Hlutdeildarlán ríkisins gætu orðið allt að þúsund talsins á hverju ári

Stefnt er að því að leggja fram frum­varp á þessu þingi um svokölluð hlut­deild­ar­lán. Gangi frum­varpið í gegn mun ríkið byrja að lána tekju­lágum og fyrstu kaup­endum fyrir allt að 40 pró­sent af kaup­verði fast­eigna.

Félags- og barna­mála­ráð­herra stefnir á að leggja fram frum­varp um svokölluð hlut­deild­ar­lán á yfir­stand­andi lög­gjaf­ar­þingi. Hlut­deild­ar­lán fel­ast í því að ríkið láni þeim sem þurfa fjár­magn fyrir allt að 20 til 40 pró­sent af kaup­verði fast­eigna. Lánunum er ætlað að brúa bilið á milli lánsfjármögnunar hjá fjármálafyr­ir­tækjum ann­ars vegar og kaup­verðs hins vegar.

Frá þessu er greint í nýrri skýrslu um stöðu og þróun hús­næð­is­mála sem kynnt er á hús­næð­is­þingi í dag.

Lán til að bregðast við bresti á húsnæðismarkaði

[links]Í byrjun árs voru 40 húsnæð­istillögur kynntar af hálfu stjórnvalda sem liður í því að liðka fyrir kjara­samn­ings­við­ræðum. Tillögunum var einkum ætlað að bæta stöðu ungs fólks og tekju- og eignalágra sem standa hvað höllustum fæti á húsnæð­is­mark­aði. Þær fela meðal ann­ars í sér aukin framlög til upp­bygg­ingar almenna íbúðakerf­is­ins, bætta réttar­stöðu leigj­enda og inn­leið­ingu hlut­deild­arlána fyrir ungt fólk og tekjulága.

Hlut­deild­ar­lán (e. equity loan) eru lán að enskri fyr­ir­mynd sem felst í því að ríkið lánar ákveðnum kaup­endahópum fjármagn fyrir hluta af eig­in­fjárþörf þeirra við fast­eigna­kaup. Í skýrsl­unni segir að með hlut­deild­arlánum sé verið að bregð­ast við ákveðnum bresti sem nú ríki á húsnæð­is­mark­aði.[adspot]

Lánið endurgreitt við sölu eða eftir 25 ár

Miðað er við að sett verði á lagg­irnar þrenns konar leiðir sem þjóna kaup­endum sem ætla að kaupa sína fyrstu fast­eign og fólki sem ekki hefur átt fast­eign í fimm ár, tekjulágum og þeim sem búa á svæðum sem glíma við misvægi íbygg­ing­ar­kostn­aði og mark­aðsvirði fast­eigna.

Hlut­deild­arlánin gætu numið allt að 20 til 40 pró­sent af kaup­verði fast­eigna eftir tekjuhópum. Í öllum til­vikum væri miðað við ákveðið hámark fast­eigna­verðs og að umsækj­andi sýni fram á að hann geti ekki keypt fast­eign nema með stuðn­ingi, að því er fram kemur í skýrsl­unni.

Lánið er svo end­ur­greitt við sölu eða að tutt­ugu og fimm árum liðnum en end­ur­greiðslan mið­ast við sama hlut­fall af verð­mæti eign­ar­innar og upp­haf­leg lánveit­ing nam.

Allt að 1.000 lán á hverju ári

Samkvæmt skýrsl­unni tak­markast umfang hlut­deild­ar­lána fyrst og fremst við afkasta­getu bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins enda muni áhersla vera á nýbyggt og nýlegt húsnæði.

Í skýrsl­unni segir að því megi gera ráð fyrir að árlegur fjöldi slíkra lána gæti verið á bil­inu 350 til 1.000 tals­ins, allt eftir því hversu mikla áherslu bygg­ing­ar­að­ilar leggja á íbúðir sem upp­fylla kröfur um hlut­deild­arlán.

Enn fremur kemur fram í skýrsl­unni að starfshópur sem félags- og barnamálaráðherra skip­aði í byrjun nóvem­ber hafi verið að störfum und­an­farnar vikur til að koma þess­ari nálgun í lagabúning með frum­varpi, en gert er ráð fyrir að það verði lagt fram á yfir­stand­andi löggjaf­ar­þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár