Leggja til að ríkið kaupi íbúðir með fólki

Starfs­hópur félags- og barna­mála­ráð­herra hefur lagt fram til­lögur til að lækka þrösk­uld ungs fólks og tekju­lágra inn á hús­næð­is­mark­að­inn. Hópurinn leggur meðal ann­ars til tvær nýjar teg­undir hús­næð­is­lána á vegum rík­is­ins, start­lán og eig­in­fjár­lán.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Kristinn Magnússon

Starfshópur félags- og barnamálaráðherra, sem unnið hefur að tillögum til að styðja við húsnæðiskaup ungs fólks og tekjulágs fólks, kynnti í dag tillögur sínar á fundi Íbúðalánsjóðs. Starfshópurinn leggur meðal annars til tvær nýjar tegundir húsnæðislána á vegum ríkisins, startlán og eiginfjárlán.

Startlán er hugsað fyrir tekjulága sem ekki ráða við greiðslubyrði lána sem bjóðast á markaði og fyrir þá sem eiga ekki fyrir fyrstu útborgun. Með startlánum myndi ríkið veita lán til viðbótar láni frá banka eða lífeyrissjóði. Þá væru lægri vextir á startlánum en almennt bjóðast á viðbótarlánum og lægri kröfur um eigið fé og greiðslubyrði. Eiginfjárlánin eru síðan hugsuð sem lán fyrir þá sem ekki ráða við startlán. Með eiginfjárláni veitir ríkið lán sem geta numið 15 til 30 prósent af kaupverði og eru án afborgana.

Verðtryggð lán aflögð og tvö ný ríkislán kynnt í staðinn

[links]Líkt og fram kom á sam­eig­in­legum kynn­ing­ar­fundi rík­is­stjórn­ar­innar og aðila vinnu­mark­að­ar­ins á mið­viku­dag­inn þá munu 40 ára verð­tryggð lán verða aflögð frá og með næstu ára­mótum. Jafn­framt var til­kynnt að til að auð­velda tekju­lágum hópum að eign­ast fast­eign myndi stjórn­völd kynna nýjar teg­undir hús­næð­is­lána.

Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður fyrr­nefnds starfs­hóps, kynnti til­lögur hóps­ins á fundi í höf­uð­stöðvum Íbúða­lána­sjóðs í morgun. Alls lagði starfs­hóp­ur­inn til fjórtán til­lögur sem til að auð­velda ungu fólki og tekju­lágum að kom­ast inn á hús­næð­is­mark­að­inn. Þær miða meðal ann­ars að því að auð­velda fyrr­nefndum hópum að safna fyrir útborgun í íbúð og létta hjá þeim afborg­un­ar­byrði lána. Tekið var fram á fund­inum að um er að ræða fyrstu drög að til­lögum en með fyr­ir­vörum um nán­ari útfærslu, grein­ingu á kostn­aði og áhrifum.

Húsnæðislán sem ekki hafa sést á Íslandi

Til­lög­urnar fela meðal ann­ars í sér tvær nýjar teg­undir hús­næð­is­lána sem ekki hafa sést á Íslandi áður, start­lán og eig­in­fjár­lán. Start­lánin eru lán að norskri fyr­ir­mynd en með start­lánum myndi ríkið veita við­bót­ar­lán með háum veð­hlut­föllum og hag­stæðum vöxtum til afmark­aðra hópa sem eiga sér­stak­lega erfitt með að eign­ast hús­næði. Ríkið veitir start­lán til við­bótar láni frá banka eða líf­eyr­is­sjóði og lokar þannig bil­inu upp að 90 pró­sent veð­hlut­falli. Lánið á því að bjóða upp á lægri kröfu um eigið fé og lægri greiðslu­byrði.

Eig­in­fjár­lán eru lán að breskri fyr­ir­mynd og eru hugsuð fyrir þann hóp sem ekki ræður við greiðslu­byrði start­lána. Með eig­in­fjár­láni myndi ríkið veita lán sem geta numið 15 til 30 pró­sent af kaup­verði og eru án afborg­ana. Þá mun höf­uð­stóll eig­in­fjár­lána taka breyt­ingum með mark­aðsvirði íbúð­ar­innar og rík­inu end­ur­greitt lánið við sölu íbúðar eða eftir 25 ár. Lántaki má einnig greiða lánið upp fyrr á mats­verði eða í áföngum og hefur til þess hvata vegna þess að eftir fimm ár reikn­ast hóf­legir vextir á lánið.

Bæði lánin eiga að vera háð því að um hag­kvæmt hús­næði sé að ræða. Auk þess leggur hóp­ur­inn til að hægt sé að nota lánin til að skapa auk­inn hvata til bygg­ingar nýs og hag­kvæms hús­næðis.

Lagt til að fresta megi afborgunum af námslánum

Starfs­hóp­ur­inn lagði einnig fram fleiri til­lögur, meðal ann­ars til­lögu um að tekju­lágir geti full­nýtt skatt­frjálsan hús­næð­is­sparnað. Að skil­yrði um fyrstu kaup verði rýmkuð, að fresta megi afborg­unum af náms­lánum LÍN um fimm ár, að vaxta­bótum verði beint að tekju­lægri hópum og að afsláttur af stimp­il­gjaldi við fyrstu kaup verði 200 þús­und krónur.

Samkvæmt skýrslu starfs­hóps­ins er þrösk­uldur ungs fólks og tekju­lágra inn á hús­næð­is­markað enn of hár, þrátt fyrir auk­inn kaup­mátt og sögu­lega lága raun­vexti. Íbúða­verð hefur hækkað umfram ráð­stöf­un­ar­tekjur sem gerir fólki erf­ið­ara að safna fyrir kaupum á íbúð. Samkævmt könnun Íbúða­lán­sjóðs vilja lang­flestir leigj­endur búa í eigin hús­næð en vís­bend­ingar eru um að það sé óyf­ir­stíg­an­legur þrösk­uldur fyrir marga leigj­endur að safna eigin fé til íbúð­ar­kaupa, meðal ann­ars vegna mik­illar hækk­unar leigu­verðs.

„Hús­næð­is­málin eru stórt vel­ferð­ar­mál. Sveiflur á hús­næð­is­mark­aði und­an­far­inna ára hafa leitt til þess að hópur fólks hefur setið eftir og býr við minna hús­næð­is­ör­yggi en aðrir og þá sér­stak­lega ungt fólk og tekju­lægri ein­stak­lingar. Af þeirri ástæðu setti ég þessa vinnu af stað. Til­lög­urnar ríma vel við nið­ur­stöður kjara­samn­inga. Ég ber þá von í brjósti að þær muni hafa mikla þýð­ingu fyrir þá hópa sem á þurfa að halda,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, þegar til­lögur starfs­hóps­ins voru kynntar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár