„Ofsalega mikil breyting framundan“

„Við finnum það enn betur en áður hvað er mik­il­vægt að til­heyra sam­fé­lagi,“ segir sviðs­stjóri fjöl­skyldu­sviðs Árborgar. Á mánu­dag hefst hefð­bundið skóla­hald í leik- og grunn­skólum. Víðir Reyn­is­son segir fram­hald far­ald­urs­ins í okkar höndum.

Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Árborgar.
Þor­steinn Hjart­ar­son, sviðs­stjóri fjöl­skyldu­sviðs Árborgar. Mynd: Lögreglan

„Auðvitað gleðj­umst við núna og fögnum sér­stak­lega. Daglegt líf barn­anna er að kom­ast í eðli­legt horf og við getum sett auk­inn kraft í skóla og frí­stunda­starf,“ sagði Þor­steinn Hjart­ar­son, sviðs­stjóri fjöl­skyldu­sviðs hjá sveit­ar­fé­lag­inu Árborg á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Gestir fund­ar­ins voru full­trúar frá öllum skóla­stigum og fjall­aði Þor­steinn um leik- og grunn­skóla­starfið.

Á mánu­dag, 4. maí, verða fyrstu skrefin í aflétt­ingu sam­komu­banns tekin. Þá mun leik- og grunn­skóla­starf kom­ast í eðli­legt horf og fram­halds­skólar og háskólar sömu­leiðis geta opnað bygg­ingar sínar fyrir nem­endum með þeim fjölda­tak­mörk­unum og öðru sem áfram verður í gildi.

[adspot]

Þor­steinn sagði það hafa mikla þýð­ingu fyrir börnin að geta eftir helgi farið saman út á skóla­lóð, í sund, íþróttir og list- og verk­greinar. „Svo það er ofsa­lega mikil breyt­ing framundan sem við gleðj­umst öll yfir.“

Mik­il­vægt væri að geta lokið skóla­starfi vetr­ar­ins með til­tölu­lega eðli­legum hætti. „Við þurfum svo að reyna að bretta upp ermar og finna takt­inn og koma aftur fersk í skól­ann í haust.“

Þor­steinn sagði að und­an­farnar vikur hefðu verið fullar af áskor­unum fyrir starfs­fólk, nem­endur og for­eldra. En lær­dóm­ur­inn væri að sama skapi mik­ill. „Við finnum það sér­stak­lega og enn betur en áður hvað er mik­il­vægt að til­heyra sam­fé­lagi. Öðlast skiln­ing á því að eiga góð sam­skipti því maður er manns gaman og allt það.“

[links]Líkt og á öllum skóla­stigum hefur tæknin verið nýtt til kennslu meira en nokkru sinni. „Fólk hefur þurft að hugsa út fyrir boxið og þetta munum við þróa enn frekar.“ Sagði hann fjar­kennsl­una geta hentað ákveðnum hópum áfram, s.s. þeim sem þurfa að vera heima vegna lang­vinnra veik­inda og þeirra sem eru með skólaforðun.

Allir hafi sýnt útsjón­ar­semi við afar erf­iðar aðstæður. Það hafi þó gengið ótrú­lega vel að umbylta öllu skóla­starfi á mjög stuttum tíma. Hafi sumir haft það á orði að tengslin milli skóla og heim­ilis hafi styrkst í mörgum til­vikum.

„Kannski aðal lær­dóm­ur­inn felist í ákveð­inni ró og yfir­vegun í aðstæðum sem við höfum ekki staðið frammi fyrir áður.“ Gott upp­lýs­inga­streymi hafi skipt þar sköpum og það að virkja lausn­a­mið­aða hugsun. Allir á Íslandi sjái nú hvað leik- og grunn­skólar skipta miklu máli fyrir allt sam­fé­lagið.

„Núna þarf að takast á við það sem framundan er af áræðni og krafti.“

Vernda þarf viðkvæma hópa og styðja foreldra

En margt brennur á skóla­fólki að sögn Þor­steins. Því miður væru aðstæður á heim­ilum barna mis­jafnar og for­eldrar eiga mis­auð­velt með að styðja börn sín í nám­inu. Þannig hafi börn af erlendum upp­runa ekki fengið þá íslensku­kennslu sem þörf er á. Að þessum við­kvæmu hópum þurfi sér­stak­lega að huga.

Nú þarf að mati Þor­steins að beina áherslum náms­ins að þeim þáttum sem þola illa rof og þar er lestur efst á blaði. Mjög mik­il­vægt væri að kerfi ríkis og sveit­ar­fé­laga stilli saman sína strengi til að veita bæði nem­endum og for­eldrum sem á þurfi að halda aðstoð. Þar átti hann meðal ann­ars við félags­þjón­ust­una. „Við þurfum að gera allt sem við getum til að hlúa að börn­unum og auka vellíðan þeirra.“

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði á fund­inum að ákvörðun um að aflétta tak­mörk­unum í leik- og grunn­skólum væri tekin út frá þeim rann­sóknum sem hér hafa verið gerðar sem leitt hafi í ljós að eng­inn full­orð­inn hafi smit­ast af barni.

Hann minnti enn­fremur á að það væri skóla­skylda í land­inu og mjög mik­il­vægt væri að allir for­eldrar sæju til þess að börnin þeirra mættu í skól­ann á mánu­dag. Ef barn kemst ekki í skól­ann verði að láta skóla­yf­ir­völd vita.

Víðir sagði það mikið ánægju­efni að skóla­starf yngstu nem­end­anna væri að kom­ast í eðli­legt horf. Hann minnti hins vegar á að hjá öðrum hópum giltu enn ákveðnar tak­mark­anir, svo sem fjar­lægð­ar­mörk og fjölda­tak­mörk. Allir þyrftu svo áfram að huga að hrein­læti. „Framhald þessa verk­efnis er algjör­lega í okkar höndum, hvernig við vinum þetta saman mun ráða fram­hald­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár