Munur á stýrivöxtum og vöxtum á húsnæðislánum eykst

Vextir á hús­næð­is­lánum hafa lækkað mikið á und­an­förnum miss­erum en lækk­an­irnar ná þó ekki að halda í við lækkun stýri­vaxta.

Vaxta­munur á hús­næð­is­lánum og stýri­vöxtum hefur auk­ist um eitt til 1,5 pró­sentu­stig. Þetta er nið­ur­staða úttektar ASÍ um þróun á hús­næð­is­vöxtum sem tekur fyrir tíma­bilið frá 1. jan­úar 2019 til 7. júní 2020. Lán­tak­endur hafa því ekki notið góðs af lækkun stýri­vaxta að fullu.

„Sem dæmi um auk­inn vaxta­mun má nefna að í byrjun tíma­bils var 1,5 pró­sentu­stiga munur ástýri­vöxtum og óverð­tryggðum breyti­legum vöxtum Lands­bank­ans og Íslands­banka en í dag er mun­ur­inn kom­inn upp í 2,5 pró­sentu­stig hjá Lands­bank­anum og 2,7% hjá Íslands­banka. Í byrjun tíma­bils var 2,1 pró­sentu­stiga munur á stýri­vöxtum og óverð­tryggðum breyti­legum vöxtum hjá Arion banka en er í dag 2,54 pró­sentu­stig,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Það sama er uppi á ten­ingnum hjá líf­eyr­is­sjóðum en sam­kvæmt úttekt­inni hefur munur á breyti­legum vöxtum Brúar farið úr tveimur pró­sentu­stigum í 3,2 pró­sentu­stig og hjá Lífs­verki hefur mun­ur­inn farið úr 1,8 pró­sentu­stigum upp í 3,25 pró­sentu­stig.

Um breyt­ingu á verð­tryggðum vöxtum lána­stofn­ana segir í til­kynn­ing­unni: „Í sam­an­burði hafa verð­tryggðir breyti­legir hús­næð­is­vextir af grunn­lánum lækkað um 0,4-1,55 pró­sentu­stig og óverð­tryggðir breyti­legir vextir af grunn­lánum um 0,95-3,5 pró­sentu­stig. Óverð­tryggðir fastir vextir til 3-5 ára hafa í mörgum til­fellum lækkað mikið eða á bil­inu 1,55-3,35 pró­sentu­stig en verð­tryggðir fastir vextir út láns­tím­ann minna, um 0,05-0,4 pró­sentu­stig og verð­tryggðir fastir vextir til 3-5 ára um 1,25-1,45 pró­sentu­stig,“

Í til­kynn­ingu segir: „Þrátt fyrir miklar vaxta­lækk­anir hefur munur á stýri­vöxtum og óverð­tryggðum vöxtum af hús­næð­is­lánum í mörgum til­fellum auk­ist á tíma­bil­inu og því hafa lán­tak­endur hús­næð­is­lána að jafn­aði ekki notið góðs af lækkun stýri­vaxta að fullu.“

Í til­kynn­ing­unni eru tekin dæmi um hvaða þýð­ingu lægri vextir geta haft fyrir lán­tak­endur. Þar kemur fram að 0,5 pró­sentu­stiga munur á 30 millj­óna króna láni hafi í för með sér auka kostnað sem nemur 150 þús­und krónum fyrir lán­tak­anda á ári. „Ef mun­ur­inn á vöxtum er enn meiri, t.d. 1,5 eða 2 pró­sentu­stig er það auka kostn­aður upp á 450.000-600.000 krónur á ári,“ segir þar enn fremur.

Úttektin sýnir þróun á hús­næð­is­vöxtum á grunn­lánum frá 1. Janúar 2019 til 7. júní 2020. Hún nær til 15 lána­stofn­ana. Þær eru Lands­bank­inn, Íslands­bank­inn og Arion banki og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Birta, Brú, Festa, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Gildi, Lífsverk, LSR, Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda, Stapi, Líf­eyr­is­sjóður Verzlunarmanna og Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vextir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár