„Hamingjugaldurinn ku vera sá, að holuna skal fylla innan frá“

Fyrir nokkrum árum rakst Héðinn Unn­steins­son á heil­brigð­is­reglur sem ein for­mæðra hans, Sigríður Jóns­dóttir, hafði sett saman í aðdrag­anda flutn­inga sinna til Vest­ur­heims. Fund­ur­inn kom Héðni skemmti­lega á óvart enda hefur hann í gegnum tíð­ina sjálfur notað hnit­miðuð orð og setn­ingar, jafn­vel ort kvæði, til að skilja og reyna að fanga ham­ingj­una. Hann á bæði heið­ur­inn af geð­orð­unum tíu sem margir hafa á ísskápnum og lífs­orð­unum fjórtán sem voru hans bjarg­ráð á erf­iðum tímum.

„Hamingjugaldurinn ku vera sá, að holuna skal fylla innan frá“
Setur spurn­inga­merki við lífs­reglur Þrátt fyrir að Héðinn hafi lengi reynt að fanga kjarn­ann í ham­ingj­unni og hann hafi haldið á bil­inu 12 til 13 hund­ruð fyr­ir­lestra á þrjá­tíu árum um geð­heil­brigð­is­mál, seg­ist hann eftir því sem tím­inn líður hall­ast að því að það stoði lítið að setja sjálfum sér eða öðrum reglur í líf­inu og reyna þannig að hafa áhrif á flæði alheims­ins. Mynd: Davíð Þór

Í til­efni af hund­rað ára afmæli Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga birt­ist grein í tíma­riti félags­ins eftir Héðin Unn­steins­son sem ber nafnið Áhrifa­valdar. Þar veltir hann m.a. fyrir sér hverjir áhrifa­valdar for­tíðar og nútíðar eru. Hann segir frá einum af fyrstu áhrifa­völd­unum í hans eigin lífi, Fríðu ömmu­systur sinni, sem einmitt var hjúkr­un­ar­fræð­ingur en jafn­framt „ynd­is­leg mann­eskja, hlý, úrræða­góð, umhyggju­söm og æðru­laus“. Þá hafi hún búið yfir þeim eig­in­leika að geta stýrt, án þess að nokkur átt­aði sig á því að hún væri að stjórna. Í ófá skipti hafði Héðinn farið á hennar fund og þegið frá henni mann­eld­is­ráð og ráð um heilsu­sam­legan lífs­stíl. 

Hugs­an­lega var Fríða frænka og góðu ráðin hennar í und­ir­með­vit­und Héðins sjálfs þegar hann, fyrir tutt­ugu árum, stóð fyrir því að geð­orðin tíu, sem ótal­margir hafa enn fyrir aug­unum dag­lega, oftar en ekki á ísskápnum sínum, til að minna sig á hvernig er gott að hegða sér …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár