Íbúðalánavextir komnir niður fyrir 3%

Verð­tryggðir íbúða­lána­vextir hjá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna eru nú komnir í 2,98%, en það er 0,67 pró­sentu­stigum lægra en við­mið­un­ar­vextir Seðla­bank­ans.

Breyti­legir vextir á íbúða­lánum Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna eru nú 2,98%, en lík­legt er að þeir hafi aldrei verið svona lágir. Vext­irnir eru 0,67 pró­sentu­stigum lægri en almennir vextir til verð­tryggðra útlána sam­kvæmt Seðla­bank­anum.

[adspot]

Umræddir vextir Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna eru þeir lægstu sem bjóð­ast á verð­tryggðum íbúð­ar­lánum á Íslandi þessa stund­ina, en til sam­an­burðar býður LSR upp á 3,11% vexti og Gildi upp á 3,35% vexti. Vextir á íbúða­lánum bank­anna eru nokkru hærri, eða um 3,65% fyrir svipað láns­hlut­fall. 

Hafa ber í huga að leyfi­legt láns­hlut­fall á íbúð er breyti­legt eftir lána­stofn­unum. Til að mynda er það 75% hjá LSR, en um 65% hjá Gildi. Hjá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna er láns­hlut­fallið 70%, en hjá bönk­unum er hæsta leyfi­lega láns­hlut­fallið 85%.

Í öllum til­vikum eru vext­irnir á árs­grund­velli og fyrir 40 ára hús­næð­is­lán.

Íbúða­lána­vextir LiVe eru ákvarð­aðir þannig að þeir eru 0,75 pró­sentu­stigum hærri en með­al­á­vöxtun síð­asta mán­aðar í ákveðnum flokki íbúða­bréfa sem skráður er í Kauphöll. Á síð­ustu mán­uðum hafi þeir lækkað umtals­vert, en gera má ráð fyrir því að stýri­vaxta­lækkun Seðla­bank­ans hafi haft ein­hvern þátt í því.

Frá því vaxta­lög voru sett árið 2001 hefur Seðla­bank­inn birt við­mið­un­ar­vexti fyrir hús­næð­is­lán skv. 4. gr. laga um vexti og verð­trygg­ingu, en þau eiga við ef vaxta­við­miðun er ekki til­tekin . Seðla­bank­inn á að ákveða vext­ina á árs­grund­velli með hlið­sjón af lægstu vöxtum á verð­tryggðum útlánum hjá lána­stofn­unum.

Eins og sést á þróun við­mið­un­ar­vaxta und­an­farin 16 ár á mynd hér að ofan líta þeir út fyrir að vera í sögu­legu lág­marki þessa stund­ina. Hins vegar er óljóst hvort Seðla­bank­inn ákveði við­mið­un­ar­vexti sína með hlið­sjón af útlánum líf­eyr­is­sjóð­anna, sem eru 0,67 pró­sentu­stigum lægri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vextir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár