Áætlað að 4.000 manns búi í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu

Samkvæmt nýlegu mati er áætlað að um 4.000 manns búi nú í atvinnu- og iðn­að­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra seg­ist ætla að leggja fram frum­varp sitt um hlut­deild­ar­lán á yfir­stand­andi þingi.

Ásmundur Einar Daðason er með húsnæðismálin á sinni könnu sem félagsmálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason er með hús­næð­is­málin á sinni könnu sem félags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áætlað er að um 4.000 manns búi nú í atvinnu­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þetta kemur fram í svari Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og barna­mála­ráð­herra við skrif­legri fyr­ir­spurn Bjarkeyjar Olsen Gunn­ars­dóttur þing­manns Vinstri grænna.

Talan er ekki nákvæm, segir í svari ráð­herr­ans, þar sem hún var áætluð með vett­vangskönn­unum og ábend­ingum í nýlegri end­ur­skoðun á könnun sem slökkvi­liðs­stjórar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fram­kvæmdu árið 2017.

Í umfjöllun Stund­ar­innar í byrjun síð­asta árs kom fram að slökkvi­liðið, sem hefur kort­lagt búsetu í iðn­að­ar­hverfum und­an­farin ár, áætl­aði að á bil­inu fimm til sjö þús­und manns héldu til í atvinnu- og iðn­að­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar af 860 börn.

Ekki hafa verið gerðar slíkar kann­anir ann­ars staðar á land­inu, eftir því sem félags­mála­ráð­herra best veit. Ekki er heim­ilt að skrá lög­heim­ili sitt í hús­næði sem ekki er skráð sem íbúð­ar­hús­næði og því er ekki um að ræða neina opin­berar skrán­ingu slíkrar búsetu.

Ásmundur Einar segir í svari sínu að það muni breyt­ast, þar sem hann ætli sér að mæla fyrir frum­varpi um breyt­ingar á húsa­leigu­lögum á yfir­stand­andi þingi. Í frum­varp­inu felst meðal ann­ars að sögn ráð­herr­ans að skylt verði að skrá alla leigu­samn­inga um íbúð­ar­hús­næði og annað hús­næði sem leigt er til íbúðar í hús­næð­is­grunn Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar.

Ætlar líka að leggja fram frumvarp um hlutdeildarlán á yfirstandandi þingi

Bjarkey spurði Ásmund Einar að því hvaða úrræðum hann teldi rétt að beita til þess að þessi hópur ætti kost á við­un­andi hús­næði. Í svari sínu sagði ráð­herra að aðgengi fólks að við­un­andi hús­næði yrði best tryggt með því að stuðla að auknu fram­boði slíks hús­næðis og nefndi að ríkið sé búið að leggja áherslu á almennar leigu­í­búðir fyrir tekju­lægri hópa und­an­farin ár. Hann býst við 1.800 slíkum íbúðum inn á mark­að­inn á næstu þremur árum.

[links]Einnig segir Ásmundur Einar, í marg­lið­uðu svari sínu, að hann ætli að leggja fram frum­varp sitt um hlut­deild­ar­lán á yfir­stand­andi þingi. Eins og lánin voru kynnt af ráð­herra síð­asta haust fela þau í sér að að ríkið láni þeim sem þess þurfi allt að 20 til 40 pró­sent af kaup­verði fast­eigna, til þess að brúa bilið á milli láns­fjár­mögn­unar sem fæst frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum og kaup­verðs­ins.

Þetta, auk fram­lengdrar heim­ildar til nýt­ingar sér­eign­ar­sparn­aðar til hús­næð­is­kaupa, mun að sögn ráð­herra styðja fólk við íbúða­kaup og eigna­myndun og örva um leið fram­boð íbúða.

Segir þá sem eru í atvinnuhúsnæði eiga að leita til sveitarfélaganna

Ráð­herr­ann bendir einnig á í svari sínu á að sveit­ar­fé­lögin hafi almennt ríkar skyldur til að aðstoða íbúa sína í hús­næð­is­málum og þurfi að tryggja fram­boð af hús­næði handa þeim fjöl­skyldum og ein­stak­lingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir hús­næði sökum lágra launa, þungrar fram­færslu­byrðar eða ann­arra félags­legra aðstæðna.

„Ein­stak­lingar og fjöl­skyldur á leigu­mark­aði sem ekki eiga kost á að búa ann­ars staðar en í atvinnu­hús­næði ættu því að snúa sér til sveit­ar­fé­lags síns til að leita lausna á hús­næð­is­vanda sínum,“ segir í svari Ásmundar Einars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár