar­innar, leggja skýr­ari grund­völl að hlut­lægum og vönd­uðum und­ir­bún­ingi og marka þannig fram­kvæmd hennar skýr­ari far­veg en verið hafi í lögum hingað til.

Nýr dómstóll á sviði viðskipta- og neytendamála?

Eins og fram kom hér að ofan leggur meiri­hluti nefnd­ar­innar einnig til við ráð­herra að gerð verði fýsi­leika­könnun á því að setja á fót nýjan dóm­stól til þess að leysa af hólmi ýmsar áfrýj­unar- og úrskurð­ar­nefndir á sviði við­skipta- og neyt­enda­mála, þar á meðal áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála.

Frá árinu 2011 hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið lögum sam­kvæmt haft heim­ild til þess að höfða dóms­mál til ógild­ingar á úrskurðum áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála. Síðan þá hefur stofn­unin höfðað þrjú slík mál, en nefnd­ar­menn benda á að mál­skots­heim­ildin sé ekki í sam­ræmi við þá meg­in­reglu að úrlausn æðra setts stjórn­valds sé bind­andi fyrir lægra sett stjórn­vald og end­an­leg á stjórn­sýslu­stigi.

Nefnd­ar­menn benda á að síðan árið 2011 hafi bæst við heilt nýtt dóm­stig í land­inu og því sé staðan nú þannig að sam­keppn­is­mál gætu verið til umfjöll­unar á tveimur stjórn­sýslu­stigum, hjá eft­ir­lit­inu sjálfu og áfrýj­un­ar­nefnd­inni og svo dóm­stig­unum þremur, sem sé löng máls­með­ferð.

„Með stofnun sér­hæfðs dóm­stóls um fram­an­greind mál­efni yrði ann­ars vegar stuðlað að vand­aðri og skjótri máls­með­ferð og hins vegar að því að tryggja sem best að til staðar verði sú sér­hæf­ing og þekk­ing sem nauð­syn­leg er á sífellt flókn­ari rétt­ar­sviðum við­skipta­lífs­ins. Takist vel til stuðlar hvort tveggja að auknu réttar­ör­yggi,“ segir meiri­hluti nefnd­ar­innar.

Sam­keppn­islaga­frum­varpið er eitt af þónokkrum málum sem rík­is­stjórnin ætlar sér að reyna að klára fyrir þing­lok, en sem kunn­ugt er hefur dag­skrá Alþingis verið hálf­part­inn strand frá því fyrir helgi, þar sem þing­menn Mið­flokks­ins hafa rætt án afláts við hvorn annan um sam­göngu­á­ætlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár